Austurland - 19.03.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1998
5
Kynnig á frumathugunum að snjóflóðavörnum
Laugardaginn 21. og sunnudag-
inn 22. mars fer fram kynning á
niðurstöðum á frumathugunum
að snjóflóðavömum fyrir Dranga-
gilssvæðið í Neskaupstað.
Það var vorið 1997 að Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
h/f (VST) var falið að vinna
frumathugun að snjóflóðavöm-
um fyrir Drangagilssvæðið,en
þar verða fyrstu snjóflóðavam-
arvirki í Neskaupstað reist sam-
kvæmt framkvæmda- og
rammaáætlun Umhverfisráðu-
neytisins um uppbyggingu vama
gegn ofanflóðum á Islandi. VST
fékk Cemengraf í Frakklandi til
samstarfs um verkefnið, en þar
hafa um árabil verið stundaðar
rannsóknir og veitt ráðgjöf varð-
andi snjóflóð og snjóflóðavarnir.
Verkfræðingamir Flosi Sigurðs-
son og Gunnar Guðni Tómasson
unnu mest að verkinu af hálfu
VST en af hálfu Cemengraf
Francois Rapin. Auk þess hafa
landslagsarkitektamir Aðalheið-
ur Kristjánsdóttir og Aslaug
Traustadóttir unnið tillögur að
mótvægisaðgerðum og skipulagi
svæðisins umhverfis vamarvirkin.
Á laugardag frá kl 13-19 og
sunnudag frá 10-12 og 15-17
verður opið hús í fundarsal
Egilsbúðar. Þar verða verkfræð-
ingar frá VST, landlagsarkitekt-
ar,fulltrúi Veðurstofu, fulltrúi
frá Hönnun og Ráðgjöf, fulltrúi
Snjofloöaæfing í Oddsskarði
í síðustu viku var haldin viða-
mikil snjóflóðaæfing í Odds-
skarði en fyrir henni stóðu Al-
mannavamir í Neskaupstað og
Leitarhundasveit S.V.F.Í.. For-
svarsmenn æfingarinnar voru
þeir Guðbjartur Hjálmarsson í
Neskaupstað og Oskar S. Jóns-
son, svæðisstjóri Rauða krossins
á Austurlandi.
Mjög margir aðilar komu að
æfingunni og má þar nefna:
Fjórðungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað, Björgunarsveitin
Gerpir, lögregla, sjúkraflutning-
amenn, Almannavamir í Nes-
kaupstað og Reykjavík, Veður-
stofan og Neyðarlínan.
Úr austfirskum fréttum:
Hvað heitir íslenska fyrirtækið, sem SVN, SR-
mjöi og Samherji standa að, er keypti stóran
hlut í ameríska fyrirtækinu Atlantic Coast
Fisheries á dögunum?
Saga:
Hvað hét áróðursmeistari Hitlers?
Dægradvöld:
Hvað heitir nýjasta mynd Leonardo De Caprio?
íþróttir:
Hver varð fyrstur íslendinga til að vinna til
verðlauna á Ólympíuleikum?
Menning:
Hver þýddi bókina Birting eftir Voltair?
Fyrir börnin:
Hvað heitir apinn hennar Línu Langsokks?
Svör sendist til Vikublaðsins Austurlands,
Hafnarbraut 4, pósthólf 75, 740 Neskaupstað
og verða þau að hafa borist fyrir miðvikudaginn
25. mars. Samskonar getraun verður síðan
áfram í næstu blöðum. Dregið verður úr öllum
innsendum lausnum á fjögurra vikna fresti.
(verðlaun er geisladiskur að eigin vali frá
versluninni Tónspil í Neskaupstað
Framkvæmdasýslu ríkisins
ásamt heimamönnum til viðtals
um niðurstöður frumathugunar,
skipulags á umhverfi, mat á
umhverfisáhrifum, framkvæmda-
áætlun, veðurfari ofl. og verður
fundurinn eins og áður segir í
fundarsal Egilsbúðar. Bæjarbúar
eru hvattir til að fjölmenna á þá
kynningu.
Sunnudaginn 22. mars kl
13:00 verður síðan almennur
kynningarfundur í Egilsbúð á
niðurstöðum frumathugunar ofl.
þáttum.
Hönnum vefsíður fyrir fyritceki,
# stofnanir og einstaklinga
ELDSMIÐURIIMN
Sími: 478-1600
webmQsfer@eldhorn.is
Eldsmiðurinn - austfirskt 21. aldar fyrirtœki
Að sögn Guðbjartar gekk
æfingin mjög vel þó svo að
ýmsir vankantar hefðu komið í
ljós. „Það er jú einu sinni til-
gangur svona æfinga að finna
vankantana svo hægt sé að var-
ast þá ef raunverulegt snjóflóð
kemur“ sagði Guðbjartur í sam-
tali við blaðið.
„Snjófióðið" sem sett var á
svið fyrir æfinguna var mjög
stórt, eða 800 x 300 metrar og í
upphafi var talið að 12 til 25
manns hefðu grafist í fönn en í
ljós kom að þeir reyndust aðeins
8 og tókst að „bjarga" þeim
öllum.
Sigurður Ingvarsson Eiríkur Stefánsson
Eskifirði Fáskrúðsfirði
A að sameina verka-
lýðsfélög á Austurlandi?
MEÐ
Það hefur væntanlega ekki
farið fram hjá neinum að víða
um land er verið að sameina verka-
lýðsfélög, því hlýtur fólk að spyrja hvort ekki
séu einnig rök fyrir því að sameina verkalýðsfélög
á Austurlandi.
