Austurland - 24.09.1998, Side 8
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
T'\U>°Ö
Sokkar og nærföt í úrvali
Frá Sjöfn:
Taumýkir
Blik uppþvdttavéladuft
Frá Kjötkaup:
Trippasaltkjöt
Fdlaldapiparsteik
,» daga frá M.lo.oo-Jo
o«' 900
NESBAKKI
@477 1609 og 897 1109
Austurland
Neskaupstað 24. september 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Gönguhópurinn með lieimabœinn í baksýn. Fögur er hlíðin!
Danskennsla í Grunnskóla Reyðarfjarðar
Líflegt hefur verið í Verkmenntaskóla Austurlands undanfarið.
Á dögunum var haldin grillveisla fyrir alla nemendur skólans og var
við það tilefni keppt í bandí á planinu við skólann. Á mánudag var
svo farið í hina árlegu fjallgöngu skólans en hún er ætluð efri
bekkjum grunnskólans einnig. I þetta sinn var gengið upp að Lolla
og svo upp á Hellisfjarðarmúla. Ferðin þótti vel heppnuð enda
veður með afbrigðum gott, hitinn um 16 gráður og heiðskírt. Stór
hluti nemendanna tók þátt í göngunni og komust allir á tindinn
stórslysalaust. Þessar gönguferðir hafa verið hefð í skólanum um
langt skeið og er þetta dæmi um skemmtilegar hefðir sem geta
skapast innan skólanna, en gönguferðirnar eru meðal bestu
minninga margra af skólavist unglingsáranna.
Nú er verið að taka upp á þeirri
nýbreytni að kenna dans í
grunnskólum í sameinuðu sveit-
arfélagi Eskifjarðar, Neskaup-
staðar og Reyðarfjarðar. Þegar
blaðamenn voru á ferðinni á
Reyðarfirði í vikunni var dans-
kennsla að hefjast en Guðrún
Smáradóttir, danskennari, mun
sjá um kennsluna. Þar með eru
danskennslumál komin í betra
horf hér en víðast á landinu og
sem dæmi má nefna að einungis
fimm danskennarar þjóna allri
höfuðborginni. Danskennsla er
mikilvægur þáttur í að efla
hreyfiþroska barnanna og kenna
þeim að umgangast hitt kynið og
því er afar gott að eiga mögu-
leika á að bjóða upp á hana.
Pylsuritar brögðuðust greinilega vel, en hér
má sjá dr. Gunnar Olafsson, kennara, í hlutverki grillmeistara.
Göngin lokuð frá 8 til 6
v
Börnin virtustu skemmta sér vel í dansinum og þegar blaðamenn
Austurlands koiitu í heimsókn
var stiginn „línudans“ að hœtti
amerískra „sveitalubba“.
Ljósnt. as
Alla þessa viku hafa Odds-
skarðsgöngin verið lokuð frá
klukkan átta á morgnanna til
klukkan sex á kvöldin vegna
framkvæmda. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Vegagerðinni fer
það mikið til eftir tíðarfari hversu
mikið verður unnið í göngunum
núna, en ætlunin er að halda
áfram að klæða gangaveggi með
mottum en auk þess verður
unnið eitthvað í gólfi ganganna,
en það er orðið nokkuð slitið,
sérstaklega þar sem mestur
vatnsleki hefur verið. Ekki er
ljóst hvenær framkvæmdum
lýkur en ef veðrið helst gott
gætu framkvæmdir dregist eitt-
hvað fram í næstu viku.
Á meðan göngin eru lokuð er
umferð beint yfir skarðið, en
vegurinn yfir hefur verið lagaður
til og heflaður þannig að vand-
ræðalaust ætti að vera að fara
yfir ef tíðin helst.
Bílar skemmdust á Vopnafirði
Slippfélagið
Málningarverksmiðja SIMI: 588 8000
Á föstudag varð það óhapp þeg-
ar verið var að sprauta lýsistanka
hjá Lóni hf að málning fauk frá
sprautubúnaði og dreifðist um
bæinn. Uðinn var afar fíngerður
en hann sást víða glögglega á
bifreiðum og þá sérstaklega við
frystihúsið og sláturhúsið sem
eru næst tönkunum. Að sögn
lögreglunnar á Vopnafirði hefur
verið tilkynnt um að málning
hafi farið á 60 bifreiðar og sé nú
verið að reyna að hreinsa hana
af, en það er gert með sérstökum
leir. Hreinsunin hefur gengið vel
og það er talið skipta miklu máli
að rigning var þegar atvikið átti
sér stað og kalt í veðri. Eins og
stendur er ekki ljóst hvaða
ábyrgð aðilarnir, sem stóðu að
málningarframkvæmdunum,
bera á atvikinu, en málið er í
rannsókn.