Austurland - 28.05.1998, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998
Framfaraverðlaun Framfarafélags Fl jótsdalsh éraðs
Framfarafélag Fljóts-
dalshéraðs er opinn
félagsskapur fólks
sem hefur áhuga á
framþróun og nýj-
ungum á flestum
sviðum mannlífsins
á Fléraði. Félagið
vinnur að því að
kynna nýjar hug-
myndir sem upp
koma fyrir mönnum
og fyrirtækjum, sem
álitið er að hafi
áhuga á þeim hverju
sinni. Engar fram-
kvæmdir eru hafðar með höndurn og enginn
félagsmaður á hagsmuna að gæta.
Til þess að sýna hvað við metum sem framfarir
var árið 1997 byrjað að veita þeim mönnum viður-
kenningu sem þóttu skara fram úr á sínu sviði. Um
þetta tókst gott samstarf við Landsbanka Islands
hf, útibúið á Egilsstöðum, sem veitti fjárstuðning.
Viðurkenningar voru svo veittar aftur nú sl. laug-
ardag á sama hátt, og aftur var Landsbanki Islands
hf svo vinsamlegur að styðja þessa viðleitni
félagsins til að hafa nokkur áhrif til framfara.
Þeir sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni
eru þessir:
Á sviði lista og menningar: Keitli Reed fyrir
frábær störf að söng- og tónlistarkennslu á Héraði.
Hann setti upp m.a. oratóríuna „Messías" eftir
Hándel í Egilsstaðakirkju og stjórnar Kammerkór
Austurlands. Einnig hefur hann náð miklum
árangri persónulega, með söng sínum í Islensku
óperunni og víðar,
og hlotið Tónvaka-
verðlaun RÚV. Hér-
aðsbúar mega vera
stoltir af að hafa
hann í sínum röðum.
Á sviði atvinnumála:
Viðurkenningu hlaut
Pálmi Kristmanns-
son fyrir það braut-
ryðjendastarf að leiða
af stað fiskvinnslu í
Fellabæ og reka
hana á arðbæran
hátt, svona langt frá
sjó. Slíkt getur varla
talist „heiglum hent“, ekki síst þegar rækjuvinnsla
bættist nýverið við.
Á sviði félagsmála: Aðalsteinn Jónsson,
Klausturseli, sem er formaður bæði Landssam-
bands sauðfjárbænda og þangað til nýlega ferða-
málafélagsins Forskot. Hann og kona hans hafa
komið upp nýstárlegri starfsemi á bæ sínum, sem
er að hafa hreindýr og fleiri dýr til sýnis, auk
ýmissa muna, t.d. úr hreindýraskinni.
Sérstaka viðurkenningu fyrir bjartsýni hlutu
hjónin Gunnlaugur Jónasson og Hulda Daníels-
dóttir fyrir að ráðast í að endurreisa gistihúsið á
Egilsstöðum (býlinu). Þetta hús er elsta hús úr
steinsteypu á Héraði, byggt að hluta 1903. Þar var
rekið gistihús í 90 ár samfleytt, eða til 1993. Nú
ætla hjónin að taka upp þráðinn að nýju og þar
með bjarga menningarlegu verðmæti.
Við óskum þessum fimm til hamingju!
Verðlaunahafar með viðurkenningar sínar.
Ljósm. Orri Hrafnkelsson
F E R
I m
M I N G fl R T I L B O Ð
Bókahilla
kr. 9.500.- Tölvuborð Skrifborðsstóll
Geisladiskastandar kr. 9.600.- kr. 6.900.-
kr. 2.900.-
EJeinn innflutningur
- Bestu kaupin!
Opið laugardag kl. 13-16
Hólmar hf
HÚSGAGNAVERSLUN
REYÐARFIRÐI SÍMI 474 1170
t
Ókeypis smáar
Atvinna óskast
22 ára karlmann vantar atvinnu í
3-4 vikur. Vanur landbúnaðar-
störfum, en allt kemur til greina.
Uppl. ís. 453 6253 og 471 2348
íbúð óskast
Óskum sem fyrst eftir lítilli íbúð
til leigu í Neskaupstað. Haf-
steinn og Lilja.
