Austurland


Austurland - 15.12.1991, Blaðsíða 13

Austurland - 15.12.1991, Blaðsíða 13
JÓLIN 1991. 13 Rúmlega 40 manna hópur var mættur á bryggjuna á Seyðis- firði að morgni 11. júlí, förinni var heitið til vinabæjar okkar í Færeyjum Sandavogs. Uppistaðan í hópnum voru ungmenni úr Þrótti ásamt far- arstjórum. Nokkur seinkun var á Nor- rönu enda mikill fjöldi að ferð- ast með henni þennan dag. Af stað komumst við þó og lagst var að bryggju í Þórsmörk t' Færeyjum kl. 8 á föstudags- morgni, eftir rólega ferð í góðu veðri. Er í land var komið tók á móti okkur Sigurður Petersen skóla- stjóri sem er einn af frumkvöðl- um þessara heimsókna, sem nú hafa staðið í 23 ár. Fyrir okkur sem höfum staðið í þessum samskiptum lengi og vorum ekki að koma í fyrsta skipti var þetta eins og að hitta gamlan vin eða frænda. Þarna var einnig Pétur Elías en hann þekkja allir sem nálægt þessum samskiptum hafa komið. Þegar fólk og farangur var komið á land var lagt af stað til Sandavogs í alltof lítilli rútu, en hvað gerir það til þegar ungt fólk ferðast með eftirvæntingu um hvað komandi dagar bæru í skauti sér. Ef til vill með vænt- ingar um skemmtileg kynni sem endast myndu ævilangt, kannski hafa eftirvæntingarnar verið aðrar en reyndin er sú að þessi vinarbæjarsamskipti hafa hnýtt þau vinabönd sem aldrei eiga eftir að slitna. Móttökurnar í Sandavogi voru innilegar að vanda þótt ruðst væri inn í hádegismat á flestum heim- ilunum í þessum litla bæ. Allir fundu að þeir voru velkomnir og auðfúsugestir á Vestan-Stefnu, en svo nefnast 3 daga hátíðahöld sem þama fara jafnan fram hin síðari ár, á þeim tíma sem við komum í heimsókn. Tvö undanfarin skipti sem við inn frjáls til ráðstöfunar og flest- ir kusu að rápa í búðir. Síðdegis er svo stigið á skips- fjöl á nýjan leik, eftir fimm og hálfan sólarhring í þessu litla landi þar sem fólk er hlýtt og vinsamlegt og gestrisið með af- brigðum og síðast en ekki síst óstressað. Hópurinn stendur út á þilfari og horfir yfir Þórshöfn og vinkar til þeirra Sandavogs- búa sem fylgdu okkur til skips. (Einu sinni fylgdu nokkrir okk- ur alla leið til Seyðisfjarðar). Efst í huga allra er þakklæti og svolítill söknuður, en í bland tilhlökkun að koma heim. Allir strengja þess heit að láta þessi samskipti haldast áfram um ó- komin ár. Með þakklæti til frábærra ferðafélaga. Jóhann Tryggvason Stúlkur úr Sandavogi sigruðu í kappróðrinum á stefnunni og líka á Ólafsvökunni. Jóhann Tryggvason Vinabæjarheimsókn til Sandavogs sumaríð 1991 Alls konar menninga- og íþróttaviðburðir fara þá fram ásamt tilheyrandi dansleikjum og skemmtunum. íþróttaviðburðirnir á Vestan- Stefnu snúast að stórum hluta um okkar íþróttafólk. Færey- ingar eru miklir keppnismenn og á stundum tapsárir en þegar leik lýkur eru þeir eftir sem áður jafn góðir vinir og gætum við lært af því. Aðal íþróttaviðburðurinn á Vestan-Stefnu erþó kappróður- inn og eigum við þar engan hlut aðmáli. Þarerróið langt í öllum flokkum karla, kvenna, pilta og stúlkna. Þessu er lýst beint í út- varpinu og fjöldi fólks horfir á með ferðaviðtæki við eyrað, enda er hér um að ræða síðustu undankeppnina fyrir Ólafsvöku og upphefðin er mikil að verða krýndir Færeyjameistarar á Ólafsvöku. aði að leika við Tyrki í Gunda- dal. Þetta var góður dagur og í kjölfarið kom svo þriðjudagur að venju, síðasti dagurinn okkar í Sandavogi að sinni. Tveirleikir voru í knattspyrnu þennan dag en um kvöldið héldu gestgjaf- arnir okkur hina bestu veislu þar sem skipst var á gjöfum og vin- áttuböndin treyst enn frekar við söng og spjall fram á nótt. Snemma miðvikudags er haldið til Þórshafnar og dagur- höfum komið hafa Sandavogs- búar verið einstaklega heppnir með veður sem hefur gert það að verkum að öll skemmtun verður tilkomumeiri og glæsi- legri en þeir höfðu þorað að vona. Þeir eru jafnvel farnir að kalla þetta „íslandera veður“. Þann tíma sem Vestan-Stefna stendur yfir tvöfaldast eða meira íbúafjöldi þessa litla bæj- ar og stemmning eins og á kjöt- kveðjuhátíð, allargöturfullaraf Skipstágjöfumílokahófi, Jóhannis, KarlJóhannogJóiTryggva. fólki ungu sem öldnu, því allir taka í þessu virkan þátt. Fallegir þjóðbúningar og gallaklæðnaður blandast saman en allir njóta þess sem upp á er boðið og skemmta sér fram á rauða nótt í litla tívolíinu sem sett hefur verið upp í miðjum bænum. A mánudagsmorgni fer svo bærinn að taka á sig mynd hvers- dagsins enda þá bara heima- menn og 40 íslendingar eftir og íslendingarnir að fara í skoðun- arferð til Kirkjubæjar og víðar, sem endaði svo á landsleik í knattspyrnu í Þórshöfn, í boði Knattspyrnusambands Færeyja. Hið marg umtalaða færeyska landslið í knattspyrnu með húfuklædda markmanninn ætl- Smáauglýsing BÆKUR: Stcfjabækur Ólafs Gísla- sonar, Ncðribæ, Arnarf. NÝJAR ÁTT- IR ’89, TYGIN NÝJU ’90 og EITTTIG- IÐ NÝ ’91, fást í Kf. Eg., Ðókab. Hlöð- um og Bókav. AB & ES Seyðisf. V. á hók 750. Pönt.sími útg. 94-2253. ENG- INN SEND.KOSTN. Yngsta kynslóðin hefur jafnan verið með í Fœreyjarferðum. Vestan-Stefnan sett á íþróttavellinum í Sandavogi. fjRÆmENÐUiQAiw VJi > EFTIR JANE SMILEY OGNÞRUNGIN ORLAGASAGA ÚR BYGGÐUM ÍSLENDINGA Á GRÆNLANDI Bókaútgáfan Hildur AUÐBREKKU 4 - 200 K0PAV0GUR SÍMAR 91-641890 0G 93-47757

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.