Skipulag verkalýðsfélaga á Austurlandi var
rökrétt og eðlilegt á þeim tíma er þau voru stofn-
uð. Það tók mið af landfræðilegum aðstæðum,
erfiðum samgöngum og takmarkaðri samskipta-
tækni, ásamt því að viðsemjendur voru að mestu
í heimabyggð.
Á síðustu áratugum hefur þjóðfélagið gjör-
breyst, samgöngur á landi miklu auðveldari, sími
er almenningseign, verkalýðsfélög eru flest með
starfsmenn og skrifstofur félaganna búnar tölv-
um og myndsendum sem gera öll samskipti auð-
veldari.
Félagar okkar gera þær kröfur til verkalýðs-
hreyfingarinnar að hún hafi á hverjum tíma í
fullu tré við samtök atvinnurekenda svo og öll
þau öfl sem vinna gegn jöfnuði í þjóðfélaginu.
Þær kröfur eru jafnframt gerðar að félögin bjóði
upp á mikla þjónustu, þau hafi opna skrifstofu,
bjóði upp á fræðslu, lögfræðiþjónustu, öfluga
orlofs og sjúkrasjóði, svo eitthvað sé nefnt.
Til að verkalýðsfélögin geti staðið undir þess-
um kröfum þurfa þau að laga sig að breyttum
aðstæðum. Hér á Austurlandi eru sextán stéttar-
félög innan ASÍ og er samanlagður félags-
mannafjöldi þeirra 3.347 manns. Við núverandi
skipulag eru 16 manns í forsvari fyrir félögin,
reknir eru 16 sjúkrasjóðir, 16 orlofssjóðir, gerðir
eru 16 ársreikningar o.s.frv. o.s.frv., allir eru að
gera það sama. Á sama tíma er ekki mannafli til
að sinna fræðslumálum, heimsækja vinnustaði
og vinna að kjara og réttindamálum á sameigin-
legum vettvangi.
Með sameiningu félaga verða færri starfs-
menn bundnir yfir bókhaldi og símsvörun á
skrifstofu, það gefur færi á því að sinna betur
vinnustöðunum og taka meiri þátt í hinni
sameiginlegu kjarabaráttu sem fer fram á vegum
landssambanda og ASI.
Á öllum sviðum þjóðlífsins eru gerðar kröfur
um meiri gæði fyrir sama eða minna verð, þar
geta verkalýðsfélögin ekki skorast undan. Ein
leið til þess er sameining verkalýðsfélaga og tel
ég hana eðlilega aðlögun að því þjóðfélagi sem
við búum við.
Sigurður Ingvarsson
MÓTI
Ég held að að mörgu leyti væri
skynsamlegra að efla sjálf-
stæði stéttarfélaga, auka þor þeirra
og aðstoð við þau til að gera sjálfstæða samninga
heima fyrir. Það er alveg ljóst að mörg stéttarfélög
hafa á undanförnum árum náð að gera sérkjara-
samninga heima fyrir og hefur það frumkvæði
sem þar hefur átt sér stað hjálpað öðrum til að ná
lengra og mætti þar af mörgu taka. Stéttarfélögin
hafa verið að bera sig saman hvort við annað
varðandi kaup og kjör og ýmislegt sem náðst
hefur fram á hinum ýmsu stöðum, hefur svo
færst yfir á næstu staði. Ég held að okkur væri
nær að leggja niður og sameina eitthvað af þeim
sérsamböndum sem við greiðum til því það er
fáránlegt að halda því bákni gangandi og hljóða
á sameiningu stéttarfélaga um leið. Ég las viðtal
við Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóra
Vinnuveitandasambandsins, og Jóngeir Hlina-
son, framkvæmdastjóra vinnumálasambandsins,
um sameiningu stéttarfélaga í Húnavatnssýslu.
Atvinnurekendavaldið fagnaði sameiningu fél-
aganna og óskaði þeim til hamingju og sagði að
sameiningin væri fagnaðarefni fyrir atvinnurek-
endur sem þyrftu þá að semja við færri aðila og
auðveldara yrði við að eiga fyrir atvinnurekend-
ur. Finnst mönnum það ekkert undarlegt að
atvinnurekendur skuli fagna sameiningu stéttar-
félaga með þeim hætti sem þeir gera, þeir sjá
auðvitað að hinar ýmsu órólegu deildir innan
verkalýðsfélaganna, sem erfitt hefur verið að
eiga við við á undanfömum ámm, verða ekki
lengur til staðar. Mergurinn málsins er að með
sameiningu þá er frumkvæði þeirra sem hafa
staðið sig vel þurrkað út og sama moðið látið
ráða ríkjum. Sú sameiningarhrollvekja og
hagræðingabrotsjór sem hefur riðið yfir þetta
þjóðfélag, t.d. sameining fyrirtækja og sveitar-
félaga með það að markmiði að fækka starfsfólki
á eftir að koma fram þó síðar verði í auknu at-
vinnuleysi. Sameingarúlfamir, sem vildu sam-
eina allar úthlutunarnefndir atvinnuleysisbóta í
hverjum landsfjórðungi á einn stað, hafa numið
á brott þá þjónustu sem veitt var í hverju byggð-
arlagi og gert atvinnulausu fólki mjög erfitt fyrir
og hver voru rök þeirra? Spamaður, ekki betri
þjónusta. í lokin þá vona ég að t.d. Verkalýðsfél-
ag Norðfirðinga fái áffam að vera sjálfstætt stéttar-
félag í friði fyrir gráðugum úlfum sameiningar-
kjaftæðis því ég tel að samningsstaða verkafólks
í Neskaupstað verði betri þannig.
Eiríkur Stefánsson