Austurland


Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 27

Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 27
JÓLÍN 1991. 27 Við búum til jólasvein Fallegast er aö nota rauðan glanspappír í þennan jólasvein. Pú þarft ekki að fara nákvæm- lega eftir myndunum, sem fylgja hér, og stærðina getur þú haft eftir pappírnum, sem þú átt. í sjálfan jólasveininn þarftu hálf- an hring, eins og mynd 1 sýnir. Þú límir hann saman þannig að hann myndi keilu (mynd 2). Mynd 3 er andlitið, sem þú teiknar á hvítan pappfr og límir á keiluna, ofurlítið neðan við toppinn, eins og sést á mynd 8. Myndir 6 og 7 eru handleggirnir. Þeir eru búnir tii úr rauðum pappír, en bómull límd utan um úlnliðina. Límdu nú handlegg- ina á þar sem þú álítur að axlirn- ar eigi að vera. Myndir 4 og 5 eru stígvél, gerð úr svörtum pappír. Þau límir þú inn undir keiluna og framan og brettir upp tærnar. Nú er aðeins eftir að líma bómull á nokkra staði: á toppinn, það á að vera dúskur á húfunni, allt í kring að neðan, kringum andlitið, og loks er notuð bómull í skegg. Ef þú vilt gera meira fyrir jólasveininn þinn, getur þú búið til skíði neö- an í stígvélin hans og stungiö skíðastöfum í hendurnar á honum. Einnig mætti líma poka á bakið á honum. María og jólasveinninn Einu sinni var lítil stelpa sem hét María. Hún var sex ára og átti heima í pappakassa með mömmu sinni, það voru að koma jól en mamma Maríu átti enga peninga til að kaupa jóla- gjafir. Svo rann aðfangadagur upp. Enn hafði mamma Maríu enga peninga. Þegar María vaknaði sagði mamma hennar að jólasveinn- inn kæmi með jólapakka seinna í dag, en hann kom aldrei. Þegar María fór að sofa, sagði hún við mömmu sína: „Hann hefur gleymt mér“. Nei hann gleymdi þér ekki, hann hugsar til þín. María sofnaði ánægð yfir því að jólasveinninn hafði ekki gleymt henni. Og þegar María vaknaöi daginn cftir lá pakki frá jóla- sveininum við hliðina á henni. Þaö varfallegdúkka . . . ! Anna Karen Símonardóttir

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.