Austurland - 29.10.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
Austuriand
Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) S 4771383og8994363
Blaðamaður: Sigurður Ólafsson B 477 1373 og 895 8307
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgrciðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurland@eldhorn.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og hönnun: Austurland
Prcntun: Nesprent hf.
Tryggja verður afkomu
þeirra lægst launuðu
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á vegum
Félagsstofnunar er um 9% þjóðarinnar undir fátæktarmörkum og
eru konu þar í meirihluta, eða 12% á móti 8% karla. I sömu
rannsókn kemur fram að margt bendi til þess að velferðakerfið á
Islandi styðji ekki nægilega við bakið á þeim sem standa höllum
fæti í þjóðfélaginu, svo sem öryrkjum og langveikum.
Þessar niðurstöður eru sláandi en um leið ættu þær ekki að koma
neinum á óvart. A sama tíma og alþingismenn ræða það fram og til
baka hvort þeir eigi að hækka hjá sér launin kemur fram að þeir sem
eiga um sárt að binda hér á landi eiga varla til hnífs og skeiðar. Allar
tilraunir talsmanna þessara hópa til að fá kjör þeirra bætt hafa mætt
daufum eyrum ráðamanna og þegar kemur að því að rekja ástæður
þess að ekki er hægt að bæta kjör þessara hópa eru svörin fjölbreytt.
Alþingismenn er hreinlega snillingar í að koma með svör sem hinn
almenni borgari skilur yfirleitt ekki og benda á hluti sem
almenningur gerir sér ekki grein fyrir, en niðurstaðan er alltaf sú
sama: Kostnaðurinn við að bæta kjör þeirra sem hafa það verst er of
mikill til að hægt sé að fara út í slíkar aðgerðir eða; þessir hópar
hafa það alls ekki svo slæmt. Þeir gera sér bara ekki grein fyrir því
sjálfir!
Það hlýtur að vera réttmæt krafa allra Islendinga að hafa í sig og
á. Það ætti ekki að vera pólitísk ákvörðun hvort stór hópur lands-
manna býr við mannsæmandi kjör eða ekki heldur sjálfsagður hlut-
ur sem stjómmálamenn landsins taka að sér að framfylgja. Þessa
dagana er tískuorðið í íslenskri pólitík „góðæri“; en góðæri fyrir
hverja? Svo virðist vera að núverandi stjóm hafi lítið gert til að
ákveðnir hópar hér á landi finni fyrir þessu góðæri, þ.e. þeir sem
hafa það verst, en gera allt sem þeir geta til að tryggja betri afkomu
þeirra sem hafa það best nú þegar. Þessi mismunun er löngu orðin
óþolandi og breytinga er þörf.
Nokkur orð um námslán
í vikunni bárust fréttir af því að einn nemandi við Háskóla íslands
hefði ákveðið að fara í mál við stjórnvöld vegna þeirra upphæðar
sem stúdentum er ætluð til framfærslu. Sú upphæð er byggð á út-
reikningum frá árinu 1974 og er tæplega 58.000 kr. sem er t.d. lægra
heldur en fullar atvinnuleysisbætur. Þar með er ekki öll sagan sögð
því lánin em tekjutengd sem þýðir að ef stúdent reynir að tryggja
sómasamlega afkomu yfir veturinn með mikilli vinnu yfir
sumartímann, eða með aukavinnu, þá lækkar lánsréttur viðkomandi
til muna.
Samskipti nemenda HI og stjórnar lánasjóðsins hafa löngum
einkennst af kröfum af hálfu nemenda og afskiptaleysi af hálfu
stjórnar. Það er eins og það komi lánasjóðnum best að upphæðin
sem stúdentar fá sé sem lægst og sem fæstir fái lán. Skýringarinnar
getur verið að leita í þeirri staðreynd að þegar þeir sem stjórna
lánasjóðnum í dag vom í námi, var staðan sú, að þeir þurftu lítið
sem ekkert að borga til baka af þeim námslánum sem þeir tóku. Sú
er ekki raunin í nú og þrátt fyrir að lánin séu mjög hagstæð miðað
við önnur lán á íslandi, þá þurfa námsmenn að endurgreiða hverja
krónu sem þeir fá að láni.
Það hlýtur að vera réttmæt krafa að stúdentum sé tryggð sóma-
samleg framfærsla meðan þeir stunda nám því eins og staðan er
þurfa þeir annaðhvort að búa við sultarkjör eða vinna með námi, en
hvorutveggja hlýtur að koma niður á námsárangri.
