Austurland


Austurland - 17.09.1998, Blaðsíða 8

Austurland - 17.09.1998, Blaðsíða 8
TWboö Kjúklingar Kraft þvottaduft Kraft uppþvottalögur Sokkar og nærföt í úrvali b a\\a daga frá kl.lo.oo-lQ 900 IMESBAKKI @477 1609 og 897 1109 Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins, stofnað 1951 Austurland Neskaupstað 17. september 1998. Verð í lausasölu kr. 170. Skeljungur endurnýjar söluskálann á Eskifirði Nú standa fyrir dyrum gagngerar endurbætur á söluskála Skelj- ungs á Eskifirði. Að sögn Báru Pétursdóttur, rekstraraðila skál- ans, er um að ræða nánast algera endumýjun á húsinu, en segja má að allt verði hreinsað í burtu nema grind hússins. Veitingasal- urinn í skálanum verður stækk- aður nokkuð og einnig verður eldunaraðstaða bætt til muna. Skeljungur hf. sér alfarið um framkvæmd breytinganna, sem hefjast 25. september og munu standa í 4-6 vikur. Mestu kolmunnaveiðar í sögunni Brúðubíllinn var á ferð á Norðfirði í síðustu viku. Norðfirskir krakkar fjölmenntu á sýninguna og eins og sjá má á myndunum áttu brúðurnar hug þeirra og hjörtu á meðan á sýningunni stóð. Ljósm. S.Ó. Frábærir tónlelkar Á fimmtudagskvöldið lék tríó Péturs Öslund á tónleikum í Egilsbúð í Neskaupstað fyrir fullu húsi djassgeggjara og ann- arra tónlistaráhugamanna. Það er skemmst frá að segja að tríóið stóð undir villtustu vonum gesta og veittu tónlistarlega fullnæg- ingu af bestu gerð. Tríóið er skipað gífurlega færum hljóð- færaleikurum, þeim Pétri Öslund, Hans Backenroth og Clas Croona. Pétur sýndi gestum að hann hefur engu gleymt og undirstrikaði að hann er einn af bestu djasstrommuleikurum Evrópu. Pétur hefur gífurlega snerpu við settið og enn er að ftnna í honum gamla rokkara- takta. Hans Backenroth er ungur að árum, en greinilega bráð- þroska djassleikari því bassa- leikur hans var afar fimlegur. Sá sem vakti hins vegar mesta at- hygli áhorfenda var píanóleikar- inn Clas Croona sem var hreint út sagt ótrúlegur við flygilinn og þar var greinilega á ferð full- þroskaður tónlistarmaður. Tækni hans er frábærlega góð, enda á hann bakgrunn sinn í klassískri tónlist og hann fléttaði saman tóna svo unun var á að hlýða. Tríóið náði sérlega vel saman í leik sínum og er greinilegt að þessir menn hafa leikið mikið saman og skilaði leikur þeirra sér vel til áhorfenda sem fóru út í dimma haustnóttina eftir tón- leikana með hlýju í hjarta. íslendingar hafa aldrei veitt jafn mikið af kolmunna og síðustu misseri. Veiðamar hafa komið sér afar vel, því yfirleitt veiðist lítið af uppsjávarfiskum á þess- um árstíma. Varla er hægt að segja að um mokveiði haft verið að ræða, en veiðin hefur þó ver- ið nokkuð stöðug. Þegar blaðið fór í prentun var búið að landa 23.213 tonnum hjá Síldar- vinnslunni á Neskaupstað og 18.658 tonnum hjá Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar en stærstum hluta aflans hefur verið landað á þessum tveimur stöðum. Beitir NK 123 er langaflahæstur aust- firskra skipa með 18.459 tonn. Stjornmalavióhorf könnuð Gallup hefur birt niðurstöður könnunar á stjórnmálaviðhorf Austfirðinga en könnunin fór fram um leið og afstaða Aust- firðinga til stóriðju og virkjana var könnuð dagana 29. júlí til 14. ágúst. Samkvæmt könnuninni fengi Framsóknarflokkurinn 39% fylgi, Sjálfstæðisflokkur 29%, Sam- eiginlegt framboð félagshyggju- Breytingar á skólastarfi á Djúpavogi Tríó Péturs Öslund á sviðinu í Egilsbúð. Ljósm. as Kennslu í Kerhamraskóla hefur nú verið hætt og er nemendum þaðan keyrt til Djúpavogs í skólann daglega. Nemendur í Kerhamraskóla hefðu orðið fjórir ef kennslu hefði verið haldið áfram þar, en heimavist var jafnframt lögð af. Böm úr dreifbýli frá heitan mat í hádegi og þeim er boðið upp aðstoð við heimanám, þannig að þau em í flestum tilfellum búin að læra þegar þau koma heim. Nokkrar breytingar voru einnig gerðar á húsnæði skólans, en Héraðs- bókasafnið var flutt úr skólanum í Gamla Kaupfélagið og við það urðu til tvær kennslustofur i viðbót. Nýju og fullkomnu tölvu- veri hefur verið komið á lagg- imar í skólanum og nýtist það jafnframt til fullorðinsfræðslu. flokka 11,8%, Alþýðubandalag 9,3%, Framboð Sverris Her- mannssonar 6,1%, Alþýðuflokk- ur 1,9%, Kvennalisti og Þjóð- vaki 0,3% hvor en 2,2% Aust- firðinga sögðust myndu kjósa eitthvað annað. Hafa ber í huga að aðeins 411 manns svömðu stjómmálaspum- ingunum en úrtakið var 900 manns. Það að helmingur þeirra sem spurðir eru, svari ekki, ásamt mjög óljósri stöðu mála á vinstri vængnum þessa dagana gerir það að verkum að margir hafa sett stórt spumingamerki við niðurstöðumar. T r Slippfélagið Málníngarverksmiðja SIMI: 588 8000

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.