Eining - 01.06.1945, Page 7
r
E I N I N G 7
Vormorgunn
Hve dagurinn er heiður! Nú hillir ströndin blá,
og hamraborgin fagra. Þar logar tindum á.
í morgunroða gullmerluð glóa höfin þönd.
Um grænar hlíðar belta sig silfruð þokubönd.
Og það er eins og heimurinn hafi fæðzt í nótt.
Um hreinleik ber allt vitni og guðdómlegan þrótt.
Nú mundi enginn skilja neitt skraf um böl og synd.
Það skín á öllu guðdómsins heilög dýrðarmynd.
Pétur Sigurðsson.
I. O. G. T.
Umdæmisstúkan nr. 1
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 var
háð hér í Reykjavík dagana 26. og 27.
maí. Sátu það 111 fultrúar úr Suður-
landsumdæminu og voru þeir frá 2
þingstúkum, 16 undirstúkum og 5 ungl-
ingastúkum. Umdæmisstigið tóku 25 fé-
lagar.
Samkvæmt skýrslu umdæmistemplars
hefur félögum í undirstúkum í umdæm-
inu fjölgað um 500 á árinu sem leið, en
alls munu nú vera um 6000 Templarar
í Suðurlandsumdæmi.
Tvær nýjar undirstúkur voru stofn-
aðar á árinu, önnur að Selfossi, hin í
Hveragerði og hafa þær stöðugt verið
að auka félagatölu sína. Auk þess var
stofnuð þingstúka fyrir Rangárþing.
Helztu samþykktir þingsins voru
þessar:
1. Áskorun til bæjarstjórnar Reykja-
víkur um að rannsaka hver áhrif
áfengisútsalan hefur á bæjarfélagið,
menningu þess og fjárhag.
2. Áskorun til ríkisstjórnarinnar um að
láta lögin um héraðabönn koma til
framkvæmda nú þegar.
3. Mótmæli gegn stofnun nýrrar áfeng-
isbúðar í Reykjavík.
Framkvæmdanefnd Umdæmisstúk-
unnar var að mestu endurkosin og skipa
hana nú:
Jón Gunnlaugsson stjórnarráðsfull-
trúi, umdæmistemplar.
Þorsteinn Þorsteinsson kaupmaður.
Sigríður Haldórsdóttir frú.
Þorsteinn Sveinsson héraðsdómslög-
maður.
Ingimar Jóhannesson skólastjóri.
Guðjón Magnússon skósjníðameistari.
Jón Hafliðason fulltrúi.
Kristín L. Sigui'ðardóttir frú.
Pétur Zophoníasson ættfræðingur.
Guðgeir Jónsson bókbandsmeistari.
Mælt var með Guðmundi Þorbjarnai'-
syni, Stóra-Hofi, sem umboðsmanni
stórtemplars.
Skýrsla umdæmistemplars ber það
með sér, að víða hafa verið hafðir út-
breiðslufundir í umdæminu á síðast
liðnum vetri, sumir fjölmennir og mjög
vel hcppnaðir. Yfirleitt hefur verið innt
af hendi fjölþætt og mikið starf: út-
breiðslustarf, leikstarfsemi, mikil þátt-
taka í velheppnuðu happdrætti, bindind-
ismálasýning í Reykjavík, útgáfustarf-
serni og margt fleira. Ýmsar stúkur
hafa starfað ágætlega. Að sumu leyti
hafa undanfarnir tímar verið óhagstæð-
ir og skapað alls konar erfiðleika. Um-
dæmistemplar hefur vakað vel yfir sínu
starfi og lagt á sig fyrir það mikla fyr-
íihöfn.