Rjúpnaveiðiferðlr orðnar eins
og laxvelðiferðir
Mikið af veiðimönnum frá suð-
vestur hominu hefur leitað til
Austurlands í von um góða
rjúpnaveiði. Eitt af þeim fyrir-
tækjum sem hafa notið góðs af
þessari veiðiþrá Reykvíkinga er
hótel Bláfell á Breiðdalsvík.
“Það var mikið af mönnum
hér “í opnuninni, þ.e. fyrstu
helgina sem veiðar voru leyfðar”
sagði Helga Jónsdóttir, annar
rekstraraðila Bláfells í samtali
við blaðið. “Það er ljóst er að nýr
markaður hefur skapaðist með
þessu, en í fyrra komu ekki
nema 3 eða 4 til okkar í þessum
tilgangi en á milli 15 og 20 í ár.
Eg hef líka spurnir af því að
nokkrir hafi verið í bænda-
gistingu hér á svæðinu og einnig
gistu nokkrir á Fáskrúðsfirði.
Síðan em allir sem ég hef ekki
heyrt af’.
Ljóst er að um töluverða fjár-
muni er að ræða í þessu sam-
bandi, en um helmingur þeirra
veiðimanna sem gistu á Bláfelli
komu fljúgandi til Egilsstaða og
leigðu bílaleigubfl til aðkomast á
Breiðdalsvík. Ofan á þann
kostnað bætist þá gistingin og
kaup á veiðileyfi fyrir utan allan
annan kostnað.
“Þetta er orðið svipað og að
fara í lax. Menn eru greinilega
ekki að spara við sig, fara nokkr-
ir saman og hafa það huggulegt.
Við vorum einmitt að taka í
notkun sánabað hér á hótelinu
og það vakti mikla hrifningu.
Menn sátu eftir erfiði dagsins r
sána, dmkku bjór og báru saman
bækumar” sagði Helga.
Það er síðan vonandi að
áframhald verði á heimsóknum
manna hingað og spuming hvort
ekki verði hægt að bjóða upp á
skipulagðar ferðir fyrir byssu-
glaða menn, bæði úr öðrum
fjórðungum og einnig frá út-
löndum
Nýr skjólgaröur á Stöðvarfirði
Skjólgarður hefur verið reistur
við smábátahöfnina á Stöðvar-
firði. Um er að ræða 80 fermetra
grjótgarð og er þetta framkvæmd
upp á 14 milljónir króna.
Verkið, sem hófst í júlí á þessu
ári, gekk að mestu eftir áætlun
en það var verktaki frá
Grundarfirði sem vann verkið.
“Þetta er alveg nýr skjól-
garður og um leið verður
smábátahöfnin færð aðeins til”,
sagði Jósef Friðriksso, sveitar-
stjóri á Stöðvaifirði, í samtalið
við blaðið. “Gamla aðstaðan var
frekar þröng og með þessum
breytingum stórbatnar aðstaðan
fyrir smábáta”.
Verkinu er reyndar ekki alveg
lokið en sá hluti sem boðinn var
út í vor hefur verið kláraður.
Eftir er að þekja svæðið í kring
og malbika og er stefnt á að gera
það næsta sumar. Það er verið að
endurskoða hafnaráætlun þessa
dagana og vonandi eru
einhverjir peningar þar inni sem
leyfa okkur að klára verkið.
Þegar Ijósmyndari Austurlands var á ferðinni á Stöðvarjirði í
suniar var verið að nema grjót í hiitn itýja skjólgarð. Ljósm. as
Afmæli
Guðríður Friðrika Þorleifsdóttir, íyrrverandi
húsfreyja í Viðfirði og Naustahvammi, til
heimilis að Mýrargötu 18, Neskaupstað,
verður90 ára4. nóvember nk.
Hún tekur á móti gestum á afmælisdaginn í
Sigfusarhúsinufrákl. 15.30-19.00
ATH!
Ekki gleyma að fara
með fötin í hreinsun.
Við höfum opið virka
daga frá
kl. iz.45 - ió.oo
rmn
Læku
Egilsbraut
Ljósmyndari Austurlands skellti sér á rjúpnaveiðar um síðustu
helgi, ekki vopnaður byssu, heldur myndavél. Ekki var veiðin
mikil og sá eini sem „skaut“ eitthvað var Ijósmyndarinn. Ljósrn. as
as