Austurland


Austurland - 15.12.1991, Page 11

Austurland - 15.12.1991, Page 11
JÓLIN 1991. 11 Á bernskuárum prentsmiðju og blaðs Óskar Björnsson segir frá störfum sínum í Nesprenti og kynnum af blaðinu Austurlandi á árunum 1951 -1953 Óskar Björnsson er Norðfirð- ingur í húð og hár og hefur búið í Neskaupstað nánast allt sitt líf. Hann hefur fengist við ýmislegt á lífsferlinum en í þeirri frásögn sem hér fer á eftir greinir hann frá störfum sínum í Nesprenti á árunum 1951 - 1953 en á þeim árum birtist einnig eftir hann margvíslegt efni í vikublaðinu Austurlandi. Pað er vel til fund- ið að rifja upp sitt af hverju sem gerðist á bernskuárum prent- smiðjunnar og blaðsins en í ág- úst sl. voru einmitt liðin fjörutíu ár frá því að prentvélar Nes- prents hófu að snúast og Aust- urland hóf göngu sína sem viku- blað. Gefum Óskari Björnssyni orðið: Tilkoma prentsmiðju markaði tímamót Pað þótti miklum tíðindum sæta þegar Bjarni Pórðarson stóð fyrir því árið 1951 að prent- smiðja var keypt til Neskaup- staðar. Megintilgangurinn með prentsmiðjukaupunum var sá að hefja útgáfu á prentuðu viku- blaði sem yrði málgagn sósíal- ista. Petta blað sem fékk nafnið Austurland hóf aðkoma út í ág- úst 1951 og hefur komið út síðan. I þann mund sem starfræksla prentsmiðjunnar var að hefjast bauð Bjarni Pórðarson mér að starfa í henni sem aðstoðarmað- ur prentarans. Ég þáði starfið og gegndi því tvö ár eða svo og ég verð að segja að þessi tími í prentsmiðjunni er um margt eftirminnilegur. Störfin sem ég sinnti í prent- smiðjunni voru fjölþætt. Ég vann við samröðun, heftun og fleira í þeim dúr en einnig fór ég snemma að handsetja og ann- ast prentun. Ég prentaði Aust- urland á þessum árum og sinnti einnig smáprenti í lítilli prentvél sem prentsmiðjan átti. Pá rukk- aði ég gjarnan fyrir prentsmiðj- una. Ég vann með tveimur prent- urum í Nesprenti. Fyrsti prent- arinn var Sverrir Jónsson og gekk okkur ágætlega að starfa Sverrir Jónsson. saman. Sverrir var hrjúfur á yfirborðinu og ómannblendinn en í reyndinni var hann indælis- drengur í alla staði og skarp- greindur. Árið 1953 leysti Ingvar Bjarnason Sverri af hólmi og starfaði ég með Ingvari skamma hríð. Ingvar var ger- ólíkur fyrirrennara sínum. Hann var opinn og glaðvær og í reyndinni hinn skemmtilegasti vinnufélagi. Aðalþátturinn í starfi prent- smiðjunnar fyrstu árin var setn- ing og prentun Austurlands og var setningin helsta viðfangsefni þeirra Sverris og Ingvars. Mér er afar minnisstætt þegar verið var að prenta fyrsta tölublað Austurlands sem kom út 31. ág- úst 1951. Þegar við vorum ný- byrjaðir að prenta blaðið bilaði rafmagnsmótor prentvélarinnar og við þurftum því að ljúka prentuninni með því að hand- snúa vélinni. Það var afar þungt og erfitt að snúa vélinni með höndum og skiptumst við Sverr- ir á um að gera það ásamt Bjarna Þórðarsyni ritstjóra. Við fengum sár í lófana við þetta verk og ég man að Bjarni vafði rauða tóbaksvasaklúta um hendur sér til að hlífa þeim. Vélarnar í Nesprenti voru keyptar gamlar og voru þær í reyndinni heldur lélegar. Það þurfti mikla natni við að halda þeim gangandi og naut prent- smiðjan oft hjálpar góðra og út- sjónarsamra iðnaðarmanna í bænum þegar bilanir herjuðu. Samstarfið við Bjarna Samskipti okkar prent- smiðjumanna við Bjarna Þórð- arson voru mikil. Bjarni var í reynd framkvæmdastjóri Nes- prents og eins var hann ritstjóri Austurlands svo segja má að er- indi hans í prentsmiðjuna hafi verið af ýmsum toga. Bjarni var hamhleypa til allra verka og skrifaði Austurland að langmestu leyti einn í hjáverk- urn auk þess sem hann prófarka- las blaðið og braut það um í samráði við prentarann. Það var gott að vinna með Bjarna og alltaf afar líflegt í kringum hann. Alltaf gat hann fyllt blað- ið af