Sími 477 1802 og 477 1005
Pappírssala
Blakarar verða með WC
pappírssölu í vikunni.
Blakdeildin
Tónsmiðja BRJÁN
Tónlistaráhugafólk. Föstu-
daginn 29. maí kl. 21.00, verður
notalegt kvöld í tónsmiðju
BRJÁN. Sala félagsskírteina við
innganginn. Framtíðarstarfið
rætt. BRJÁN
cosMOPQurrAN] %
cÁuí A ufi iwew/wazMi
(Mlsdhuiláð{fí á ((t'SjJjö/HÍK/n:
0/1 cJjaTcÁi - OÁ (•:Áauf: Jxid
Öeróiun/n C/fmuóta ?/lcy/cdaí - (j/Jirdi
C/fíll/xi/h- <xj. nudcLtoJan (/ raumey - O/
C'/{au/iJ('/,a<j //töðjiyðinja - PArccðc/a/ivt/c
Oö/jótc/c OO/mtur/ancL - c/cjðiijlr/i
O/Craðiúcí %im - oAeJum
///uú/d/i á/tejam pj/nsxma r- - Cj/'dóf rúÍhJrdi
_ /I/vx LC4-A t‘l j. . J/ti/tllt'tW fim
VÚ, tiitttít íttV 44 //, fCll' d
Í. 36 1 4432
Þœr Arndís Ingólfsdóttir, Telma Finnsdóttir og Guðný Björg
Guðlaugsdóttir stóðu fyrir tombólu á dögunum. Alls söfnuðu þœr
2.278 krónum og gáfu ágóðan til Rauða krossins. Ljósm. as
Seyðfirskar vísitera
Þessar konur frá leikskólanum
Sólvöllum á Seyðisfirði voru nú
fyrir kosningarhelgina að vísi-
tera, að eigin sögn, kollega sína í
leikskólunum í Neskaupstað,
Eskifirði og Reyðarfirði. Þær
hafa farið s.l. fimm ár í stuttar
ferðir til að kynna sér starfsemi
og uppbyggingu annarra leik-
skóla og dagheimila. Á meðan
taka foreldrar þeirra barna sem
eru á leikskólanum á Seyðisfirði
við störfum þeirra á leikskólanum.
Að sögn Helenu Birgisdóttur,
sem starfar á leiksskólanum og
var með hópnum, eru þessar
ferðir orðnar ómissandi þáttur í
starfseminni. Ekki eingöngu
vegna starfsfólksins heldur og
vegna barnanna og foreldranna
sem hafa sérstaklega gaman af
því að starfa saman í einn til tvö
daga. Konurnar kosta sig sjálfar
í þessar ferðir en fá ferðaleyfi á
launum.
Við farkostinn á planinu neðan við Brennu. Tvœr úr hópnum
höfðu brugðið sér í búðir og urðu því af myndatökunni.
Ljósm. Eg.
Landsbankahlaupið 1998
Landsbankahlaupið fór fram
víða um land s.l. laugardag. Um
þátttöku annars staðar en í Nes-
kaupstað er ekki vitað en þar
hlupu 59 börn og unglingar. Ef
litið er í Austurland s.l. 5 ár
kemur í ljós að þátttaka hefur
minnkað. Fyrir 5 árum hlupu um
90 krakkar en 59 núna. Úrslit í
Neskaupstað urðu þessi:
Stúlkur f. '85 og '86
1. Helga Kristín Jónsdóttir
2. Ellen Gunnarsdóttir
3. Særún Kristín Sævarsdóttir
Stúlkur f. '87 og '88
1. Alexandra Tómasdóttir
2. Agnes Heiða Þorsteinsdóttir
3. Auður Jóna Skúladóttir
Dregnirf. '85 og '86
1. Atli Rúnar Eysteinsson
2. Sigurður Vilmundur Jónsson
3. Jóhann Eðvarð Hjálmarsson
Drettgir f. '87 og '88
1. Ármann Örn Sigursteinsson
2. Hafþór Ingi Valgeirsson
3. Sindri Solheim
ATH!
Ekki gleyma að fara
með fötin í hreinsun.
Við höfum opið virka
daga frá
kl. 11-45" ió.oo
Lækurinn
Egilsbraut