Happdrætti templara
Dregið var hjá borgarfógeta, og upp
komu þessi númer:
34189 27156 13457 8186 15154
32595 38241 10976 36036 8558
13886 35836 4312 35827 45335
46462 47831 33698 20352 35677
1407 40405 48249 19678 44483
424 20797 23516 21417 9345
22362 37848 11896 11304 4805
9359 24650 44514 14625 4864
46545 11235 11862 10027 5951
48865 3542 32640 46236 48121
16097 8366 6023 16789 9923
23366 23743 11337 21805 2528
47119 8296 42179 34501 10868
44740 41190 31167 48039 8749
18111 19668 16147 8782 17111
46323 43079 46432 45148 47488
31418 44742 14806 31753 19431
38811 1891 44858 44300 44708
31140 45271 17599 317 24933
1107 3666 8426 34274 41512
23111 41304
Birt án ábyrgðar.
Vinninganna sé vitjað á Fríkirkjuveg
11, kl. 6—7 e. h. alla virka daga, nema
laugardaga.
F ögnuður
og skrílsháttur
f Reykjavík eru margir andbanning-
ar, og munu þeir vera allfjölmennir í
stétt viðskiptamanna. Mér varð að orði,
er eg gekk um bæinn og virti fyrir mér
rúðubrotin í verzlunum bæjarins eftir
fagnaðardagana 8. og 9. maí; Einu sinni
fengu þá hlutaðeigandi Reykvíkingar að
sjá og finna til þess, hve notalegt það
er að menn stjórnist af skjólstæðingi
þeirra — Bakkusi.
Áfengisviðskipti fslendinga, Englend-
inga, Ameríkumanna og annarra þjóða
er svartur blettur á menningu þeirra.
Ruslaralýður sumra þessara þjóða er
víst nógu illa upp alinn og nógu menn-
ingarsnauður, þótt ekki sé hann einnig
gerður bandóður og vitlaus með áfengi.
Brezku sjóliðarnir, er æddu um götur
Reykjavíkur þessi kvöld, æpandi, garg-
andi, veitandi dauðadrukknir, að öllu
leyti eins og örgústu villimenn, mölvuðu,
skemmdu og stofnuðu til hryðjuverka,
voru lítill sómi þjóð sinni. Ilið sama má
segja um þann strákaskríl okkar, sem
gerði sitt til þess að gera friðarfögnuð-
inn að sömu viðurstyggðinni og
skemmdarverk sjálfrar styrjaldarinnar.
Þegar athuguð eru áfengisviðskipti
hinna voldugustu þjóða heimsins og
hinar hryllilegu og villimannslegu af-
leiðingar þeirra, þá verður manni að
spyrja, hvort þessar þjóðir trúi ekki
fremur á áfengi og peninga, en Guð,
þótt þær tali fagurlega og auðmjúklega
um Guð, þegar fjandinn er að því kom-
inn að hirða þær. Þessar þjóðir þykjast
halda uppi vörn og baráttu fyrir frelsi
og farsæld allra þjóða, en búa milljónum
manna hin aumustu og átakanlegustu
kjör með peningadýrkun sinni og áfeng-
isviðskiptum. Áfengisneyzlan eyðilegg-
ur fyrir þeim sjálfum fleiri menn en
hinar mannskæðustu styrjaldir. Áfeng-
isneyzlan setur svarta bletti á mann-
dóm og menningu þjóða við öll hátíðleg
tækifæri, á allan mannfagnað, hvort
heldur eru ófriðarlok, vertíðarlok, jafn-
vel jólahátíð og fermingarveizlur.
Lengi munum við minnast framkomu
ensku sjóliðanna í Reykjavík við ófrið-
arlokin 8. og 9. maí 1945. Meðan þjóð-
irnar rækta villimennsku, tilbiðja nautn-
ir og peninga, er ekki mikil von um var-
anlegan frið í heimi manna, þótt þær
tali fagurlega um frið og hræsni eitt-
hvað um trú á Guð og sjálfan friðar-
höfðingjann.
Pétur Sigurðsson.
Leiðrétting.
í síðasta blaði hafði misprentast fyr-
irsögn á smágrein á 1. bls. Þar stóð:
Forsetaefnið, en átti að vera: Ráðherra-
efnið. En ef til vill vei’ður þessi tilvilj-
un sannspá.