Austurland - 17.09.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
5
Fjöllin veita mér öryggiskennd
Viðtal við Ólaf Sigurðsson, nýráðinn bæjarstóra á Seyðisfirði
Ólafur Sigurðsson, nýráðinn bœjarstjóri á Seyðisjirði. Ljósm. as
Ólafur Sigurðsson er nafn sem
oft hefur birst á síðum blaðsins,
en Ólafur hefur verið iðinn við
blaðaskrif um hin ýmsu málefni
síðustu árin. Ólafur skrifaði m.a.
greinar á meðan á kjaradeilu
kennara stóð í fyrra og fór hann
þá hörðum orðum um stefnu
stjómvalda í þessum málaflokki
og sagðist segja starfi sínu lausu
ef ekki næðust ákveðnar kjara-
bætur. Ólíkt mörgum, sem ætl-
uðu að segja kennarastöðum sín-
um lausum, stóð Ólafur við stóm
orðin og sagði starfi sínu þegar
lausu eftir að skrifað var undir
smánarlega kjarasamninga. Ur
kennslunni lá leið Ólafs í sjó-
mennsku og hana hefur hann
stundað síðasta árið. Ólafur
hefur í gegnum tíðina verið einn
af forkólfum íþróttalífsins í Nes-
kaupstað og m.a. var hann stofn-
andi og svo formaður Blakdeild-
ar Þróttar í hartnær tvo áratugi
og gekk hann þar undir nafninu
„Foringinn". Það kom hins veg-
ar mörgum á óvart þegar fréttist
að Ólafur væri að fara í nýtt for-
ingjahlutverk sem næsti bæjar-
stjóri Seyðfirðinga. Blaðamenn
Austurlands tóku hús á Ólafi og
spjölluðu við hann um nýja
starfið, fortíð og framtíð.
Hvernig kom til að þú sóttir
um starf bœjarstjóra á Seyðis-
firði?
„Það má segja að það hafi
nánast verið hugdetta. Það
hvarflaði fyrst að mér þegar ég
heyrði að Þorvaldur væri að
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s. 477 1190
Eskiljörður s. 476 1203
Reyðarijörður s. 474 1255
Víggó p
Vöruflutningar
(3)477 1190
hætta, en ég var hins vegar á sjó
þegar starfið var auglýst og ég
missti þess vegna af lestinni.
Svo varð raunin sú að öllum
fyrstu umsækjendunum var
hafnað og þá ákvað ég að senda
inn umsókn. Þetta átti sér s.s.
ekki langan aðdraganda."
Veldur það engum vandkvœð-
um að þú skulir veraflokksbund-
inn Alþýðubandalagsmaður á
meðan meirihluti í bœjarstjórn
Seyðisfjarðar eru Sjálfstœðis-
menn ?
„Nei, ekki get ég sagt það. Þó
að ég hafi sinnt nefndarstörfum
fyrir Alþýðubandalagið í Nes-
kaupstað þá hef ég aldrei verið
sérlega virkur eða innviklaður í
pólitík og hef ekki beitt mér sér-
staklega á þeim vettvangi. Þetta
var að sjálfsögðu skoðað áður en
ég hóf störf. Ég fór yfir helstu
kosningamálin með meirihlutan-
um og það virtust ekki vera nein
sérstök ágreiningsmál. I bæjar-
stjórninni situr gott, framfara-
sinnað fólk sem hefur fyrst og
fremst áhuga á að efla bæinn
sinn og ég held að flokkspóli-
tískar línur skipti yfirleitt ekki
miklu máli þegar sveitar-
stjórnarmál eru annarsvegar.
Hvað ákvarðanatöku varðar þá
er ég að sjálfsögðu bara fram-
kvæmdastjóri bæjarstjómarinnar
og ég verð að lúta vilja hennar ef
einhver ágreiningur kemur upp.“
Hvaða afstöðu munt þú taka í
kennaramálum, nú þegar þú ert
kominn hinummegin við borðið?
„Afstaða mín hefur að sjálf-
sögðu ekkert breyst. Það er alveg
ljóst að það þarf meira fjármagn
inn í skólana og m.a. þyrfti að
hækka laun kennara verulega.
