Íþróttablaðið - 01.01.1925, Side 10

Íþróttablaðið - 01.01.1925, Side 10
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 4 Siglufjörður (frá Hvanneyrarskál skipabryggjum og síldartorgum. Þaðan sést og til Grímseyjar. Var mikið tekið af myndum í þessari fjallgönguför. Hér í Hvanneyrarskálinni, hefir Skíðafélag Siglufjarðar aðalbækistöð sína á vetrum. Eru skíðamót félagsins haldin þar árlega — þegar gefur. Félagið hefir gefið vandaðann silfurbikar, er ber nafnið Skíðabikar Islands, og keppa skal um árlega, frá tímabilinu 15. febrúar til 15. apríl. Hefir stjórn I. S. I. samþykt reglur fyrir hann; og er öllum félögum innan I. S. I. heimil þátttaka. Keppendur mega ekki vera yngri en 18 ára. Eins og menn vita eru þarna orðlagðir skíðamenn, sér- staklega Fljótamenn. Sagt var mér að flestir stæðu á skíðum ofan úr Hvanneyrarskál (sem er 300 stik- ur yfir sjó), og nokkrir ofan af Strákahyrnu; er það afarvel gert, og þarf mikla æfingu. Nú í vetur hefir Skíðafélagið í hyggju að halda þarna skíða- mót, fyrir alt land. Og væri þá mjög æskilegt að Skíðafélag Reykjavíkur gæti sent menn á það mót; því efalaust yrði mikið gagn af því. Skíða- íþróttin er ein af hinum nytsömu íþróttum, sem flestir ættu að nema og iðka. Og þó Sunnlendingar eigi erfitt með að iðka þessa ágætu íþrótt, vegna óstöðugrar veðráttu, þá verðum við að leggja rækt við þessa þjóðlegu og gagnlegu íþrótt Vona ég að Skíðafélag Rvíkur taki þetta til athugunar, og komi því í framkvæmd að skíðamenn verði sendir héðan, á þetta næsta allsherjar skíðamót. IV. Þann 14. júlí (um kvöldið) fórum við frá Siglufirði með e.s. »Síríus« til Akureyrar. Komum þangað kl. 3 um nóttina, eftir ágætissjóferð og mjög gott útsýni. Línur og litir voru svo dásamlegir um nóttina, að mönnum var ekki svefnsamt á sigling- unni inn hinn fallega og langa Eyjafjörð, sem mér þótti vera fallegastur fremst, að Hrísey. Myndin sem hér er birt af Ólafsfjarðarmúla, var tekin um nóttina. Mjög var gaman að sjá síldartorfurnar á leiðinni, og skemti bæði rauði kardínálinn og aðrir farþegar sér við þá sjón. Eins og áður er sagt var síldveiðin nýbyrjuð og lágu veiðiskipin á víð og dreif, bæði fyrir utan Siglufjörð og Eyjafjörð. Þó við • kæmum ekki fyr en kl. 3 um nóttina til Akur- eyrar, var þar fjöldi fólks á Hafnarbakkanum, og hópur íþróttamanna að taka á móti okkur. A Akureyri sýndum við svo daginn eftir, í sam- komuhúsi bæjarins. Var þar gott að sýna, því húsið er stórt og rúmgott. Sýndum við þar í miðj- um salnum, en ekki á leiksviðinu; en áhorfendur voru þar alt í kring, bæði niðri og uppi á vegg- svölunum. Ahorfendur tóku okkur afarvel, og virt- ust kunna að meta það sem vel var gert. I þessu sambandi skal ég geta þess um fimleikasveitina, að allir fimleikamennirnir fóru t. d. heljarstökk í straum. Þegar fimleikasýningunni var lokið, komu ýmsir bæjarbúar og þökkuðu okkur fyrir sýninguna. Létu sumir þeirra svo ummælt, að þessi sýning hefði ekki staðið að baki fimleikasýningu Norðmanna (Christiania Turnforening) á Akureyri árið 1921. Sýningarskrá okkar var sú sama og á Siglufirði; eftir staðæfingarnar, var þreytt: hástökk yfir snúru, svo ýms stökk yfir hestinn (stóra), þá ýmsar dýnu- æfingar og síðastýmiskonarsveiflurásvifslá. (Frh.) Ólafsfjarðarmúli.

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.