Austurland - 15.12.1991, Blaðsíða 16
16
JÓLIN 1991.
Ung kona frá Neskaupstað,
Guðrún Kristín Einarsdóttir, er
nýkomin heim frá Peking í Kína
þar sem hún tók þátt í nokkurra
vikna námskeiði í hinni æva-
fornu lækningaaðferði Kín-
verja, nálarstungulækningum.
Ferðin til Kína var nokkurs
konar lokapuntkur hjá Gunnu
Stínu, eins og hún er kölluð í
daglegu tali, en áður hafði hún
stundað nám í eitt ár í sænska
Akupunktur skólanum, sem
veitir henni full réttindi til að
stunda lækningar með nálar-
stungum nánast alls staðar nema
á íslandi m. m. k. enn sem kom-
ið er.
Austurland átti stutt spjall við
Gunnu Stínu um þessi mál og
fyrst var að sjálfsögðu spurt um
tildrög þess að hún fór að læra
þessar lækningar, ein fárra ís-
lendinga sem hafa tekið þennan
skóla, á meðan fjölmargir hafa
farið á námskeið í þesum fræð-
um en það er ekki sambærilegt.
Óþarfa lyfjagjafir
vöktu áhugann
„Ég lærði röntgen-hjúkrunar-
fræði í Svíþjóð og var starfandi
þar þegar ég fór að hugsa um
hvort ekki væri nú hægt að kom-
ast hjá öllum þessum óþörfu
lyfjum sem dælt er í fólk í tíma
og ótíma og það er náttúrulega
bara samkvæmt hefðbundnum
læknavísindum. Égvar aðvinna
á endurhæfingadeild fyrir aldr-
aða og mér fannst alveg hræði-
legt hve miklu dælt var í fólkið
af lyfjum sem engan árangur var
hægt að sjá af í alltof mörgum
tilfellum.
Og þá fer maður að spyrja
sjálfan sig er ekki hægt að gera
eitthvað annað. Fólkinu líður
illa af öllu þessu lyfjaáti.
Þarna hitti ég svo íslenska
stelpu sem hafði mikinn áhuga
á nálarstunguaðferðinni. Hún
er hjúkrunarfræðingur og hún
hafði komist yfir nokkrar grein-
ar um nálarstunguaðferðina
sem við svo lásum saman og það
varð kveikjan að því að fara út
í þetta. Þarna var um allt aðrar
kenningar að ræða. Forvitnin
sem vaknaði við þennan lestur
varð að miklum áhuga svo ég
lét skrá mig í skólann sem er
viðurkenndur af sænska heil-
brigðisráðuneytinu. Til að fá
þar inngöngu verður að hafa
lækna-, hjúkrunarfræði- eða
ljósmóðurpróf og einnig fá
sjúkraliðar inngöngu. Námið
svarar til 40 punkta á háskóla-
stigi. Við vorum 10 sem útskrif-
uðumst að þessu sinni.
Sem fyrr segir er skólinn
viðurkenndur af sænskum heil-
brigðisyfirvöldum og maður fær
full réttindi til að stunda nálar-
stungulækningar í Svíþjóð og
einnig er prófið viðurkennt víð-
ar í Evrópu og í Bandaríkjun-
um. - En ekki á íslandi. Hér
Norðfirskur nálarstungulæknir
mega aðeins læknar stunda nál-
arstunguaðferðina en þó er vit-
að að örfáir sem hafa tekið
námskeið í þessum fræðum eru
að fást við nálarstungur oft af
mikilli vanþekkingu.“
Hérlendis er til reglugerð um
nálarstungulækningar og segist
Gunna Stína nú ætla að tala við
landlækni um þessi mál. Hún
segist halda að íslenska reglu-
gerðin sé ekkert frábrugðin
þeirri sænsku, þannig að það eru
læknar, hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar sem mega stunda
þessar lækningar að loknum til-
skildum prófum og þá sam-
kvæmt beiðnum frá læknum.
og þeir voru alveg í sjöunda
himni yfir að hafa fengið þetta
tækifæri. Áður en konan var
skorin var tveimur nálum 25 -
Ferðin til Kína
„Við vorum tvær sem fórum
saman til Peking, ég og sænsk
stelpa og eftir þá ferð má segja
að mér finnist ég nánast vita
minna heldur en í upphafi.
Morgnarnir voru teknir í verk-
legt nám, síðan kom hvíldartími
og eftir hann tók bóklegi þáttur-
inn við. Við vorum látnar taka
þarna sjúklinga til meðferðar,
en það höfðum við reyndar
einnig gert í Svíþjóð. Þarna
voru allir kallaðir doktorar og
allt ákaflega virðulegt. Kínverj-
ar sækja margt til þessarar
lækningaaðferðar enda komin á
hana mikil reynsla, aðferðin er
yfir 5000 ára gömul.
Það er mikill munur að stinga
Kínverjana eða Vesturlanda-
búa. Kínverjarnir eru svo róleg-
ir og afslappaðir og þeir jafnvel
fá sér smáblund á meðan nálarn-
ar eru í þeim, svona um 20 mín-
útur venjulega. Meðferðin tek-
ur að jafnaði tíu skipti og þeir
ætlast ekki til þess að fá bata
eftir eitt eða tvö skipti sem því
miður er alltof algengt hjá Vest-
urlandabúum. Þetta er alveg
einstakt fólk svo rólegt að það
kvartar jafnvel ekki þótt það
gleymist. Það kemur bara aftur
næsta dag. Hver sjúklingur
greiðir sem svarar tíu aurum fyr-
ir hverja meðferð!“
Margvísleg notkun
nálarstunguaðferðarinnar
Flest höfum við heyrt af fólki
sem hefur látið stinga sig til að
hætta að reykja og við ofáti.