Það getur hins vegar reynst erfitt
fyrir sveitarfélögin að finna þetta
fjármagn. Við yfirfærslu
skólanna til sveitarfélaganna
voru að mínu mati gerð stór
mistök. Aður en yfirfærslan átti
sér stað var búið að halda
launum kennara niðri um langt
skeið, skera kennslu niður eins
og hægt var og gera lélega kjara-
samninga æ ofan í æ. Sveitarfé-
lögin fá svo skólana í hendurnar
á sama tíma og kennarar eru að
fá sig fullsadda af kjömm sínum
og einnig er verið að einsetja
skólana. Því fylgdu gífurleg
vandamál með í pakkanum og ég
tel ríkið bera mikla ábyrgð á því
hvemig komið er. Hins vegar er
ljóst að þó að kennarar eigi alla
samúð mína og ég muni beita
mér fyrir að kjör þeirra verði
bætt, þá er ég aðeins fram-
kvæmdastjóri bæjarstjómar og
mun að sjálfsögðu framkvæma
þeirra vilja í þessum málum sem
öðrum.“
Hvernig leggst nýja starfið í
þig?
„Það leggst mjög vel í mig.
Ég er reyndar bara búinn að vera
héma í tvær vikur og er enn að
setja mig inn í málin. Þetta er
afskaplega viðamikið starf og
margt nýtt að læra. Ég geri mér
fulla grein fyrir því að það mun
taka marga mánuði að komast
inn í allt sem tengist starfinu."
Eru ekki mikil viðbrigði að
fara í bœjarstjórastól eftir að
hafa sinnt kennslu í 20 ár?
„Nei, það em nú ekki eins
mikil viðbrigði og menn gætu
haldið. I kennslunni þarf að um-
gangast fjölda fólks og koma
eins fram við alla og virkja fólk
til ákveðinnar vinnu. Það má því
segja að ég hafi 20 ára reynslu af
stjómun. Við kennsluna verður
maður að kunna að umgangast
fólk, vera ákveðinn en samt
sveigjanlegur og tileinka sér
ákveðna herkænsku. Ég vann
svo sem skólameistari Verk-
menntaskóla Austurlands í eitt ár
og þar fékk ég dýrmæta reynslu.
Það má einnig geta þess að það
er margt líkt með stjórnun
íþróttahreyfingarinnar og bæjar-
félaga. Það þarf að virkja fólk til
starfa, halda utan um fjárhaginn,
halda aðalfundi og stjórnarfundi
o.s.frv. Reynsla mín af skólum
og íþróttahreyfingunni mun
einnig koma sér vel í bæjar-
stjórastarfinu þar sem rekstur
skólanna er orðinn verkefni
sveitarfélaganna og þekking á
þessum málaflokkum er mjög
dýrmæt. Það má einnig benda á
að Þorvaldur Jóhannsson hefur
mjög svipaðan bakgmnn og ég,
en hann hefur átt farsælan feril
sem bæjarstjóri."
Hvernig hafa Seyðfirðingar
tekið þér?
„Þeir hafa tekið mér alveg
ótrúlega vel. Það hefur rignt yfir
mig hamingjuóskum og menn
virðast almennt vera sáttir við
ákvörðun meirihlutans um að
ráða mig í starfið.“
Hvemig finnst þér að flytja
búferlum eftir 20 ára dvöl á
Norðfirði?
„Það má segja að flutningam-
ir séu það eina sem skyggir á
gleði mína þessa dagana. Það er
vissulega erfitt að yfirgefa stað
sem maður hefur samlagast með
svo ríkum hætti. Það er samt
ákveðin huggun að vera enn á
Austurlandi. Maður er allavega
ekki flúinn suður! Svo eru Seyð-
isfjörður og Norðfjörður um
margt líkir staðir. Fólkið er svip-
að og atvinnulífið er eins í gmnd-
vallaratriðum. Staðimir em báð-
ir endastöðar í samgöngulegu
tilliti og þeir eru báðir um-
kringdir fjöllum. Hins vegar
valda fjöllin hjá mér öryggistil-
finningu frekar en ótta og það
var eitt af því sem mér fannst
óþægilegt fyrst þegar ég flutti á
Norðfjörð hvað fjöllin vom langt
í burtu m.v. Seyðisfjörð og mér
fannst allt flatt. Ég hef ekki
miklar áhyggjur af snjóflóðum
og tel að við getum búið við
þessa hættu ef við fylgjumst
nógu vel með snjóalögum og
höfum varann á okkur.“
A staður eins og Seyðisfjörð-
ur sér einhverja framtíð?
