Austurland - 17.11.1988, Page 5
FIMMTUDAGUR, 17. NÓVEMBER 1988.
5
Helgi Seljan
Nokkrar „feil“nótur í nóvember
Ný ríkisstjórn hefur tekið við
og auðvitað eru það tíðindi
haustsins hvað sem menn ann-
ars vilja um hana og áform
hennar segja.
Hún byrjaði sem betur fer
ekki með neinum allsherjarlof-
orðum um gull og græna skóga,
en alltof lítið nýtt var að finna
í farteskinu, sem fögnuð gæti
vakið, enda útlitið í mörgu ekki
það bjartasta. En gott og vel,
vonbrigðin ættu ekki að verða
eins mikil, þó ekki takist allt
sem skyldi.
Naumur meirihluti samtals -
minnihluti í raun gagnvart fram-
gangi allra meginmála - veldur
vissulega mikilli óvissu og
kvíða, en ætti að þjappa stjórn-
arliðum saman um allt það, sem
skipt gæti sköpum um framtíð
stjórnarinnar.
Og meðan verið er að vinna
að úrlausn brýnasa vanda og
verði það gert af viti og sann-
girni þá verður ábyrgðarhluti
þeirra mikill, sem fella þörf mál,
sem t. d. varða fjárlagagerð.
Miðað við það eðli þessara
stjórnar að víkja frjálshyggju úr
sessi og efla félagsleg úrræði
sem allra mest, þá væri það sýnu
alvarlegast, ef það yrði Kvenna-
listinn, sem aðeins andstöðunar
vegna veitti ríkisstjórninni náð-
arhöggið.
Talandi um Kvennalistann þá
voru vonbrigði mín mikil með
afsvar þeirra - algert og um-
hugsunarlaus - við þeirri beiðni
að taka þátt í umræðum annarra
félagshyggjuafla - að vera ekki
einu sinni til viðræðu um tii-
raun, heldur setja fram hinn
barnalega brandara um að allir
færu í eina sæng, eins og það
væri nú auðveldasta og greið-
færasta leiðin.
Vonandi er þetta vendipunkt-
urinn í þjóðmálaþróun hér - ég
sagði vonandi, því kyngreind,
ópólitísk samtök, sem skila
auðu, þegar á reynir eiga ekki
heima í litrófi þjóðmálanna. En
Alþýðubandalagið tók áhættu -
þurfti í raun að sætta sig við um
margt óaðgengilega kosti, en
engu að síður taldi ég að í þess-
ari stöðu yrði að axla þessa
ábyrgð og leita þeirra leiða í
miklum vanda, sem léttbærastar
yrðu fyrir alþýðu þessa lands.
Eftirleikurinn hvað varðar
utanríkismálin var svo með af-
brigðum óhugnanlegur en kom
auðvitað ekki á óvart.
Kverkatök Nato og Kanans á
báðum samstjórnarflokkum
okkar koma engum í opna
skjöldu, en það að Nato skuli
ekki einu sinni leyfa það að Páll
Pétursson verði formaður utan-
ríkismálanefndar, hvað þá að sá
hræðilegi herstöðvaandstæðing-
ur Hjörleifur Guttormsson
komi þar nokkuð nærri varafor-
mennsku, það er blátt áfram
sönnun hins soramengaða hug-
arfars, sem stundum hefur verið
kennt við hernám hugans.
Svo er best að draga ekki úr
því heldur, hvert áfall það var
mér, að sjá forseta þjóðarinnar
sitja í félagsskap þeirra þýja,
sem Nato og Kanar eiga frægust
hér. Um það hef ég engin frek-
ari orð.
En aftur að virkileika stjórn-
málaástandsins. Snöfurlegar
yfirlýsingar fjármálaráðherr-
ans, formanns okkar, um skatt-
lagningu fjármagnsgróða góð-
ærisins vöktu vissulega vonir um
að öðru vísi yrði tekið á málum
og enn skal ekki örvænt þar um,
því á einmitt efnd þessara orða
fer öðru fremur um afkomu Al-
þýðubandalagsins í þessu
stjórnarsamstarfi.
Fjárlagafrumvarpið nú olli
því ærnum vonbrigðum, þó all-
ur sá flýtir og ónógur undirbún-
ingur sem til staðar var hafi sett
þar mark sitt á.
Pað er hins vegar ekki traust-
vekjandi að finna þar helst
happafeng fjármagnsgróðans að
leggja söluskatt á happdrætti
líknarfélaga, ýmissa félaga fatl-
aðra og íþróttafélaga - að sjá
þann helstan kost að minnka
framkvæmdagetu SÍBS á fimm-
tíu ára afmæli þess, að hefta
framhald DAS heimilanna og
draga úr öryrkjahúsnæði ÖBÍ,
það eru einfaldlega ekki gæfu-
merki.
Það er heldur ekki nóg að
leggja þannig á breiðu bökin
eins og segir í þesu frumvarpi,
að fólk með 60 - 70 þúsund
króna tekjur skuli ekki bera telj-
andi byrðar af aukinni skatt-
heimtu. Og þó - hvernig skyldi
nú eiga að sleppa þessu
lágtekjufólki við vörugjaldið,
þó við skulum vona að þar takist
gæfulegar til en oft áður.
Ég ber ugg í brjósti, þó ég sjái
einnig ákveðna tilburði í rétta
átt með nýjum skattþrepum
tekju- og eignarskatts.
En blessaður matarskatturinn
margfrægi ku eiga að blíva.
