Austurland


Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 20

Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 20
20 JÓLIN 1991. Sveinn Sigurbjarnarsson Mín fyrsta ferð Grettir á leið á Grímsfjall, Örœfajökull í baksýn. Hvíld að taka, finna frið fjöllin bak við heima við lóukvak og lœkjarnið Ijúft er að vaka og dreyma. Þessi vísa varð til hjá Hjalta Péturssyni á Snotrunesi er hann vaknaði og leit út úr tjaldi sínu sem stóð á bakkanum við hjal- andi lækinn í Loðmundarfirði og fjallið Gunnhildur með út- breiddan faðminn að honum fannst. Oft er maður hvíldinni feginn er í áningastað er komið og yfir- leitt fljótur að gleyma amstri dagsins. Ritstjóri blaðsins læddist að mér og áður en ég vissi af var hún búin að toga út úr mér lof- orð að skrifa einhverja ferða- sögu í jólablaðið, ég hlyti að eiga nóg af þeim. Éguppgötvaði mér til hrellingar að ég hafði ekki frá því ég var í Alþýðu- skólanum á Eiðum sett svona línur á blað, ef frá er talin um- sóknin um snjóbílsstyrkinn á Oddskarðið til Samvinnunefnd- ar samgöngumála á alþingi haustið 1969. En það er nú upp- hafið að bílaútgerð þeirri sem rekin er í dag af Benna og Svenna h.f. Á þessum árum var Elli Guðna fréttaritari f. sjónvarpið og einhvern góðviðrisdaginn kom hann með mér í snjóbíls- ferð upp á Oddskarð og tók myndir af gamla snjóbílnum sem við byrjuðum með og komu þær í fréttum af samgöngumál- um Norðfirðinga veturinn 1970. Vélin hjá Ella hefur líklega snúist nokkuð hægt í kuldanum sem var 14 - 16 gráður í mínus því þegar hún var sýnd virtist bíllinn komast á geysihraða og kófið frá honum kaffærði hann annað slagið. En einhversstaðar sat maður sem Gunnar Jónsson heitir og horfði á skjáinn og sá strax að þarna var verkfærið sem hann vantaði til að fara á Vatnajökul að vori 1971 með þyngdar- og þríhyrningamæl- ingaleiðangri Orkustofnunar ásamt öðrum bílum, sem ferða- og jöklafarinn Guðmundur Jón- asson átti og heitir annar Gusi og hinn Rati. Þetta átti að vera mánaðar ferð og áttum við að fara héðan að austan og mæta hinum á Grímsfjalli. Undirbúningur var töluverð- ur og síðustu dagarnir urðu svo til samfelldir hjá okkur Óskari Snædal tengdaföður mínum og Jóni Ragnari mági mínum við að útbúa bílinn en hann var 56 módel af Bombardiergerð og hét Grettir, og átti að vera íbúð með svefnherbergi, eldhúsi, stofu og kældu búri ásamt svöl- um með grindverki á toppnum. Brottfarardagurinn rennur upp um miðjan maí, leiðsögu- maðurinn sem kom að sunnan alvanur jöklafari um áraraðir hét Hörður Hafliðason og á ég honum margt að þakka því að hjá honum voru óþrjótandi heil- ræði og fróðleikur sem hann gaf mér varðandi jökla- og fjalla- ferðir, ég hafði varla farið á fjöll (utan einu sinni í göngu meðan ég átti heima í sveitinni), hvað þá stigið á jökul. Grettir er settur á vörubíl um hádegið 14. maí og haldið til héraðs, flugvélin lendir en með henni var ásamt Herði, talstöðin úr Gretti en hún var send í próf- un til Landsímaverkstæðisins í Reykjavík svo allt yrði nú í lagi því þetta gat orðið langur túr. Hún er sett í og prófuð, Gufu- nesradió snjóbíll Grettir kallar, yfir. Snjóbíll Grettir-Gufunes- radió svarar, yfir. Já Gufunes hvernig heyrir þú til okkar? Við erum staddir á Egilsstöðum og erum að prófa þessa stöð, yfir. Snjóbíll Grettir - Gufunes, þetta er í góðu lagi styrkur sterkur og mótun góð, yfir. Gufunes - Grettir það er gott að heyra, þakka þér fyrir bless. Grettir - Gufunes bless. Við komumst í náttstað á melunum innan við Bessastaða- ána og kvöldið fór í það að endurraða í Gretti og skipu- leggja