Austurland - 15.10.1998, Síða 3
FIMMTUDAGUR 15. OKTOBER 1998
3
Áslaug Þórarinsdóttir, síðasti
sýslumaðurinn í Neskaupstað
Nýlega var Aslaug Þórarinsdóttir sett sem sýslumaður í
Neskaupstað, en Bjarni Stefánsson hefur nú verið skipaður sýslu-
maður á Hólmavík. Aslaug er sett í embætti til 1. júlí á nœsta ári og
verður hún síðasti sýslumaðurinn með aðsetur í Neskaupstað ef
frumvarp Þorsteins Pálssonar um sameiningu sýslumannsembœtt-
anna á Eskifirði og í Neskaupstað verður samþykkt í haust.
Blaðamaður Austurlands ákvað að forvitnast um hagi Aslaugar
eins og sannur smábœjarbúi.
Hvaðan kemur þú?
„Eg er uppalin í Reykjavík og
þar hef ég búið alla tíð. Þess
vegna finnst mér sérlega
spennandi að fá tækifæri til að
búa og starfa hér úti á landi.“
Hvaða nám og staifsreynslu
átt þú að baki?
„Ég útskrifaðist úr Lagadeild
Háskóla íslands árið 1989, en ég
fór í nám á fullorðinsárum. Eftir
að ég útskrifaðist fór ég að vinna
í Dómsmálaráðuneytinu og þar
hef ég starfað síðan. Ég starfaði
á svonefndri einkamálaskrif-
stofu ráðuneytisins, en hún fer
m.a. með sifjamál. Urskurðir
sýslumanna um t.d. meðlags-
greiðslur eru kærðir þangað ef
málsaðilar eru ekki sáttir við
hlutskipti sitt. Þar er einnig
fjallað um ættleiðingar og fleiri
málaflokka."
Af hverju ákvaðst þú að ráða
þig í þessa stöðu ?
„Ég var farin að huga að
breytingum á starfsferlinum fyrir
nokkru. Ég gaf til kynna áhuga
minn á því að fá sýslumanns-
stöðu þegar ég sótti um stöðu
sýslumanns í Vestmannaeyjum
og í kjölfar þess var ég sett í
stöðu sýslumanns á Hólmavtk
tímabundið. I framhaldi af því
bauðst mér þessi staða í Nes-
kaupstað. Ég lít á þetta sem
spennandi tækifæri til að sanna
mig í starfi og ég held að þetta
verði mjög góð reynsla, bæði
persónulega og faglega.“
Hvernig líst þér á að stjórna
embœtti afþessari stœrðargráðu?
„Mér lýst mjög vel á það.
Þetta er embætti af þeirri
stærðargráðu að það ætti að gefa
manni mjög fjölbreytta og góða
Inflúensubólusetning
Bólusetning til varnar inflúensu
hófst 7. október.
Fólki með langvinna sjúkdóma svo og
lungna- og hjartasjúkdóma er sérstaklega bent ó
að lóta bólusetja sig.
Einnig þeim sem eru 65 óra og eldri.
Tímapantanir í síma 477 1400
á milli kl. 8 og 10 alla virka daga.
Heilbrigðisstofnunin Neskaupstað
reynslu að stjórna slíku
embætti."
Hvernig líst þér á að stjórna
lögregluliði?
„Mér líst vel á það. Ég á von
á góðu samstarfi við lögregluna
á staðnum. Þetta eru menn með
mikla reynslu og ég hef trú á að
samvinna okkar verði árangurs-
rík.“
Hyggst þú breyta starfi lög-
reglunnar með einhverjum hœtti
eða leggja áherslu á einhverja
málaflokka umfram aðra?
„Ríkislögreglustjóri er með
átak í gangi sem miðar að því að
fækka afbrotum og draga úr neyslu
ólöglegra vímuefna. og við
munum starfa samkvæmt þeirri
stefnumörkun."
Telur þú að það sé rétt að
sameina sýslumannsembœtti
frekar en orðið er?
