Eining - 01.02.1949, Blaðsíða 1

Eining - 01.02.1949, Blaðsíða 1
7. árg. Reykjavík, febrúar 1949. 2. tbl. Bjarta hliðin Þeim mönnum, sem vilja að vel fari á með mannskapnum, vex að vonum mjög í augum margt, sem miður fer í lífi þjóðanna. Eitt af því, sem oft er nefnt í því sambandi, er hrun heimila og hjónaskilnaðir. Þá er og oft vitnað í Ameríku, því breitt er bakið á þeirri ^ ágætu þjóð og er því oft óspart notað ■ í ræðu og riti að þylja ýmislegt henni til lasts. Reader’s Digest birti í desemberheft- inu 1948 grein, sem heitir: Sannleikur- inn um hjúskaparlíf Ameríkumanna. Samkvæmt henni er giftingatalan hærri þar en i nokkru öðru landi. Árið 1947 voru hjónavígslur tvær milljónir — 14 hjónavígslur á hvert þúsund íbúa. Næst kemst Nýja Sjáland og Tékkóslóvakía með tæpar 11 vígslur á hvert þúsund. » Hæst var giftingatalan í Bandaríkjun- um árið 1946, er hún var 2,250,000, eða 60% hærri en 1939. „Ekki aðeins giftir sig fleira af ungu fólki, heldur giftir það sig einnig yngra í Bandaríkjunum en nokkurs staðar annars á vesturhveli jarðar“, segir í greininni. „Helftin ungra karlmanna í landinu eru kvongaðir innan 24 ára aldurs og helmingur ungra kvenna eru giftar innan 22 ára, og meira en þrír fjórðu beggja kynjanna innan 30 ára aldurs. Til samanburðar má benda á, að á írlandi er aðeins þrír fjórðu karl- manna giftir á því aldursskeiði og um helftin kvennanna. Engin efar, að börnin eru tengiafl fjölskyldulífsins. Því fyrr sem þau koma, því betra. Helmingur kvenþjóð- arinnar í landinu fæðir fyrsta barn sitt ' innan 23 ára og helmingur allra barna í þjóðfélaginu fæðast af mæðrum, yngri en 28 ára. Er þetta hvort tveggja að þakka giftingum á ungaaldri. Miklir kostir fylgja því, að foreldr- ar barnsins séu ung. Þá eru meiri lík- ur en ella til þess, að barnið alist upp við hamingju og heilbrigt jafnvægi og minni hætta á að það verði munaðar- laust við fráfall foreldra. Það eykur bæði ánægju og þroska hinna ungu for- eldra að umgangast börn sín, og allar líkur eru til þess, að slíkum foreldrum veitist sú ánægja að sjá barnabörn sín vaxa upp. Allt auðgar þetta og styrkir fjölskyldulífið". Þá bendir greinarhöfundur á, hversu aukin heilsuvernd og læknishjálp hafi dregið úr dauðsföllum, lengt mannsæv- ina, gersigrað, að heita má, ýmsar sjúk- dómsplágur og stuðlað þannig að vel- ferð heimilanna. Ung hjón, sem taki saman, geti því gert ráð fyrir um 40 ára samvistum, og með betra heilsu- fari og heilsuvernd, og bættum ýmsum lífsskilyrðum, sé frá upphafi lagður betri grundvöllur að velferð barnsins. Mat þjóðarinnar á gildi fjölskyldu- lífsins komi einna bezt í ljós í hinni sérstöku barnavernd á mörgum svið- um, 95 prósent barna, sem fæðist nú á dögum, eigi að geta náð þeim aldri, er þau geta séð fyrir sér sjálf, barna- dauðinn sé meira en fjórum sinnum minni, en hann hafi verið í byrjun ald- arinnar, sigrast hafi verið að mestu á mörgum skæðum barnasjúkdómum, og bætt uppeldi og viðurværi hafi gert börnin og unglingana hraustari og hæf- ari til að verjast sjúkdómum. Þá sé skilningur bæði foreldra og kennara á ýmsum sálfræðilegum vanda- málum barnsins stöðugt að aukast og komi sú nútímaþekking að góðu liði. — „Yfirleitt öfundar allur heimurinn okk- ur af góðum og farsælum kjörurn barna okkar“, segir þar. „Umönnun amerískra foreldra fyrir börnum sínum, sézt glöggt á því, hversu kostað er til uppeldis þeirra. Að meðal- tali ver fjölskyldan þremur árstekjum til þess að ala upp barn til 18 ára ald- urs. En auk þess beina kostnaðar, koma skattar í sambandi við skólamál, skemmtistaði og margvísleg hlunnindi. Næstum öll börn á aldrinum 7—13 ára njóta barnaskólakennslu, fjórir fimmtu hlutar á aldrinum 14—17 eru í skóla, og einn fjórði unglinganna á aldrinum 18—19 ára stunda nám við mennta- skóla. Þá sýna líftryggingarnar fúsleik manna til þess að fórna miklu í þágu öryggis og velferðar heimilanna. Næst- um fjórir fimmtu hlutar heimilanna í Bandaríkjunum hafa einhverjar slikar tryggingar. Meira en 75 milljónir manna eiga hlut í einkafyrirtækjum, er nemur til samans um 200 milljörð- um dollara. Hér við bætast svo um 50 milljarðar dollara ýmissa trygginga bæði félaga, samtaka og hins opinbera, í þágu heimkominna hermanna og ann- arra manna. Með þessu og öðrum al- mennum tryggingum, erum við hið bezt tryggða fólk í heimi og förum þar langt fram úr Englendingum“. Einnig er hér á það bent, að færri börn séu að meðaltali í hverri fjöl- skyldu, en áður hafði verið. Þetta gefi hverjum ungling betri skilyrði til menntunar, betra heilsufars, betri að- hlynningar að öllu leyti og lífskjara, sambúð foreldra og barna verði betri, og sökum ýmissa nútímaþæginda fái móðirin meiri tíma en ella, til þess að hlúa að hamingju og velferð heimilis- ins. Tveir þriðju allra fjölskyldna i landinu eigi bifreið og slíkt geri fjöl- skyldunni fært að lyfta sér upp um helgar,foreldrum og börnum saman. Þrátt fyrir allt þetta eru meinsemd- irnar augljósar. Mörg heimili sundrast. Árið 1946 voru hjónaskilnaðirnir 613, 000, en 1947 voru þeir 450,000. Hjóna- skilnaðirnir eru ekki alltaf til ills eins, en koma oft sem leiðrétting á flausturs- lega og illa stofnuðu hjúskaparlífi, og mest er það slíkt ungt fólk, sem skilur, hefur verið gift aðeins stutt og á eng- in börn. Flest giftir þetta fólk sig aftur og fer þá oft vel. Greinarhöfundur telur það meira bölr hversu margir foreldrar hlaupa frá heimilum sínum. Þannig höfðu 750,000 eiginmenn hlaupið frá heimilum sínum 1947, en 300,000 húsmæður. Þetta eru hér um bil helmingi fleiri heimili, en

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.