Austurland - 15.12.1991, Page 5
JÓLIN 1991.
5
Hún barði að dyrum eitt kyrrlátt kveld
með kvíða og spurn í augum.
Með löngu kulnaðan æskueld
óróleg, spennt á taugum.
Hún spurði hvort ætti ég eitthvert ráð
örvingian hjartans að sefa.
Hún leit á mig næstum sem í náð
nötrandi köld í efa.
Mér vafðist auðvitað tunga um tönn
við tregafullt andvarp heitt.
Þó einlægni sorgar mér virtist sönn
ég sáralitlu gat breytt.
Hún mælti: Mín ógæfa er eigin sök
og ástæðan: Göróttar veigar.
Því aldrei var spurt um auðnunnar rök
en allar vonirnar feigar.
f... ,* V'ÍÓ
Ein mynd mér geymd
Og andvarpið hennar mitt hjarta skar
en hollráð átti ég fá.
Hún sagði: Af vegi svo brátt mig bar
hve beisk var mér æskan þá.
En harður og kaldur heimur var
og heimtaði allt mitt pund.
við óskum og þránt fékkst aldrei svar
uns öll voru lokuð sund.
Á burtu hún fór og bar með sér
sín blæðandi hjartasár.
Hún grét: Ég ein mínar byrðar ber
og beisk eru harmsins tár.
Þú hlustaðir á mitt óráðshjal
en enga ég huggun fann.
Því áfram glíma við skugga skal.
Ég skelfist minn hugarrann.
Hú kvaddi veröld eitt vímukvöld
með vilja hún stytti för.
í huga mér falla húmsins tjöld.
Ég hafði ei nokkur svör.
Og tregans samviska tekur völd
nú tær er i huga geymd:
F-inmana sál er kom um kvöld
í kröm sinni og myrkri eymd.
Hve vanmáttug oftast erum við
í annarra sálarkvöl.
Þó gjarnan vildum þar leggja lið
og létta þrautir og böl.
Við getum litlu til bóta breytt
er btilvaldur herðir tök.
Og krefur um fylgd til feigðar greitt
þá falla.öll lífsins rök.
Helgi Seljan.
1;
Helgihald í Norðfjarðarprestakalli um hátíðirnar
15. desember:
Aðfangadagur:
Jóladagur:
Annar jóladagur:
Gamlarskvöld:
Fjölskyldumessa kl. 1030.
Fermingarbörn aðstoða. Lúsíuleikur
krafcka úr barnastarfinu.
Aftansöngur í Norðfjarðarkirkjukl. 1800.
Hátíðarmessa í Norðfjarðarkirkju
kl. 1400. Barnakór Nesskóla syngur í
messunni.
Skírnarguðsþjónusta kl. 1515.
Messa á sjúkrahúsinu kl. 1030.
Aftansöngur í Norðfjarðarkirkju kl. 1800.
Prestur í þessari messu ersr. Þórhallur
Heimisson.
Ath.: Sætum verðurraðað upp í Safnaðarheimilinu þessa hátíðardaga og
þar verður hægt að fylgjast með og taka þátt í athöfnunum.
Sóknarprestur
laugardaginn 14. desember og sunnudaginn 15. desember frá kl. 1800
Glæsilegt hlaðborð með miklu úrvali
heitra og kaldra kjöt- og sjávarrétta
Ágúst Ármann Þorláksson og Egill Jónsson
leika aðventu- og jólalög fyrir matargesti
Boröapantanir í síma 71321 - Verö kr. 1900
Börn 6-12 ára 1/2 verö - Frítt fyrir börn 6 ára og yngri
«1 Stúkci Egiis rauðct
laugardaginn 14. desember
Trúbadorarnir Daníel og Einar halda uppi fjörinu til kl. 3°°
Porláksmessa í Egilsbúð
Hádegi kl. 12 - 14
Þorláksmessuskata
Kvöld kl. 18-21
Pizza hlaðborð
boreL
NESKAUPSTAÐ r 71321