„Þessari spurningu er erfitt að
svara játandi eða neitandi. Það
eru rök með hvoru tveggja. Ég
þori hins vegar að fullyrða að
það er skoðun dómsmálaráð-
herra að sameining embætta eigi
ekki að verða til þess að þjónusta
á landsbyggðinni skerðist. T.d.
verður áfram afgreiðsla hér í
Neskaupstað þó að sýslumaður
muni sitja á Eskifirði, þannig að
borgarinn á ekki að verða var við
breytinguna nema að litlu leyti.“
Nú hefur lögfrœðingastéttin
verið ein af þessum hefðbundnu
karlastéttum. Myndir telur þú að
konur fái fœrri tœkifœri en
karlar þegar lögfrœðistörf eru
annarsvegar?
„Ég held að það megi segja
að konur séu í sókn á þessum
vettvangi og það endurspeglast
Ókeypis smáar
Óska eftir
Vantar ódýrt eða ókeypis
innbú, t.d. sófasett, ísskáp,
þvottavél og fleira.
Upplýsingar í 0)477-1629
Hillur og hílluberar
líyggt og l lutt
2477 1515 Ncskuupstaö
2476 1435 Ilskinrði
Til sölu
Vetrardekk 175/70R 13“.
Einnig hamstrabúr
Uppl. í 0)477 1571 f.h. og 477
1740 á e.h. Erla - Sara
Til sölu
Nýr Harley Davidson mittis
leðurjakki Stærð 50. Mjög
fallegur.
Uppl í 0)477 1366
' Tapað / fundið
Vínrautt, 24“, 5 gíra, DBS
stúlknareiðhjól, 24“, ásamt hjálmi
er í óskilum við sundlaugina í
Neskaupstað.
Eigandi getur vitjað hjólsins
þar.
Áslaug Þórarinsdóttir, nýráðin sýslumaður í Neskaupstað.
Ljósm. S.Ó.
m.a. í því að konur eru orðnar
nánast jafn margar og karlar í
Lagadeild Háskólans. Hins veg-
ar hafa konur ekki verið jafn
duglegar og karlar að sækja um
sýslumannsstöður og því eru þær
ekki margar í þeirri stétt.
Hvernig lýst þér á bæinn ?
„Mér líst afar vel á bæinn.
Hér virðist vera allt til alls og
náttúran er hreint stórkostleg.
Þegar ég kom í heimsókn hingað
um daginn varð ég afar undrandi
að sjá auglýsta tónleika með
Pétri Östlund, en hann hef ég
ekki séð á sviði í hartnær 30 ár.
Ég fór á tónleikana og skemmti
mér alveg frábærlega, en ég er
viss urn að ég hefði ekki farið ef
ég hefði verið fyrir sunnan.“
Stuöningur við nvsköpun og þróunarverkefni
Atvinnuþróunarsjóður Austurlands veitir stuðning við þróun
og nýsköpun í austfirsku atvinnulífi. Um er að ræða
fjárhagslegan stuðning í formi hlutaljárkaupa, lánaog styrkja
og er umsóknarfrestur vegna næstu úthlutunar til 10.
nóvember. Nauðsynlegt er fyrir þá sem hyggjast sækja um
fyrirgreiðslu úr sjóðnum að kynna sér reglur hans um
úthlutanir og umsóknir. Hreinn Sigmarsson, ráðgjafí hjá
Þróunarstofu Austurlands, gefúr nánari upplýsingar og veitir
ráðgjöf varðandi gerð umsókna
Símanúmer Þróunarstofunar er 471 -2545
og faxnúmer 471 -2089.
A tvbvmþróunarsjóður A ustiirlands
- AFLVAKI í AUSTFIRSKU ATVINNULÍFI -
DIESELVÉLAR ■ TÚRBÍNUR
SMIÐJUVEGUR 28, Pósthólf 597 - 200 Kópavogi - Sími: 567 2800 - Fax: 567 2806
L- OG
HJALPARVÉLAR
MIKIÐ ÚPVAL
HAGSTÆTT
VEPÐ
Vinsamlega
leitið
tilboða!
MDVÉLAR HF.
VÉLBÚNAÐUR • VARAHLUTIR