Austurland - 15.12.1991, Blaðsíða 25
JÓLIN 1991.
25
Viðskiptavinum okkar fjær
og nær sendum við
hugheilar óskir um gleðileg
jól og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem erað líða
Plastbönd hf. Neskaupstað
Gleðileg jól
GOTT OG FARSÆLT
KOMANDI ÁR
Þökkum ánægjuleg
viðskipti á árínu
sem er að líða
Flugleiðir
Umboðið Neskaupstað
Alþýðusamband
Austurlands
sendir Austfirðingum bestu óskir um
gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Trillukarlar
Bókaútgáfan Líf og saga hef-
ur gefið út bókina Trillukarlar í
ritstjórn Hjartar Gíslasonar
blaðamanns. í kynningu á bók-
inni segir m. a. Trillukarlar eru
merkilegir menn. Sumir segja
þá sérstakan „þjóðflokk" og í
umræðum á Alþingi fyrir nokkr-
um árum voru þeir kaliaðir
frekj uhundahópur.
í þessari bók segja 9 triliu-
karlar frá lífi sínu og starfi. Jafn-
framt því að segja frá glímu
sinni við Ægi konung og kvóta-
kerfið slá trillukarlarnir á létta
strengi og krydda frásögn sína
með sögum af skemmtilegum
atvikum og litríkum mönnum.
Einn þeirra 9 sem segja frá í
bókinni er Hjörtur Arnfinnsson
trillukarl í Neskaupstað og fer
hér á eftir smá kafli úr frásögn
hans.
Fyrsta sjóróðurinn fór ég að
kvöldi fermingardagsins. Þá fór
ég með bróður mínum á trillu í
hálfgerðan bræluróður. Þarna
fékk ég fyrst að kynnast sjóveik-
inni sem reyndar hefur alltaf
hrjáð mig en þessi fyrsti róður
var ekki merkilegur að öðru
leyti. Ég minnist þess að morg-
uninn eftir gekk ég til altaris en
það mun hafa verið hefð hjá
fermingarbörnum á þessum
tíma. Þetta reyndist afar erfið
altarisganga því ég var alls ekki
búinn að jafna mig eftir róður-
inn og veikindin sem honum
fylgdu. Fermingarsumarið fór
ég síðan á síld á Gullfaxa NK
en Þorleifur Jónasson var skip-
Hjörtur Gíslason.
stjóri á honum. Ég var ráðinn
sem hálfdrættingur og var held-
ur betur rogginn þegar fyrst var
látið úr höfn.
En glansinn fór fljótt af síld-
arsjómennskunni. Sjóveikin
herjaði og eftir viku þegar
áhöfnin var orðinn hrædd um að
ég dræpist var ég settur í land á
Raufarhöfn. Þetta var bölvuð
niðurlæging og ég var í marga
daga að jafna mig en var
heppinn, lenti hjá góðu fólki og
réði mig í vinnu á síldarplan á
Raufarhöfn. Á þessu plani starf-
aði ég allt þetta sumar og það
næsta og hafði gott af. Stað-
reyndin er sú að á yngri árum
ætlaði ég ails ekki að gera sjó-
mennsku að lífsstarfi og getur
vel verið að sjóveikin hafi þar
haft sitt að segja. í sannleika
sagt stefndi ég að því að verða
smiður en erfitt reyndist að
komast í slíkt nám og því fór
sem fór. Hitt er svo annað mál
að í dag er ég alsæll með hlut-
skipti mitt í lífinu og hef aldrei
séð eftir neinu sem tengist sjó-
mannsferlinum.
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum Austfirðingum fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða
CJ HÓTEL VALASKJÁLF
Hársnyrtistofa Maríu Guðjónsdóttur
Hrafnsmýri 1, Neskaupstað S* 71850
óskar viðskiptavinum sinum
Gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
með þakklæti fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða