Austurland - 06.05.1998, Page 8
tolaldapiparsteik
Fæðubótaefni frá
Heifsuhúsinu
a\\a daga frá kl.io.oo-lg
Svfnasnitcel í raspi 09
Is lens kar agúr kur ®4771609 °a8971109
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
Austurland
Neskaupstað 30. apríl 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Rauða gullið rennur á Eskifirði
Bergey í fyrsta sæti í svigi
Bergey Stefánsdóttir á
Reyðarfirði varð í 1. sœti
í svigi 7 ára stúlkna á
Andrésar Andarleikun-
um á Akureyri. Þau leiðu
mistök urðu í síðasta
blaði að nafn Bergeyjar
féll niður og biðst blaðið
afsökunar á því. Bjargey
er hér með óskað til
hamingju með glœsi-
legan árangur.
Vegfarendum í Neskaupstað bauðst að kaupa vöflur fyrir lítinn pening síðastliðinn fimmtudag en
þá voru þeir nemendur VA, sem útskrfast á þessu vori, að halda upp á komandi frelsi. Engum sögum
fer af því hvernig salan gekk. Ljósm. as
Stendur valið milli Eskifjarðar og Eyja?
„Vestmannaeyjar koma sterk-
lega til greina verði Keikó fluttur
til Islands“. Þessu er slegið upp á
forsíðu vikublaðsins „Frétta“
sem gefið er út í Eyjum.
I greininni segir ennfremur:
„Auk Vestmannaeyja stendur
valið á milli Hvammsvíkur í
Hvalfirði og Eskifjarðar en sam-
kvæmt heimildum blaðsins koma
Vestannaeyjar og Eskifjörður
helst til greina... Það er ljóst að
mikið er í húfi því flutningur
Keikó til íslands mun vekja
óhemju athygli, meiri en nokk-
urn tíma hefur þekkst hér á
landi. Búist er við að um 750
blaðamenn fylgi honum og að
einn milljarður fylgist með
flutningnum í fjölmiðlum... Þó
stutt sé síðan Vestmannaeyjar
komu inn í myndina er Fréttum
kunnugt um að sú staðreynt að
Háskólasetrið, Hafró, Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins og
Náttúrugripasafnið skuli vera til
staðar, styrki stöðu Vestmanna-
eyja í slagnum um Keikó.“
Það er því ljóst að Eyjamenn
ætla sér stóra hluti í Keikómál-
inu. Það kemur ennfremur fram í
greininni að ákvörðunar Islenskra
T
T
>
r
Slippfélagið
Málningarverksmiðja
stjómvalda sé að vænta á allra
næstu dögum og því ljóst að brátt
fer að draga til tíðinda í málinu.
Mikil vinna hefur verið í
rækjuvinnslu HE að undanförnu
og er unnið á vöktum. A vakt
hverju sinni eru 14 manns en alls
eru um 40 störf í rækjuvinnsl-
unni að sögn Búa Þórs Birgis-
sonar, verkstjóra.
Frá því að kvótaárið hófst 1.
september s.l. hefur rækju-
vinnslan tekið á móti um 1600
lestum af rækju til vinnslu.
Metár var f vinnslunni fyrir
tveimur árum en þá var tekið á
móti um 3200 lestum. Hólma-
nesið og Gestur hafa landað
vikulega að undanfömu og nú
bættist Þórir SF við. A dögunum
keypti Hraðfrystihús Eskifjarðar
300 lestir af frosinni rækju frá
Noregi til að hafa til taks ef
ferskt hráefni þrýtur. Ekki var
hægt að fá rækju hér á landi.
Meiri afli í mars á austfirskar hafnir
aflinn janúar - mars minni
SIMI: 588 8000
Fyrstu þrjá mánuði ársins var
um 246.000 lestum landað á
Austfjarðahöfnum samanborið
við 372.000 lestir í fyrra. Munar
þama mestu um loðnuna sem
var í jan. - mars 230.000 lestir en
var á sama tímabili í fyrra
353.000 lestir.
Heildaraflinn á Austfjörðum í
mars mánuði var tæplega
1 i 1.000 lestir en var í fyrra
82.000 lestir. Botnfiskafli tog-
aranna á þessum tíma er nánast
sá sami bæði árin en bátaaflinn
jókst um rúmlega 800 lestir.
Loðnuaflinn var tæplega
106.000 lestir en var á sama tíma
í fyrra um 78.000 lestir.
Heildaraflinn í fjórðungnum var
því, samkvæmt bráðabirgða-
tölum Fiskifélags Islands,
110.782 lestir en var í fyrra
82.011 lestir.
Mestum afla í mars var
landað á Seyðisfirði um 22.500
lestum, þá kemur Neskaupstaður
með um 21.000 lestir og síðan
Eskifjörður með um 17.500
lestir.
Lokatónleikar Tónskóla Norðfjarðar fóru fram í Egilsbúð sL sunnu-
dag. Þar léku nemendur á öllum aldri og Ijóst er að Norðfirðingar
þurfa ekki að kvíða skorti á tónlistarfólki íframtíðinni. Ljósm. as.
Vökvatengi Háþrýstislöngur
-SVN Vélaverkstæði