Austurland - 19.02.1998, Blaðsíða 8
Tilboð:
Londonlamb
líryddlegin Isri
Neutral oínæmisproíað sjampó og hárnæring
Eiginmenn - unnustar Sokkar
muniö Konudaginn, - úrvan
bjóöið Konunni . a\\a dagafrá kl.io.oo.j0
/ , o0
upp a steiK i NESBAKKI
tilefni dagíins «4771609 oa 8971109
Neskaupstaö 19. febrúar 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Fjarðarbrauð fjárfestir
Fjarðarbrauð ehf. sem rekur
bakaríið í Neskaupstað hefur
fest kaup á nýjum frystihefskáp
og nýjum bakaraofni. Að sögn
Bjarna Freysteinssonar standa
vonir til að með nýju tækjunum
náist um 25% vinnusparnaður
auk þess sem búast má við betri
framleiðslu. Bjami sagði að það
tæki um hálfan mánuð að
venjast og læra inná nýju tækin
en fljótlega eftir það mætti búast
við einhveijum vömnýjungum
frá bakaríinu. Kostnaður við
kaupin er á fjórðu milljón.
Fjarðarbrauð ehf. tók við
rekstri bakarísins í september
1995 og gekk reksturinn illa
framan af en á síðasta ári varð
mikill viðsnúningur í rekstrinum
og sagði Bjami að útlitið væri
nokkuð gott um þessar mundir.
Ástæður bættrar afkomu má
rekja til mikillar hagræðingar í
rekstrinum og meðal annars var
stöðugildum á síðasta ári fækkað
um þrjú og hálft. Sagði Bjarni
ennfremur að fækkun stöðugilda
hefði verið mætt með mikilli
vinnu eigenda bakarísins.
Talsverð samkeppni er á
brauð- og kökumarkaðinum í
Neskaupstað því vörur frá
Kristjánsbakaríi á Akureyri hafa
nú verið á boðstólunum í
Neskaupstað um tveggja ára
skeið.
„Nú mega menn ekki dotta upp við
staur án pess að verða magaspeglaóir"
Innflutningsfyrirtækið Austur-
bakki í Reykjavík og stjórnendur
Fjórðungssjúkrahússins í Nes-
kaupstað efndu til fundar s.l. laug-
ardag þar sem kynntur var sá
tækjabúnaður sem sjúkrahúsið
hefur verið að kaupa að undan-
fömu fyrir gjafafé ýmissa fél-
agasamtaka í Neskaupstað og
víðar af Austurlandi. Við þetta
tækifæri afhenti Reynir Zoéga
stjómarformaður Sparisjóðs Norð-
fjarðar sjúkrahúsinu að gjöf
650.000 krónur. Reynir, sem er
ákafalega orðheppinn maður,
sagði við það tækifæri að senni-
lega hefðu þeir í stjórn Spari-
sjóðsins verið eitthvað lasnir
þegar þeim datt þetta í hug.
Þessi búnaður sem nú var
sýndur gestum er speglunarbún-
aður sem nýtist við maga-, ristil-
og kviðholsrannsóknir og einnig
nýtist hann kvensjúkdómafræð-
ingum sem hingað koma svo og
við speglanir í liðum. I máli fram-
kvæmdastjórans, Kristins Ivars-
sonar, kom fram að án þeirrar
velvildar sem sjúkrahúsið nyti
meðal fyrirtækja, stofnana og
einstaklinga í fjórðungnum væri
óhætt að segja að það væri ákaf-
lega vanbúið tækjum. Þessi vel-
vild sem birtist í peninga- og
tækjagjöfum til stofnunarinnar
gerði það að verkum að hér væri
þróunin fram á við þrátt fyrir að
fé frá hinu opinbera til tækja-
kaupa á stofnunum sem þessari
væri skorið við nögl.
I máli Árna Þórs Árnasonar,
eiganda Austurbakka, kom fram
að hann telur Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað hafa sýnt
það og sannað, m.a. með þessum
tækjakaupum, að stofnunin væri
í sókn og brautryðjandi í þessum
málum á landsbyggðinni.
Læknamir Bjöm Magnússon
og Guðmundur Guðjónsson lýstu
hvernig tækið er notað og sagði
Björn að eftir að það var tekið í
notkun þá hefðu nokkrir tugir
Austfirðinga fengið ákveðna með-
höndlun við sjúkdómum sem
ekki væri víst að þeir hefðu
fengið hefði tækið ekki verið til
staðar, eða þá að þeir hefðu þurft
að fara á sjúkrahús á Akureyri
eða í Reykjavík til frekari rann-
sókna. Framkvæmdastjórinn bætti
þá við að það hefði enginn mátt
dotta upp við staur, svo sá hinn
sami hefði ekki fengið maga-
speglun og vitnaði hann þar til
ummæla sem höfðu voru eftir
spakvitrum manni hér áður fyrr.
A myndinni hér Jyrir ofan
sjást lœknar fjórðungssjúkra-
hússins, þau Björn Magnússon,
Kristín Guttormsson og Guð-
mundiir Guðjónsson en þau
létu sig auðvitað ekki vanta á
athöfnina.
Ljósm. Eg.
Bakararnir hjá Fjarðarbrauði ehf, Bjarni og Valur ásamt
Stefáni, einum starfsmanni fyrirtœkisins. Ljósm. Krist. J. Krist.
Siglingastofnun veitti ekki leyfi
Eins og sagt var frá í síðasta
tölublaði hyggjast Fjarðaferðir
hf í Neskaupstað kaupa nýjan og
stærri bát í stað Mímis. Búið var
að undirrita kaupsamning varð-
andi ákveðinn bát, en með þeim
fyrirvara þó að að siglingastofn-
un veitti atvinnuleyfi á bátinn.
Að sögn Magnúsar Sigurðsson-
ar, eins eiganda Fjarðaferða,
hefur það nú fengist staðfest að
stofnunin veitir ekki atvinnu-
leyfi fyrir þennan bát vegna þess
að skrokkurinn er ekki nægilega
sterkbyggður. Taldi Magnús
mjög ólíklegt að fyrirtækið
myndi ráðast í kostnaðarsamar
endurbætur vegna þessa báts
heldur yrði strax hafin leit að fljótt árangur og að nýr og betri
öðmm báti af svipaðri stærð. bátur kæmi til Neskaupstaðar
Vonaðist hann til að sú leit bæri fyrir vorið.
Slippfélagið
Málningarverksmidja SÍMI: 588 8000
Háþrýstislöngur og völcvatengi -SVN Vélaverkstæði ® 477 1603