Gunna Stína segir að stungurn-
ar við reykingum og ofáti séu
annars eðlis en við venjulegum
sjúkdómum. Fyrst og fremst
virki nálarnar á fráhvarfsein-
kenni hjá þeim sem vilja hætta
að reykja, dragi úr þeim og þær
minnki matarlystina hjá ofætun-
um, enda sé hér ekki um sjúk-
dóma í þess orðs fyllstu merk-
ingu að ræða. Vcstræn lækna-
vísind geri alltaf skil á milli and-
legs og líkamlegs ástands sjúkl-
Hvernig varð
nálarstunguaðferðin til?
„Upphaf nálarstunguaðferð-
arinnar má rekja til þess að fólk-
ið á landsbyggðinni sem hafði
enga læknisþjónustu fór að
reyna að hjálpa sér sjálft. Það
fór að finna þess ákveðnu Doctor Shen, einn frœgasti og virtasti nálarstungulœknirinn í Kína
punkta og uppgötvaði að þegar og einnig í Evrópu.
30 cm löngum stungið niður sitt
hvoru megin við nafla hennar,
nálar voru settar að utanverðu
í hnésbæturnar og að síðustu
tvær nálar ofan við ökklana og
við þær var tengdur vægur
straumur. Síðan var skorið á
milli nálanna í kviðnum og
þarna lá konan hlægjandi án
allra óþæginda. Þetta sögðu þeir
að hefði verið stórfenglegri sjón
en orð fá lýst. Nálarstungur eru
ekki óalgengar við keisara-
skurði í Kína.
Kínverskir læknar sem læra
nálarstunguaðferðina læra
samhliða almenna læknisfræði
og kona sem ég kynntist var að
Ijúka ellefu ára námi með dokt-
orsritgerð. Af þessum ellefu
árum voru 6 í almennum lækna-
vísindum og 5 ár í nálarstung-
um.“
Mikill áhugi á
nálarstungum hér á landi
„Það er mikill áhugi á nálar-
stungu hér á landi en á meðan
þetta er ekki viðurkennd læknis-
aðferð vinnur fólk að þessu á
bak við tjöldin og það er í sjálfu
sér mjög slæmt mál því oft er
þetta gert af vankunnáttu. Ég
man eftir tilfelli í Svíþjóð sem
var mjög blásið upp. Þar hafði
kona verið flutt í lífshættu á
sjúkrahús eftirnálarstungu. Það
hafði fallið saman í henni
lungað. Það kom hins vegar
aldrei fram í fréttunum að sá
sem hafði stungið hana hafði
tekið viku eða hálfsmánaðar-
námskeið í aðferðinni og kunni
lítið til verka.
Allt sem viðkemur nálar-
stungum er tengt náttúrunni og
umhverfinu beint og óbeint.
Orkubrautirnar eru sem fyrr
segir 12, jafn margar og mánuð-
ir ársins, orkupunktarnir eru
taldir 365 jafn margir og dagar
ársins og kínversku spekingarn-
ir segja að veðráttan hafi mikið
Guðrún Kristín Einarsdóttir.
ingsins en í kínversku fræðun-
um er þetta eitt. Þegar sjúkling-
ur kemur til nálarstungulæknis
fer hann yfir sjúkrasögu við-
komandi og orsaka er leitað.
Tveir sjúklingar með samskonar
sjúkdóm fá oft sitt hvora með-
höndlunina.
En verður maður að hafa
sérstaka trú á lækningum? „Nei
alls ekki, þú læknast hvort sem
þú hefur trú á þessu eða ekki.
íslensk vinkona mín í Svíþjóð
var orðin illa farin vegna
það ýtti á þá linuðust verkirnir.
Síðan hefur þetta þróast í gegn-
um árin og nú er líkaminn al-
gjörlega kortlagður þar sem
orkubrautirnar 12 eru sýndar.
Enn eru þó að finnast nýjir og
nýjir punktar og í þessu eins og
öðrum læknavísindum er sífelld
framþróun.
Nálarstungulæknar vinna á
allt annan hátt en hefðbundnir
læknar. Það dugar ekki að koma
og segja ég finn til í hnénu og
láta mynda það o. s. frv. Nálar-
stungulæknirinn vill alla þína
sjúkdómssögu og fyrst af öllu
skoðar hann tunguna í sjúkl-
ingnum þvf samkvæmt þeirra
kenningu leiða allir sjúkdómar
þangað. Þeir telja 12 púlsa, 6 í
hvorri hendi og tekur það allt
að 30 árum að ná fullum tökum
á þeirri aðferð. Hver púls er
með sinn takt og þeir færustu
vita mikið um ástand sjúklings-
ins bara með því að taka
púlsinn."
Keisaraskurður
„Tveir af vinum mínum á
Doctor Shen meðhöndlar barn.
kölkunar í öxl og hreyfigeta
handleggsins orðin mjög tak-
mörkuð. Hún var búin að fara
til margra lækna og fékk enga
bót svo hún sagði við mig; „Það
er best að láta þig reyna þetta,
það er engu að tapa“. Eftir
fyrstu meðferðina gat hún
hreyft handlegginn mun meira
en áður og í dag er hún öll
önnur, en kölkunin í öxlinni er
enn til staðar en hreyfigeta
handleggsins er nú nánast eðli-
leg. Þetta gerist vegna þess að
orkuflæði líkamans er jafnað.“
námskeiðinu í Peking fóru og
horfðu á keisaraskurð þar sem
nálarstunguaðferðinni var beitt