Nú sé ég að félagi Svavar hef-
ur komiö nokkrum veigamikl-
um atriðum að til lagfæringar í
sínum málaflokki og auðvitað
eiga þeir Ólafur Ragnar þar
heiður skilinn.
Sömuleiðis vop.a ég að sama
verði upp á teningnum, þegar
félagi Steingrímur fer á stúfana
með jarðgangagerðina fyrir al-
vöru, ef stjórninni verður ein-
hvers lífs auðið.
Hins vegar verður þriðji fé-
laginn - Ólafur Ragnar sá ör-
iagavaldur í krafti embættis
síns, sem mest á mæðir og mestu
skiptir, hvernig til tekst hjá. Ég
Helgi Seljan.
sé marga Ijósglætu þar, en á
margt ber skugga.
Ég harma t. d. að margsvik-
inn Framkvæmdasjóður fatl-
Skólamót Austurlands í
handknattleik og knattspyrnu
fór fram í Neskaupstað í síðustu
viku. Mót þetta var fyrir 7. bekk
og yngri og tóku 7 skólar þátt í
mótinu að þessu sinni.
Til úrslita í drengjaflokki í
handknattleik léku Egilsstaða-
skóli og Seyðisfjarðarskóli og
sigruðu Egilsstaðabúar með 19
Skinfaxi
5. tölublað Skinfaxa, tímarits
ungmennafélaganna, er komið
út. Skinfaxi er að nokkrum
hluta tileinkaður ungmennafé-
laginu Tindastól á Sauðárkróki
en íþróttafólk þaðan stendur nú
framarlega á landsvísu. Nefna
má meistaraflokkslið Tindastóls
í körfuknattleik sem er nú kom-
ið í Úrvalsdeildina, en viðtöl eru
við Val Ingimundarson, þjálfara
og leikmann með liðinu og Eyj-
ólf Sverrisson. Knattspyrnu-
menn Tindastóls eru í 2. deild
og síðast en ekki síst má nefna
Lilju Maríu Snorradóttur sem
stóð sig frábærlega fyrir stuttu á
Ólympíuleikum faltaðra í
Seoul.
í Skinfaxa er einnig sagt frá
undirbúningi fyrir 20. landsmót
UMFÍ sem verður haldið að
Varmá í Mosfellsbæ árið 1990.
Bráðskemmtilegur skákþáttur
Jóns L. Arnasonar er á sínum
stað og margt margt fleira.
Fréttatilkynning
aðra skyldi aðeins fá það svarta-
lágmark í framlagi, sem nær því
ekki einu sinni að hann haldi
raungildi sínu milli ára. Par
hefði félagi Ólafur Ragnar mátt
sýna meira örlæti - og hefði
hlotið margra þakkir og sýnt að
hann gerði mun þarfra verka og
óþarfra.
Ég hefi hins vegar boðið hon-
um að bæta ráð sitt á einfaldan
hátt og „ódýran“ og bíð þess að
svo verði.
En hvað sem öllum fjárlaga-
tölum líður þá skulum við ekki
gleyma því sem allt snýst um -
framtíð atvinnulífs á lands-
byggðinni þar sem uppsprettur
þjóðarauðsins eru gjöfulastar,
og ákveðna lífskjarajöfnun í
þjóðfélaginu. Takist að snúa við
mörkum gegn 9. í telpnaflokki
í handknattleik léku til úrslita
Grunnskóli Neskaupstaðar og
Seyðisfjarðarskóli og báru
Norðfirðingar sigur úr býtum
með 5 mörkum gegn 2.
Grunnskóli Neskaupstaðar
og Reyðarfjarðarskóli léku til
óheillaþróun undangenginna
ára, því misgengi sem öllu öðru
misgengi er alvarlegra milli
landsbyggðar og suðvestur-
horns, takist það væri þessi
stjórn ekki aldeilis til einskis
mynduð. Og ef til viðbótar verð-
ur hægt að koma einhverjum
böndum á frjálshyggjudraug
launamisréttisins, þá hefur ekki
til einskis verið erfiðað.
Petta skiptir sköpum. Félög-
um okkar í ríkisstjórn og á Al-
þingi skal allrar auðnu óskað í
því vandasama verkefni. En af
þeim verkum verða þau dæmd
og eins við hin sem studdum þau
og stuðluðum að stólasetu
þeirra nú. Og gleymum því ekki
hverjir kveða þar upp endanleg-
an dóm að leiðarlokum. Fram-
tíð þessarar þjóðar, byggðin í
landinu, lífskjör alþýðufólks
eru í veði, hvorki meira né
minna.
ínóvemberbyrjun '88
Helgi Seljan
úrslita í drengjaflokki í knatt-
spyrnu og sigruðu Norðfirðing-
ar með 5 mörkum gegn 3. I
telpnaflokki í knattspyrnu léku
til úrslita Grunnskóli Neskaup-
staðar og Hafnarskóli og sigr-
uðu Norðfirðingar með 6 mörk-
um gegn 3. ÓS/hb
Mikið og glæsilegt úrval af kertum,
serviettum, serviettuhringjum,
ilmkertum, ilmjurtum og reykelsi
Laufskálinn
Nesgötu 3 Neskaupstað S 71212
NESKAUPSTAÐUR
Til íbúa
Neskaupstaðar
Nauösynlegt er að allir séu á réttum staö í
íbúaskránni 1. desember 1988
Því eru allir þeir sem flutt hafa aösetur og ekki
tilkynnt aðsetursskipti til bæjarskrifstofunnar
áminntir um aö gera það sem fyrst
Bæjarstjóri
Skólamót í handbolta og fótbolta
Norðf irðingar sigursælir