Íþróttablaðið - 01.01.1925, Page 14

Íþróttablaðið - 01.01.1925, Page 14
8 IÞROTTABLAÐIÐ YFIRLÝSING. íþróttafélag Reykjavíkur hefir selt íþróttasam- bandi íslands blaðið „Þrótt“, sem það hefir haldið úti í nokkur ár. Um leið og í. R. þakkar kaup- endum „Þróttar11 stuðning þann, sem þeir hafa sýnt btaðinu, vœntir félagið þess, að þeir sýni „íþróttablaðinu“ sama vinarhug með því að kaupa það og Iesa. íþróttafélag Reykjavíkur. haustið eftir ferðina. Hefir hvergi áður verið skýrt frá þessari merkilegu ferð á prenti. Álfadans. Stjórn íþróttavallarins í Reykjavík gekkst fyrir álfadansi á íþróttavellinum sunnudags- kvöldið 4. þ. m. Höfðu íþróttamenn mikinn við- búnað enda fór dansinn prýðilega fram. Áhorfend- ur voru geysimargir og skemtu sér ágætlega. íþróttafréttir. Aðalfundur íþróttavallarins í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 11. febr. næstk. kl. 8V2 síðdegis á lesstofu íþróttamanna í Nýja Bio. Fulltrúar mæti með kjörbréf. Skjaldarglíma Ármanns. Svo sem siour hefir verið á undanförnum árum, gengst Glímufé- lagið Ármann fyrir kappglímu um Ármannsskjöld- inn 1. febr. næstk. Þess er að vænta að beztu glímumennirnir í bænum sitji nú ekki heima, held- ur gefi sig fram til þátttöku í glímunni. Sú var tíðin, að Skjaldarglímann var einn merkasti íþrótta- viðburður hvers árs, þegar þeir áttust við kapp- arnir Sigurjón, Hallgrímur og Guðmundur Stefáns- son og enn fleiri. Og jafnan síðan hafa beztu glímumenn í Reykjavík kept um skjöldinn. Ekki mun vera að efa, að bæjarbúar fjölmenni á glím- una, enda er þar vel varið einni kvöldstund. Lesstofa íþróttamanna. Á síðasta aðalfundi íþróttavallarins í Reykjavík var samþykt að koma upp lesstofu fyrir íþróttamenn. í haust var lesstof- an opnuð í Nýja Bio uppi. Hún er opin á hverju kvöldi kl. 8—10 og á sunnudögum kl. 4—6 og liggja þar frammi ýmis íþróttablöð og bækur. Les- stofan er kostuð af eigendum íþróttavallarins, sem eru 7 íþróttafélög í Reykjavík og í. S. í. Hvert félag um sig hefir vörð í lesstofunni einn dag í viku. Fyrsta för í. R. Grein sú eftir Ben. G. Waage, um norðurför í. R., sem hefst nú í blað- inu, er ágrip af fyrirlestri, sem fluttur var í I. R. Eggert Kristjánsson & Co. Heildsölu- og Umboðsverslun. Símnefni Eggerts. Rvík. Talsími 1317. Höfum venjulega fyrirliggjandi: Ávexti, þurkaða og nýja. Osta, allskonar. Dósamjólk. Chokolade, fl. teg. Bökunarefni og Krydd. Krystalssápur, Stangasápur. Handsápur, í miklu úrvali. Umbúðapappír, stórt úrval, og fl. og fl. LJtvegum kaupmönnum og kaupfélögum allskonar vörur beint frá útlöndum með lægsta verði. Fljót afgreiðsla. Fljót afgreiðsla. ^WWWWV W & ÍÞRÓTTADLAÐIÐ kemur út einu sinni í mánuði fyrst um sinn. Árgangurinn kostar 5 krónur. Ðlaðið vill fá útsölumenn í hverri sveit á landinu. Sölulaun 20°/o. Umafgreiðslublaðsinsoginn- heimtu sér hr. Steindór Björnsson, frá Gröf; Grettisgötu 10. — Gjalddagi blaðsins er 1. júlí ár hvert. — Utanáskrift blaðsins er: íþróttablaðið, Pósthólf 546, Reykjavík. jffi Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétur Sigurðsson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.