Austurland - 17.09.1998, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
3
Albert Einarsson
Farskóli á ferðinni í 10 ár
Það skein sól á páskum 1988.
Nægur snjór í Oddsskarði og
mikið um fólk. Eins og oft gerist
á slíkum dögum, er staldrað við
og spjallið tekur mið af um-
hverfinu. Það er flogið hátt og
hugmyndir verða til.
Hugmyndin um Farskólann á
Áusturlandi varð til í skíða-
brekkunum í Oddsskarði á öðr-
um páskadegi 1988. Axel A
Beck, framkvæmdastjóri Atvinnu-
þróunarfélags Austurlands og
undirritaður stóðu á spjalli þegar
hugmyndinni laust niður. Við
bundumst fastmælum um að
gera hugmyndina að veruleika.
Samtímis því að mála og
dytta að Farfuglaheimilinu á
Seyðisfirði um sumarið 1988,
ræddum við skipulagningu, átt-
um ótal símtöl og skrifuðum
námskeiðslýsingar. Við reynd-
um að finna heppilegt nafn á
fyrirkomulagið en lítið gekk þar
til Þóra Guðmundsdóttir sagði
okkur að það væri einfaldlega
farskóli sem við værum að búa
til og hvers vegna ekki að kalla
það Farskólinn á Austurlandi.
Aðalfundur SSA skyldi hald-
inn í ágúst 1988. Við bjuggum
svo um hnútana að fyrsti nám-
skeiðsbæklingur Farskólans kom
nýr og angandi af prentsvertu
inn á fundinn. Farskólinn vakti
athygli, - þetta var eitthvað nýtt.
Augljós þörf og
frábærar viðtökur
Fyrstu viðbrögð við Farskólan-
um, og því sem boðið var upp á,
staðfestu að það var augljós þörf
fyrir sveigjanlegt námsframboð í
námskeiðsformi. Það var líka
auðheyrt að fólk mat það mikils
að fá námskeiðin í heimabyggð.
Viðtökumar, sem námskeiðin
fengu, vora í langflestum tilvik-
um mjög góðar, enda var alltaf
reynt að finna hæfa leiðbeinend-
ur og undirbúa námskeiðin vel.
I einu tilfelli man ég að þátt-
takendur fengu endurgreitt þátt-
tökugjaldið. Þetta var stutt nám-
skeið um notkun örbylgjuofna.
Leiðbeinandinn hafði fengið
aðrar upplýsingar um undirbún-
ing en þátttakendur. Leiðbein-
andinn, hússtjórnarkennari og
mjög fær í sínu starfi, einbeitti
sér að því að kenna fólki með-
ferð örbylgjuofna og hvernig
þeir virka o.s.frv., á meðan
fólkið beið í óþreyju eftir því að
læra að elda mat, baka o.s.frv. í
þessum dularfulla nýtísku tæki.
Við sáum að feillinn lá hjá okkur
sem höfðum sagt rangt til og
endurgreiddum. Þetta kenndi
okkur margt um nákvæmni
varðandi námskeiðslýsingar og
samskipti við leiðbeinendur.
Samstarfsverkefni
Farskólinn á Austurlandi var í
upphafi skilgreindur sem sam-
starfsverkefni Verkmenntaskóla
Austurlands og Atvinnuþróunar-
félags Austurlands. Fyrir okkur
var það mikilvægt að ekki yrði
litið á Farskólann sem stofnun,
heldur að Farskólinn væri lifandi
hreyftng, þar sem almenningur
gæti haft áhrif á námsframboð
og staðsetningu námskeiða. Það
er mitt mat að þetta haft tekist.
Enda þótt Farskólinn haft haft
Tölvuþjónusta Austurlands óskar
eftir húsnæði til leigu í
Neskaupstað fyrir
þjónustumiðstöð
sem áætlað er að
opna í haust.
0) 471-1 1 1 1
Möguleikhúsið sýnir Einar Áskel
á Austurlandi sBttlIDii 1'
i e
Iþróttahúsinu Djúpavogi -17. sept. kl.17.00
Félagsheimilinu Skrúði Fúskrúðsfirði 19. sept kl.14.00
Egilsbúð Neskaupstað 19. sept. kl. 17.00
Valaskjúlf Egilsstöðum 20. sept. kl.14.00
aðsetur fyrir síma og skrifstofu í
Verkmenntaskólanum, hefur
starfsemin farið fram um allt
Austurland.
