Austurland - 17.11.1988, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR, 17. NÓVEMBER 1988.
3
Alþýdusamband Austurlands
SigurðurIngvarsson
kosinn forseti
Átjánda þing Alþýðusam-
bands Austurlands var haldið að
Iðavöllum um síðustu helgi. Sig-
finnur Karlsson sem hefur verið
í stjórn sambandsins frá upp-
hafi, eða í 45 ár, gaf nú ekki
kost á sér í stjórn lengur en hann
hefur síðustu 30 árin verið for-
seti sambandsins og hafði þar
áður verið í 15 árgjaldkeri þess.
I hans stað var Sigurður Ingvars-
son frá Eskifirði kjörinn forseti
en Sigfinnur mun áfram verða
starfsmaður ASA ásamt Sig-
urði.
Aðrir í stjórn sambandsins
voru kjörnir: Björn Grétar
Sveinsson Höfn varaforseti,
Hrafnkell A. Jónsson Eskifirði
ritari, Viggó Sigfinnsson Nes-
kaupstað gjaldkeri og með-
stjórnendur þau: Dröfn Jóns-
dóttir Egilsstöðum, Eiríkur
Stefánsson Fáskrúðsfirði og Ari
Hallgrímsson Vopnafirði.
Varamenn í stjórn voru kosnir:
Skúli Hannesson Breiðdalsvík,
Anna María Sveinsdóttir Stöðv-
arfirði, Haukur Þorleifsson
Reyðarfirði, Hermann S. Krist-
jánsson Fáskrúðsfirði, Hjördís
Þóra Sigurþórsdóttir Höfn,
Stella Steinþórsdóttir Nes-
kaupstað og Gyða Vigfúsdóttir
Egilsstöðum.
Atvinnu- og kjaramál
I atvinnu- og kjaramálaálykt-
un þingsins er mótmælt harð-
lega þeirri aðför ríkisvaldsins að
launafólki sem felst í afnámi
samningsréttar. Þingið krefst
þess að samningsrétturinn verði
gefinn frjáls nú þegar og samn-
ingar verði settir í gildi með öll-
um þeim ákvæðum sem þar
kveður á um, hvort sem um er
að ræða launahækkanir eða
annað.
Þá hvetur þing ASA alla
launamenn til að standa fast
saman um að rétta sinn hlut
strax og lögunum verði aflétt og
þess er krafist að búið verði svo
að atvinnuvegunum að vinnuör-
yggi launþega sé tryggt og hægt
sé að greiða launafólki
mannsæmandi laun. Þingið
krefst þess að sá launamunur
sem nú er á milli karla og
kvenna verði leiðréttur og
kjarasamningar verði færðir
meira heim í héruðin en samflot
verði haft um allt er þarf að
sækja til stjórnvalda.
Þingið mótmælir síendur-
teknum íhlutunum stjórnvalda
í almennar fiskverðshækkanir
og bent er á að laun eru skert
en vöruverð hækkað. Þá leggur
þingið til að lífeyris- og launa-
tekjur skerði ekki tekjutrygg-
ingu aldraðra, fremur en tekjur
af fjármagni og skorað er á at-
vinnurekendur á Austurlandi að
beita ekki uppsögnum því það
séu mannréttindi að hafa rétt til
vinnu.
Þingið varar við þeirri þróun,
sem verið hefur að gerast, að
fiskvinnsla sé færð meira og
meira út á sjó og til annarra
landa á sama tíma og boðuð er
minnkandi sókn í sameign þjóð-
arinnar, fiskistofnana.
Öryggis- og tryggingamál
I öryggis- og tryggingamála-
ályktun þingsins er bent á að
brýnt sé að tryggja verkafólk
betur í veikinda- og slysatilfell-
um. Rétt foreldra í veikindatil-
fellum barna þurfi að endur-
skoða og breyta með tilliti til
fjölda barna og þá án þess að
veikindaréttur foreldra
skerðist. Eins er bent á að
endurskoða þurfi reglur um
fæðingarorlof.
Þá telur þingið brýnt að
endurskoða reglur sjúkrasjóð-
anna og tryggja betur áunnin
réttindi fólks gagnvart sjúkra-
sjóði við flutning milli félaga.
Leiðrétta þurfi það misræmi
sem nú er á dánarbótum eftir
starfsstéttum og athuga beri alla
nýja möguleika í tryggingamál-
um, sem tryggingafélög bjóða.
I þessari ályktun kemur einn-
ig fram að þingið telur að eftirlit
skorti með vinnu unglinga og að
þeim sé oft misboðið á vinnu-
stöðum, jafnt vinnulega sem
launalega. Þá telur þingið að
herða þurfi eftirlit með skaðleg-
um efnum á vinnustöðum og
eiturefnum almennt. Þá þurfi
mun meiri fræðslu um þessi
skaðlegu efni.
