Íþróttablaðið - 01.01.1925, Page 7

Íþróttablaðið - 01.01.1925, Page 7
y 7^' Jþróttablaðið K Gefið út af Iþróttasambandi Islands. I. árgangur. ]anúar 1925. 1. tölublað. Á [/ARP. Það hefir verið á döfinni nú um hríð, að íþróttasamband íslands héldi úti blaði um íþróttamál. Var þessu máli hreyft á aðalfundi Sambandsins 1922, og samkvæmt ákvörðun þess fundar Ieit- aði sambandsstjórnin álits félagsmanna í þessu efni. Undirtektir manna urðu á einn veg, að hin mesta nauðsyn væri á slíku blaði. Á aðalfundi 1923 var því samþykt að fela stjórninni framkvæmdir þessa máls. Stjórnin reyndi í upphafi að fá samvinnu við þau blöð, sem hafa íþrótta- og uppeldismál á stefnu- skrá sinni, Þrótt, Skinfaxa og Skólablaðið. Þau málalok hafa orðið, að Sambandið hefir keypt Þrótt af íþróttafélagi Reykjavíkur. Verður íþróttablaðið sent öllum kaupendum Þróttar, og er þess fastlega vænst, að þeir séu eigi síður fúsir að styðja þetta blað og telji sig kaupendur þess framvegis. En um öll gömul viðskifti Þróttar er íþróttafélag Reykjavíkur aðili. Stefnu blaðsins má marka af nafni þess. Það á að fjalla um allar íþróttir, sem Sambandið hefir á stefnuskrá sinni, og öll áhugamál íþróttamanna. Verður reynt að gera það svo úr garði, að efni þess verði sem fjölbreyttast, bæði fræðandi greinir um íþróttaiðkanir, íþróttafréttir og myndir. Um leið og íþróttablaðið hefur göngu sína, heitir Sambandsstjórnin á alla góða drengi, sem láta sig heilsu og atgervi íslenzkra æskumanna einhverju skifta, að veita því eindreginn stuðning. Allir íþróttamenn og íþróttaunnendur verða, sjálfra sín og sinna vegna, að gerast kaupendur þess, senda því fréttir og fræðandi greinir hver úr sínu bygðarlagi. Það væri ómetanlegt tjón því málefni, sem blaðið á að vinna fyrir, ef þessi tilraun yrði að engu fyrir deyfð og áhugaleysi íþróttamanna sjálfra. En geri allir skyldu sína, er það vafalaust, að halda megi úti góðu mánaðarriti um íþróttamál, og þá mun ekki líða á löngu, áður en auðið verður að stækka blaðið að mun. í því trausti að þetta megi rætast og að árið 1925 megi verða íþróttunum farsælt og heilla- ríkt ár, bjóðum vér öllum íþróttamönnum GLEÐILEGT NÝÁR. Stjórn íþróttasambands íslands, I. janúar 1925. A. V. Tulinius, Ben. G. Waage. Guðmundur Kr. Guðmundsson. forseti. Halldór Elansen. Pétur Sigurðsson.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.