Jóhanns þáttur
Stephensen
Það er alltaf langt gengið að
segja að einhver sé ómetanlegur
og að eitthvað geti ekki gerst án
þess að einn einstaklingur hafi
hönd í bagga. Það er ekkert langt
gengið að segja að Farskólinn á
Austurlandi væri ekki það sem
hann er án Jóhanns. Eg veit að
Jói Stef vissi jafn lítið og ég um
það hve mikinn tíma og heila-
brot og vinnu Farskólinn krefð-
ist, þegar ég vélaði hann til að
taka að sér umsjón með Farskól-
anum. Það var sama hvort var,
skipulagning á námskeiði á ein-
hverjum fjarðanna eða fundur
um farskólamálefni í ráðuneyti,
alltaf var og er alvaran og ábyrgð-
in í fyrirrúmi hjá Jóhanni. Og
kaupið fyrir alla aukavinnuna,
umstangið og aksturinn? Það var
ekki ósjaldan að ég varð að segja
við Jóhann: “Jói minn, við fáum
þetta allt saman borgað seinna”.
Eg vissi að ég sagði ósatt og ég
held að Jói hafi líka vitað það, en
við vildum bara hafa það þannig.
Farskólar um allt land
Farskólinn á Austurlandi, sem í
upphafi var svæðisbundið átak
til þess að mæta menntunarþörf,
vakti athygli víða um land og
ekki leið á löngu þar til farskólar
með svipuðu sniði voru stofnaðir
í öllum kjördæmum utan Reykja-
víkur og Reykjaness. Síðan voru
stofnuð Samtök farskóla og far-
skólahugtakið náði inn í reglu-
gerðir og lög.
Farskólinn hefur vakið tals-
verða athygli á Norðurlöndun-
um. Farskólinn á Austurlandi
var íslenski þátturinn í samnor-
rænu verkefni - VOKS UT - á
vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar. Það er þó nokkuð al-
gengt að ég mæti fólki í starfi
mínu hér ytra sem hefur haft
spurnir af farskólum á íslandi og
veit meira um slíka starfsemi en
um aðra þætti í íslenskum
menntamálum.
Það er gaman að sjá að
Farskólinn er við líði og á ennþá
erindi. Ef til vill kemur að því að
Farskólinn verði leystur af hólmi
af varanlegra fyrirkomulagi til
eflingar menntunar á öllum stig-
um. Símenntun og það sem fólg-
ið er í símenntun hlýtur að taka á
sig varanlegra form en það lausa
fullorðinsfræðsluform sem við
höfum haft hingað til. Á meðan
eru farskólar nauðsynlegir.
Til hamingju með Farskólann
á Austurlandi í 10 ár.
Leiðrétting
í síðasta tölublaði Austurlands
birtist grein eftir líffræðingana
Helga Hallgrímsson og Skarp-
héðinn G. Þórisson. Við vinnslu
blaðsins virðist tölvukerfi þess
hafa ákveðið að gera okkur
dálítinn grikk og því vantaði
smá hluta greinarinnar og
biðjum við lesendur hér með
velvirðingar á því.
Hér eftir birtist svo máls-
greinin sem vantaði í heild
sinni:
Ríkulegur gróður og dýralíf
þrífst á báðum svæðum, og bæði
eru mjög mikilvæg fyrir viðhald
íslensk-grænlenska heiðagæsa-
stofnsins. Nálægð Eyjabakka
við risafjallið Snæfell (1833 m),
og hin miklu hvel Vatnajökuls,
gefur svæðinu sérstakt gildi, og
á sinn þátt í fjölbreytni þess og
grósku.
Fyrirtækjasanieining
OLUUSMIÐJflN
Ris sf. og Tölvusmiðjan ehf. hafa sameinast og munu
framvegis reka öflugt fyrirtæki á sviði hugbúnaðar-,
tölvu- og skrifstofutækjaþjónustu
undir nafni Tölvusmiðjunnar ehf.
Eigendur hins sameinaða fyrirtækis eru að jöfnum
hlut þeir Hafsteinn Þórðarson, Hilmar Gunnlaugsson,
]ón Fjölnir Albertsson og Þórður Ó. Guðmundsson.
Við bjóðum alla austfirðinga velkomna í
viðskipti við nýtt og enn öflugra fyrirtæki.
ÖLUUSMIÐJAN
V