Fræðslumál
í fræðslumálaályktun þings-
ins er fagnað frumkvæði Verk-
menntaskóla Austurlands og
Atvinnuþróunarfélags Austur-
lands varðandi starfsmenntun á
Austurlandi með stofnun Far-
skóla í fjórðungnum. ASA vill
stuðla að því að almcnn starfs-
fræðslunámskeið verði skipu-
lögð og framkvæmd á vegum
Verkmenntaskólans enda fái
ASA tækifæri til að hafa áhrif á
þróun og framkvæmd starfs-
menntunar á Austurlandi sem
skipulögð er fyrir launafólk.
Þingið hvetur aðildarfélög ASA
til að bjóða félögum sínum að
sækja nám í Félagsmálaskólan-
um í Ölfusborgum eins og fjár-
hagur þeirra leyfi. Þingið telur
að efla beri félagsmálaskólann
og treysta frekar stöðu hans sem
fræðslustofnunar verkalýðs-
hreyfingarinnar.
o
Þetta var ágrip af ályktunum
þings Alþýðusambands Austur-
lands. Rúmlega 50 manns tóku
þátt í þingi ASA og voru oft á
tíðum fjörugar umræður og
málefnalegar. Verkalýðsfélagið
Fram á Seyðisfirði sendi ekki
Sigurður Ingvarsson nýkjörinn forseti ASA.
fulltrúa til þingsins og mun það
stafa af óánægju Seyðfirðinga
með lífeyrissjóðs- og orlofs-
húsamál ásamt fleiri stjórnunar-
málum ASA. Þessi óánægja
Seyðfirðinga á sér nokkra sögu
en eins og menn rekur minni til
gengu þeir af þingi ASA fyrir
tveimur árum vegna þessara
mála. Seyðfirðingar samþykktu
á aðalfundi sínum fyrir skömmu
að segja sig úr Alþýðusamband-
inu og hið sama hefur Verslun-
armannafélag Austurlands sam-
þykkt en félagið sendi ekki held-
ur fulltrúa á þing ASA. Óá-
nægja Verslunarmannafélagsins
er þó af öðrum toga og er ástæða
úrsagnar félagsins sú aö það tel-
ur sig ekki eiga samleið með
ASA í kjarabaráttunni. Versl-
unarmannafélagið er aðili að
Landssamtökum verslunar-
manna og telja verslunarmenn
hag sínum betur borgið innan
þeirra samtaka en ASA. Það
bíða því ýmis verkefni nýrrar
stjórnar ASA í sameiningarmál-
um verkalýðshreyfingarinnar
hér eystra. hb
Sambandsstjórnarfundur LÍV
Átelur afskipti ríkisvalds
af kjarasamningum
Sambandsstjórn Landssam-
bands íslenskra verslunar-
manna hélt fund á Iðavöllum
dagana 29. og 30. október sl.
Fundurinn mótmælir harðlega
afnámi samningsréttar verka-
lýðshreyfingarinnar og skerð-
ingu kjarasantninga. í frétt frá
sambandsstjórninni segir síðan
orðrétt:
„Fundurinn minnir á að í rétt-
inum til þess að semja um kaup
og kjör felast ein mikilvægust
réttindi - bæði einstaklingsins
og verkalýðshreyfingarinnar í
heild.
Síendurtekin afskipti ríkis-
valdsins af samningum verka-
lýðshreyfingarinnar eru óþol-
andi og eiga ekki að getta gerst
í þjóðfélagi sem byggir tilveru
sína á lýðræðislegum grunni.
Þessi afskipti ríkisvaldisns
vcikja samtök launafólks og
stuðla að því að félagsmenn
missi trú á gildi samstöðunnar á
sama tíma og atvinnurekendur
hafa styrkt sín samtök verulega.
Brýnasta verkefni verkalýðs-
hreyfingarinnar er að brjóta á
bak aftur afskipti ríkisvaldins af
kjarasamningum.
Því skorar fundurinn á verka-
lýðsfélög um allt land að standa
saman í þessu mikla hagsmuna-
máli íslensks launafólks."
.......................>S
- jólakorta 20%
Tvöföld iólakort:
Tvöföld jólakort
Mynd nr. Fjöldi
Mattáf. Glansáf.
o
Q.
Sendandi:
Nafn.
□ □ □ □
□ □ □ □
Einföld jólakort:
□ □ □ □
□ □ □ □
Ath. Lág-
markspöntun
er 10 kort
eins.
afsláttur til
30. nóv.
Dynskógar 4
Pósthblf 128 - 700 Egilsstaóir
Sími 97-11699
Sími
Heimili .
.Póstnr.......Póststöð .