Austurland - 22.01.1998, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22 JANÚAR 1998
3
Blak
Það var enginn svikinn sem
lagði leið sína í íþróttahúsið í
Neskaupstað um helgina á blak-
leikina sem þar fóru fram. Þar
áttust við heimaliðin við Þrótt R.
í 1. deild karla og kvenna.
Kvennaleikurinn var nánast bara
formasatriði, heimaliðið gegn
ungum leikmönnum Þróttar R.
hafði tögl og hagldir í leiknum
allan tímann og er ekki hægt að
hrósa þeim leik. I stuttu máli var
hann tilþrifalítil! enda of mikill
styrkleikamunur á liðunum til
þess að um góðan leik gæti orðið
að ræða. Urslit 3-0. Hrinurnar
15-6, 15-4, og 15-9.
Karlaleikimir voru hreint af-
bragð, sérstaklega þó leikurinn á
laugardaginn þegar Þróttur R.
tapaði sínum fyrsta leik á keppn-
istímabilinu og hefði leikur
okkar liðs verið ögn yfirvegaðri
á föstudaginn hefðu þeir alveg
eins getað unnið þann leik líka.
Sá leikur tapaðist að mínu mati á
því að alltof margar uppgjafir
fóm forgörðum og móttakan á
köflum afleit. Þróttur vann
fyrstu hrinuna 15-12, tapaði
næstu 8-15 og þriðju 9-15, vann
þá fjórðu 15-10 en tapaði þeirri
fimmtu 7-15. Bestu menn leiks-
ins: Matthías Haraldsson, sem
átti ótrúlegan leik, er orðinn einn
af máttarstólpum liðsins þrátt
fyrir ungan aldur og svo Brynjar
Pétursson sem skilar sínu ef
hann fær tækifæri til þess. Leik-
urinn tók 115 mínútur.
A laugardaginn kom heima-
liðið mun ákveðnara til leiks og
vann fyrstu hrinuna 15-12, tap-
aði tveimur næstu eins og dag-
inn áður 9-15, vann þá fjórðu
15-8 og fimmtu hrinan var
algjört burst 15-2 og stóð þá ekki
steinn yfir steini hjá gestunum
sem létu mótlætið fara í taug-
amar á sér og klúðruðu nánast
öllu sem hægt var að klúðra.
Einn liðsmaður Þróttar R. fékk
að líta gula spjaldið fyrir ósæmi-
Maryam Petrov númer 5 var sá sem gerði út um leikinn í 5.
hrinunni í leiknum á laugardaginn. Þá Jyrst fengu Norðfirðingar
að sjá hvað íhonum býr. Ljósm: Eg.
lega framkomu og var það kór-
rétt hjá dómara leiksins Ólafi
Sigurðssyni.
Óhætt er að segja að Maryam
Petrov hafi gert út um leikinn í
tveimur síðustu hrinunum og
sýndi okkur þá í fyrsta skipti
hvað hann raunverulega getur.
Ef hann leikur svona það sem
eftir er keppnistímabilsins getur
Þróttur N. unnið öll lið í
deildinni. í heild lék allt liðið
betur en í fyrri leiknum og var
mun jafnara en daginn áður.
Það er skömm að lítilli
aðsókn á blakleikina á þessu
keppnistímabili. Boðið er upp á
blak í hæsta gæðaflokki á
Islenska vísu, aðgangseyri er
stillt mjög í hóf og það er
ókeypis aðgangur fyrir þá sem
greiða æfmgagjöld til blakdeild-
arinnar, þeir láta samt ekki sjá
sig. Hristið af ykkur slenið og
mætið á næstu leiki!
Stelpumar leika við IS syðra
á laugardaginn og verður þar
eflaust um hörkuleik að ræða.
tsá M
Qn
GeHð góö kaup á ulpum, tískufatnaði,
baHiafatnaði, íþfóttafatnaði og skóm
LækuHnn - System
Líafna^braut 2 Meskaupstað
Sími 4-771202
Eignir
Seg: Gleðjist ekki yfir þeim hlutum sem þér
eigið; í kvöld eru þeir yðar, á morgun
munu aðrir sitja yfir þeim.
Bahá'ulláh
Bahá'íar Neskaupstað
ÞORRABLO
Alþýðubandalagsins í Neskaupstað
verður haldið í Egilsbúð laugardaginn
31. janúar og hefst kl. 20.00
Miðasala fer fram á
Austurlands í Brennu
fimmtudaginn 29. janúar
kl. 17.00 -19.00.
Söngui) annálsgrín og gaman
Heiðursgestir: Ásgeir Magnússon
ogÁsthiIdur Lárusdóttir
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar
leikur fyrir dansi
Koma skal með trog í húsið milíi
kl. 15.00 -17.00 á þorrablótsdaginn.
Gosdrykkir verða þá seldir í Egilsbúð.
Pví fer fjarri að þetta verði síðasta
Stjóm ABN
Börkur NK 122
/
Oskum útgerð og áhöfn
til hamingju
með breytingarnar á skipinu
/
I skipinu er MMC vakumdæla
og ísdreyfingarkerfi
MÆ WMWM2L2L MWW*
Súðarvogi 7 104 Reykjavík s 581 1366 fax 581 1365
Sumaráætlun SmYril Line H998
-\998:
m/f ^0.rI^Fa3reVÍur^'\t\a^d''
WxygZ- ***£-Leirvíh a
Seyö\sll° \ oanf^0
Frá Seyðisfirði
Maí 28.
Júnf 4. - 11. - 18. og 25. v,_ A\sf\ö'~-- „rn'
Júlí 2. - 9. - 16. - 23. og 30. SeYð\. kim t ParM:
Ágúst 6. - 13. - 20. og 27.
September 3. og 8.* oð
Ber9en
'Brottförfrá Seyðisfiröi á fimmtudögum nema 8. september sem er þriðjudagur
Hringið og biðjið um áætlun og verðlista
^AaUSTFAR ehf.
710 SEYÐSFIRÐI - ® 472-1111 - FAX 472-1105