húsnæðið í bak og fyrir og vorum við komnir í ró um miðnættið. Fuglar himinsins voru snemma á fótum og sungu mikið og fallega við árniðinn frá Bessastaðaánni eins og hjá Hjalta í Loðmundarfirðinum forðum. Og töluverður ferða- hugur var í okkur a.m.k. mér og svaf ég því ekki lengi frameft- ir, morgunmaturinn snæddur og haldið á brattann upp frá Bessa- stöðum eftir gömlu leiðinni er lá um fjallið til Jökuldals aðal- lega hestagötur en þó eitthvað lagfærðar. Þegar við nálgumst brúnina fer að kafa í aur og bleytu og töfðumst við nokkuð við þenn- an farartálma enda bíllinn drekkhlaðinn. Ekki tók betra við er upp var komið því þar var eins og fjörður yfir að líta allt á floti í krapa og þurftum við að krækja langar leiðir fyrir Sauða- banalækinn. En við fórum ekki nógu langt og vorum nærri á jökul komnir á bólakaf í bakkafullan Iækinn sem var frekar saklaus að sjá. „Heyrðu Svenni ég held að við verðum að leita okkur að betra vaði hér“ sagði Hörður þegar vatna fór inn á stofugólfið hjá okkur. Þegar það var búið og átti að fara af stað aftur þá kom bara klikk - klikk þegar svisslyklin- um var snúið en ég vissi ekki þá að það gat dugað a.m.k. á snjósleða ef hann fór ekki í gang að fara með faðirvorið afturá- bak, en Hrafn á Hallormsstað sagði að þetta hafi reynst sér vel, svo við rifum startarann úr þarna í krapanum en sáum ekk- ert svo við gerðum krossmark yfir honum og settum hann í aft- ur og viti menn klikkið kom ekki og Grettir í gang. Nú fór að ganga betur er við vorum komnir yfir á Miðheiðar- hálsinn og héldum eftir honum eins og hægt var en allsstaðar voru krapablár en yfir þær urð- um við að læðast á lítilli ferð og náðum að Sauðafelli um klukk- an 04.00 þ. 16. maí og tilkynnt- um Gufunesradiói staðar- ákvörðun og svissuðum stofunni yfir í svefnherbergi og vorum fljótlega komnir inn í drauma- landið. Þegar litið var út um svefn- herbergisgluggann morguninn eftir var svartaþoka og skyggni innan við 200m. Ákveðið var að halda áfram í Snæfellsskála eftir morgunmatinn. En startaranum hafði batnað við krossmarkið daginn áður eða úrtökuna og viti menn í gang eins og besta vekjaraklukka og var það allan túrinn. Greinarhöfundur á þeim tíma sem ferðin var farin. Leiðangur sunnanmanna hafði lagt af stað um svipað leiti og við að austan og lék okkur forvitni á að vita hvernig þeim gengi tek ég því talfærið og kalla á snjóbíl Gusa nokkrum sinnum, ekkert svar og ekki heldur frá Gufunesi enda ekki von því styrkmælirinn hreyfðist ekki á stöðinni og var því engin útsending og við gátum alveg eins kallað út um gluggann og paufuðumst því áfram í þokunni að Snæfellsskála og áfram í gegnum Þjófadalinn að Eyjabakkajökli rétt utan við Krikalónið og tókum þar náttstað. Tekin var törn á tal- stöðinni og hún rifin úr og opnuð, þar blasti við mikið vír- averk og lampadót sem hvorug- ur okkar bar skynbragð á og var henni lokað aftur og sett á sinn stað. Að morgni 17. maí var sama þokan en aðeins úrkomuvottur úr suðri og örlítill vindur. Þegar leið á morguninn birti örlitið og við tökum stefnu á jökulinn og ætlum að láta slag standa og keyra eftir kompás og korti. Einhver hafði stungið að mér litium SILVA kompás sem hékk í bandi um hálsinn á mér og ieið mér betur með hann þar þótt ég kynni lítið með hann að fara, en Hörður bjargaði mér út úr þessu eins og mörgu öðru, hann dró upp úr pússi sínu gamlan báta- Flotinn á Grímsfjalli, hluti af áhöfninni en leiðangursstjórinn lengst til vinstri. Hörður og Guðmundur að tanka bílana.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.