Eining - 01.02.1949, Side 5

Eining - 01.02.1949, Side 5
s. E I N I N G 5 Abraham Lincoln, fræg'asti for- seti Bandaríkjanna, sameinaði allra manna bezt, hina römmu alvöru lífsins og ódauðlega kímni og gamansemi. Abraham Lincoln sem „humoristi“. Abraham Lincoln er og verður senni- lega sá af forsetum Bandaríkjanna, sem hæst gnæfir í sögunni og mest á- * hrif hefur haft á líf milljóna manna, og mun verða einn þeirra ódauðlegu manna og mannvina, sem verða munu komandi kynslóðum skærustu leiðar- ljósin. Flestir, sem eitthvað hafa heyrt eðá lesið um Abraham Lincoln, vita það, að hann var maður harmkvæla og þján- inga. Öll rangsleitni var honum kvöl og hann þjáðist með öllum, sem bágt áttu, og þeir eru jafnan margir. Færri ( munu vita það, að þessi einstaki alvöru- maður var einnig um eitt skeið fræg- asti „humoristi“ þjóðarinnar. Hann sameinaði frábæra kímnigáfu og alvöru hins ábyrga og grandvara manns. Hann var máttugur í orðum og athöfnum. Svör hans voru oft hnitmiðuð og hár- beitt. Þegar hann var skóladrengur, hreitti kennarinn eitt sinn ónotum í hann og sagði: „Það er augljóst að þú hefur fengið betra fóður en kennslu". '+ „Já, það er sennilegt", svaraði Lincoln, „því að ég fóðra mig sjálfur, en þú kennir mér“. sönnunar. Hann greinir það eins auð- veltilega og illan þef. Sömuleiðis mun menntaður maður, alveg, á eðlilegan liátt. þekkja strax livað gott er, eins og t, hann þekkir andlit vinar síns“. Prófessor C. H. Dodd. Leiðinlegt er að vera ólærður, óskóia- genginn og ómenntaður, en leiðinlegra er þó, að vera lærður, skólagenginn, en ómenntaður. Abraham Lincoln var stór og sterk- ur, en hvorki fallega vaxinn né fríður. Hann var sérlega leggjahár og hand- leggjalangur, en kona hans var lágvax- in. Þegar fyrsta barn þeirra, Robert Todd, fæddist, hitti Lincoln nágranna sinn á götunni, sem óskaði honum til hamingju með erfingjann. „Já, ég þakka“, sagði Lincoln, „en ég var nú dálítið smeikur“. „Nú, hvað olli þeirri hrellingu?“ spurði hinn. „Jú, ég óttaðist að snáðinn kynni að fá annan fótinn frá mér, en hinn frá móður sinni“. Eitt sinn kom Lincoln blautur, kald- ur og hrakinn að veitingakrá og þráði að komast að eldinum og geta yljað sér. En umhverfis eldinn sat þá tvöfaldur hringur manna. Lincoln bað veitinga- þjóninn að færa hestinum sínum soðinn steinbít. „Steinbít“, hváaði þjónninn. „Hest- urinn étur ekki steinbít". „Ó, ekkert jafnast á við það að reyna“, svaraði Lincoln. Þjónninn tók þá steinbít á disk og færði hestinum, en allir mennirnir um- hverfis eldinn risu úr sætum sínum og fóru út á eftir þjóninum til þess að sjá, hvort hesturinn æti steinbít. Á með- an hagræddi Lincoln sér við eldinn. Þjónninn kom inn að vörmu spori og sagði: „Það fór eins og mig grunaði. Hesturinn étur ekki steinbít“. „Jæja“, svaraði Lincoln, „þá get ég étið hann“. Eitt sinn bað kunningi hans hann að lána sér milliskyrtu. „Ég á ekki til nema þá, sem ég er í og þá, sem ég er nýfarinn úr. Hvora viltu heldur?“ spurði Lincoln. Þannig tala vitmenn Jónas Jónsson, fyrrv. ráðherra, hef- ur nýlega tekið til máls um Heilaga ritningu. Jónas Jónsson er orðinn lífs- reyndur maður, hann er bókmennta- maður, einn hinn merkasti skólamaður þjóðarinnar, meðal alli'a ritfærustu manna hennai' fyrr og siðar, og í stjórn- mála- og félagsmálasögu landsins mun bera öllu meira á honum, en flestum öðrum samtíðarmönnum hans, þegar saga undanfarinna áratuga verður skráð. Á það þarf ekki að minna, að um þenna mann hefur staðið allmikill styr, eins og um flesta atkvæðamikla menn. Þetta, sem ég segi hér um Jónas Jóns- son, er ekki sagt af neinni fylgispekt við hann, því aldrei höfum við verið sambekkingar og ekki heldur flokks- bræður, en ég hygg að hér sé satt sagt um manninn og vil ég unna hverjum manni sannmælis, hvar helzt sem hann stendur í fylkingu mannlegrar bai'áttu. Það, sem Jónas Jónsson segir í Land- vörn 25. október s.l., um Biblíuna, er með allt öðrum hætti og málfari, en það sem grunnfærnir spjátrungar oft blaðra um þá bók bókanna. Hafa þá ungir námsmenn ráð á að sniðganga slíka bók? Jónas segir svo: „Gamla testamentið er Sturlunga Gyðinga. Eins og í Sturlungu kennir þar margra grasa líkt og í hverri þjóð- arsögu. En sökum vitsmuna og stór- felldrar snilligáfu Gyðinga eru guð- spjöllin perlur í heimsbókmenntum, og- þjóðarsaga ísraelsmanna full af spak- mælum og djúpvitrum frásögnum. Þó að ekki sé litið á biblíuna sem trúar- bók, er hún meðal einstæðustu bóka. Hún er „meistaralykill“ að hæstu heim- um andlegs lífs hjá menntuðum þjóð- um. — Skáld, rithöfundar og mælsku- menn í löndum með vestrænni menn- ingu sækja andagift og fleygar líking- ar í biblíuna. — 1 enskumælandi lönd- um kemur Shakespeare í þessu efni næst biblíunni, en hér á landi Edda og fornsögurnar. Hvar sem farið er um lönd hvítra manna, er hægt að gera ráð fyrir, að allir sæmilega menntaðir menn geti skilið líkingar úr hinni helgu bók. Ekkert annað ritverk á jörðunni jafn- ast að þessu leyti við biblíuna. Hún hefur frá fornöld verið brúin, sem tengdi snillinga og mælskumenn við til- heyrendur sína. Biblían er svo samofin andlegri arfleyfð vestrænna þjóða, að hvar sem komið er í þessum löndum, er erfitt að taka þátt í viðræðum vel menntaðra manna, nema með því að kunna góð skil á heilagri ritningu. Auk anda og efnis er sjálft mál biblíunnar hin mesta fyrirmynd snjallra rithöf- unda, og í sumum fegurstu forystu- löndum heimsins, svo sem Englandi og Þýzkalandi, er málfar biblíunnar hyrn- ingarsteinn, sem þessar þjóðtungur byggja á“.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.