„Já, það er ég sannfærður um.
Staðir af þessari stærð og tegund
hafa lent í upp- og niðursveiflum
og ég hef á tilfinningunni að
Seyðisfjörður sé á uppleið eftir
erfitt tímabil. Hér er aftur farið
að fjölga fólki og íbúatalan aftur
komin yfir 800. Afkoma staðar-
ins er að sjálfsögðu tengd af-
komu sjávarútvegsins, en það
sama á við um alla aðra bæi á
Austurlandi og reyndar þjóðina
alla ef út í það er farið, en á
meðan hér eru rekin sjávarút-
vegsfyrirtæki mun bærinn halda
velli.“
Telur þú að Seyðisfjörður
ætti að sameinast öðrum sveitar-
félögum, t.d. Héraði?
„Ég get nú ekki séð að Seyð-
isfjörður eigi mikla samleið með
Héraði og reyndar ekki með
öðrum sveitarfélögum að svo
stöddu. Við emm það landfræði-
lega einangmð að það er alls ekki
augljós með hverjum við eigum
samleið. Héraðið er allt of ólíkt
svæði til að sameining myndi
skila einhverju. Reyndar held ég
að menn ættu að staldra við í
þessum sameiningarhugmynd-
um og meta hvaða árangur næst
þar sem sameingin er þegar
gengin í gegn og skoða svart á
hvítu hverju hún skilar fjárhags-
lega og hvort fólkinu fjölgi. Ég
held að sumir hafi verið að sam-
einast af því að þeir telja sig vera
að missa af lestinni í einhverjum
skilningi, en ég held að það séu
óþarfar áhyggjur. Ríkið segist
ætla að láta meira fé af hendi
rakna til þeirra sveitarfélaga sem
sameinast en eins og við vitum
hefur ríkið áður svikið lands-
byggðina.“
Nú hefur Seyðisfjörður vakið
athygli fyrir geysilega öflugt
menningarlíf. Ætlar þú að beita
þérfyrir því að þetta stafverði
áfram styrkt?
„Já, það geri ég öugglega.
Öflugt menningarlíf hefur mikið
að segja fyrir svo litla staði og
það er ótúlegt hvað menningar-
lífið hefur haldist lifandi á tím-
um þegar fækkað hefur í bænum
um 20%. Hér hefur verið rekið
fjölbreyttara og öflugra menn-
ingarlíf en víðast annarsstaðar á
Austurlandi og ég held að það sé
afar mikilvægt fyrir samfélagið.
Seyðfirðingar hafa lagt mikinn
metnað í þetta starf og sem dæmi
má nefna að menningarmála-
nefnd var með tvo starfsmenn á
launum í sumar við að skipu-
leggja menningarstarfið í bæn-
um og vonandi getum við haldið
slíku starfi úti í framtíðinni.
Tónleikahaldið í „Bláu kirkj-
unni“ á síðasta sumri var líka
stórmerkilegt framtak.“
Hefur þú hugsað þér að koma
upp einhverju blakstarfi á Seyð-
isfirði?
„Já, það eru talsverðar líkur á
því, a.m.k. öldungablaki. Hér er
að rísa nýtt og stórglæsilegt
íþróttahús og möguleikar á
stundun hópíþrótta mun aukast
stórlega við það, en það er mjög
mikilvægur þáttur í því að efla
félagsþroska barna og unglinga.
Annars hefur íþróttastarfi verið
sinnt mjög vel hér í bænum og
m.a. hafa Seyðfirðingar oftast átt
sterka skíðamenn og íþróttastarf
fatlaðra hefur einnig verið öflugt
gegnum árin. Nýja húsið mun
valda algjörri byltingu í íþrótta-
málum á staðnum og mun gera
Seyðisfjörð að betri stað að búa
á.“
Ólafur í hinu nýja og stórglœsilega íþróttahúsi á Seyðisfirði. Við
hlið hans er byggingameistari hússins, Garðar Eymundsson.
Ljósm. as