Austurland - 22.04.1998, Qupperneq 1
Mikið að gera hjá
skíðakrökkunum
Andrésar andar leikarnir á
skíðum hefjast á Akureyri á
morgun. Búast má við að yfir
200 Austfirðingar komi þar
við sögu. Frá Neskaupstað,
Eskifirði og Reyðarfirði fara
nú saman um 130 manns, kepp-
endur og aðstandendur þeirra.
í fyrsta skipti fara kepp-
endur þessara staða eins
klæddir og í eina sæng fyrir
norðan. Þau munu öll gista á
sama stað og ríkir mikil
stemmning meðal þeirra. Þau
hafa m.a. samið sér sérstakan
ferðasöng og s.l sunnudag
hittust um 170 manns tengdir
skíðaíþróttinni svona til upp-
hitunar í Egilsbúð í Neskaup-
stað og snæddu saman pitsu.
Kanadískir í
heimsókn
Kanadískir sveitarstjórnar-
menn munu heimsækja Aust-
urland á morgun. Þeir koma
til Egilsstaða í fyrramálið en
sækja sameinað sveitarfélag
Neskaupstaðar, Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar heim síð-
degis. Heimsóknin er á
vegum Sambands íslenskra
sveitaifélaga.
Gestirnir eru frá Prince
Edward Island og korna þeir
hingað til að kynna sér sveit-
arstjórnarstigið og samein-
ingu sveitarfélaga en Kan-
adamenn líta mjög upp til
Islendinga í þessurn efnum.
Fyrsti kolmuninn
Jón Sigurðsson, sem Sam-
herji gerir út, landaði um 800
tonnum af kolmunna síðast-
liðinn mánudag hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar. Þetta
er fyrsti kolmuninn sem berst
til lands hér fyrir austan á
vertíðinni.
Tímasetningin gæti ekki
verið betri því loðnubræðslu
lauk á sunnudaginn og því
hægt að taka til við bræða
kolmunnann.
Það liefur oft verið sumarlegra
það sem af er árinu en í fyrra-
dag þegar þessi myud var tekiit
á Sólvöllum í Neskaupstað.
Börnin voru vel klœdd enda
frekar hráslagalegt. Þau töldu
samt ekki eftir sér að bregða
sér fyrir Ijósmyndara Austur-
lands í kastalann sinn til
myndatöku.
Forsíðumynd blaðsins fyrir ári
síðan og aðrar myndir initi í
blaðinu voru aftur á móti tekn-
ar í sól og sumaryl. Þá þeystu
menn á sœsleðum uitt fjörðiitn
og yngismeyjar gengu létt-
klœddar um götur.
Gleðilegt suiitar. Ljósm.Eg.
Lagt hald á amfetamín og hass í Neskaupstað
Eskfirðingurinn Þórólfur Þórlindsson í rœðustól. Ljósm. as
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur lögreglan í Neskaup-
stað gerð upptæk 37 gr. af hassi
og 9.5 gr. af amfetamíni og
áhöld til neyslu efnisins. Tólf
handtökur voru framkvæmdar í
tengslum við málið og leitað í 4
húsum og þremur bifreiðum.
Þessar aðgerðir lögreglunnar
hafa staðið frá áramótum og eru
byggðar á víðtækum rannsókn-
um og eftirliti og aðstoðar notið
nýlega ráðins rannsóknarlögreglu-
manns með fíkniefnum á Aust-
urlandi, Guðmundar Baldurssonar.
Forsvarsmenn löggæslunnar í
Neskaupstað, Bjami Stefánsson
sýslumaður og Sigurjón Jónsson
lögregluvarðstjóri sögðu í sam-
tali við blaðið að þetta væri ár-
angur af langri rannsókn. Segja
mætti að þessi árangur frá ára-
mótum væri óvenju góður en
jafnframt mætti segja að hann
kæmi í kjölfar lengri rannsókna.
Það væri þó svo að all oft frétti
lögreglan síðust neyslu eða
meintri neyslu fíkniefna og því
sögðust þeir vilja koma því á
framfæri við bæjarbúa að þeir
létu vita þegar granur væri um
slíkt. Mál sem þessi verða ekki
unnin nema í samvinnu við
bæjarbúa sögðu þeir og með
allar ábendingar væri farið með
sem trúnaðarmál. I kjölfar þessa
máls hefðu lögreglunni þegar
borist ábendingar og sýndi það
og sannaði að bæjarbúar vildu
taka þátt í að upplýsa þessi mál.
Upplýsingum væri einnig hægt
að koma á framfæri í síma 471
1969 og beint til lögreglunnar í
Neskaupstað, 477 1332.
Aðspurðir um hvort það fólk
sem nú var handtekið hefði kom-
ið við sögu lögreglunnar áður
vegna fíkniefna, sögðu þeir svo
vera. Þessum handtökum myndu
fylgja sektir og ákærar.
Guðmundur Baldursson rann- fíkniefnamálum á þremur öðram
sóknarlögreglumaður á Eskifirði stöðum á Austurlandi, Vopna-
sagði í samtali við blaðið að nú firði, Seyðisfirði og Egilsstöðum.
væri unnið að rannsóknum á
Vinahópur ræður mestu
1 erindi sem dr. Þórólfur Þór-
lindsson, félagsfræðingur, hélt á
ráðstefnu um heilsufar kvenna
sem haldin var á Egilsstöðum
s.l. fimmtudag kom meðal ann-
ars fram að það sem skiptir
mestu máli í því hvort unglingar
byrja að reykja eða ekki er fél-
agsskapurinn. Ekki er mark-
tækur munur á strákum og stelp-
um í þessum málum. í erind
Þórólfs kom einnig fram að ef
ekki hefði verið fræðsla og
áróður, þó myndu fleiri reykja
en gera það í dag. Hinsvegar
segir Þórólfur að breyta þurfi
áherslum í þessum málum.
Eftirlit foreldra svo og stuðn-
ingur við unglinga þurfi að
aukast, agi þurfi að vera meiri
o.s.frv. Það sem þarf til er s.s.
ekki fræðsla heldur stórkostleg
áherslu- og hugarfarsbreyting.
m pryii.i f r \ a “ öllum
U sviðum
Kísruut> )&me$ Bovto
flö^vir Á 200 51; Á
,05fefe <mv\<sw frí<Mv!