áhugaverðu efni og ef vant- aði efni í blaðið á lokastigi vinnslunnar þá átti hann eilíf- lega eitthvað í pokahorninu til að skrifa um og það gerða hann þá á staðnum. Eins og fyrr segir bar Bjarni Óskar Björnsson Lífssaga jjji Skín sól skyggni vex þoka þétt þýtur braut öldur yggldar óðum lægja net nylons ný liggja nálgast nón nokkuð dregið vex veiði veður síld magnast myrkur minnkar birta netum náð nú heim. 2. Vetur víkur vor kemur fannir flýja frost minnkar óðum eflist árgæzka fé fæðir fjöll blána gras grænkar grær jörðin kvikt kvakar kallar sumar! heyr! haust hrópa fuglar syngja st'ðan: sæll vetur! 3. Helzt hregg hríð dynur hugsar heili höfuð lamast maður mæðist minnka lungu förlast fótum fimt hreyfast fjarar fjör fölnar líf augu eldast engin glæta hönd herpist heilsa bilar endar ævi öllu lokið. Ljóð þetta er ort um líkt leyti og Óskar hóf að starfa í Nesprenti. ábyrgð á rekstri prentsmiðjunn- ar og á erfiðum tímum hljóp hann oft persónulega undir bagga til að halda fyrirtækinu gangandi. Kaupgreiðslur til okkar starfsmannanna réðust oft mjög af því hvernig gekk að innheimta skuldir en ég man að ég hafði um 2000 kr. í mánaðar- laun á þessum árum. Okkur Bjarna kom vel saman og það var skemmtilegt að ræða við hann um öll mál. Bjarni var geysilegur íslenskumaður og skrifaði góðan og kjamyrtan texta en samt var hann alltaf til- búinn að hiusta á ráðleggingar okkar prentsmiðjumanna. i) Leyndarmálið Smásaga Þegar frú Ebba heyrði lyklinum stungið í smekklásinn þaut hún út í forstofuna. „Góðan daginn. elskan", sagði hún og hljóp upp um hálsinn á manni sínum. Hann ieit undrandi á hana, svona móttökum var hann ekki vanur. „Flýttu þér úr frakkanum og komdu inn í stofu", sagði hún glaðlega. „Ég þarf að segja þér dálítið“. Hún hjálpaði honum úr frakkanum, en varð um leið litið framan í hann í speglinum. „Mér sýnist þú vera svo þreytulegur", sagði hún. Hún gat samt ekki stillt sig um að brosa að sjálfri sér í speglinum, þar sem hún stóð við hlið hans. „En þú ert vel útlítandi", sagði maður hennar, og reyndi að leyna gremju í röddinni. O, það er bara ferðin til Stokkhólms, sent hefir haft þessi áhrif á mig„, sagði hún hlægjandi og dró hann inn úr dyrunum og inn I stofu þar sem hún settist á uppáhaldsstól sinn. „En ef þú hefir haft of mikið að gera, eða eitthvað hefir á móti blásið, mundu þá að gleyma því fljótt, því við höfum enskt buff til miðdags. Svo er það líka þetta sem ég þarf að segja þér en það er betra en alit heimsins buff. Geturðu getið upp á því?“. Hún leit brosandi á hann. Hann virtist ekki skilja. „En ef ég segði þér að þetta er dálítið, sem þú hefir óskað þér í öll þau fimm ár, sem við höfum verið gift, gætirðu samt ekki getið upp á því?“. Hann leit spyrjandi á hana. Það vottaði ekki fyrir skilningi hjá honum. „Nú, jæja“, sagði hún glaðlega, „karlmönnum geðjastekki að geta“. Hún settist í kjöltu hans og lagði handleggina um háls hon- um og nálgaðist með litla rauða munninn að eyra hans. „Nú skal ég hvísla þessu að þér, yndiö mitt“, sagði hún hátt. „Ég er nteð barni. Ertu ckki glaður?“. Hún strauk létt yfir hár hans. „Ég varð fyrst viss um þetta í dag. Ég var hjá lækni og hann sagði aö það væri ckki um að villast". Hann þagði. „Já, en þú ert ekki vitund glaður“, sagði hún vonsvikin. „Ég hélt einmitt að þig langaði til að cignast börn, en þú ert bara súr á svipinn". „Ég hef líka verið hjá lækni í dag“, sagði hann scinlega. „Eins og þú segir vil ég gjarnan eignast börn, cn ég fékk að vita að ég gæti það alls ekki". Sögu þessa þýcltli Óskur Björnsson og hirtist hún í Austurlandi. Svo skringilega vildi til að Óskar hafði úður samið smúsögu um núkvæmlega satna efni. Sú saga hefur aldrei hirst. Ingvar fíjarnason.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.