Eining - 01.02.1949, Side 9

Eining - 01.02.1949, Side 9
E I N I N G 9 vA Styrkizt nú héðan frá í samfélaginu við drottin og í krafti máttar hans; klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðizt vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan, sem við eigum í, er ekki við blóð og hold, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrotna þessa myrkurs, við andaverur vonzkunnar í himingeimnum. Fyrir því skuluð þér taka alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hin- um vonda degi, og getið að öllu yfirunnu staðizt. Stand- ið því gyrtir sannleika um lenclar yðar og klæddir brynju réttlætisins og skóaðir á fótunum meö fúsleik til a8 flytja fagnaóarboóskay friðarins, — og takið ofan á allt þetta skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eld- legu skeyti hins vonda, takið hjálm hjálpræóisins og sverð andans, sem er Guðs orð. Með alls konar bæn og beiðni skuluð þér biðja á hverri tíð í anda, og verið árvakrir til þess með hinni mestu kostgæfni“. Efesubréfið 6, 10—18. , Avarp ritstjóra Einingar Kæru samherjar, systur og bræður. Þótt vængjuð farartæki hafi nú gert flestar fjarlægðir að litlu sem engu, þá er þó enn svo, að fótur margra er fastur, þá fljúga vill önd. Svo er um mig að þessu sinni. Ég er staðbundinn á skrifstofu minni í Reykja- vík, en nú leitar hugurinn vestur yfir t Atlandsála, inn á hina miklu Vesturmörk, þar sem er „háskóli lífs fyrir manntápsins vor“, leitar á slóðir sælla og ljúfra endur- minninga. Nú vildi ég vera horfinn á hátíðarfund stúknanna Heklu og Skuldar, cr þær minnast sextíu ára starfstímabils. Á fundum þessara stúkna átti ég marga hlýja og ánægjulega kvöldstund, og þar kynntist ég góðu fólki, sem hefur orðið mér minnisstætt og kært. Og f jarlægðin gerir nú ^ sitt til að varpa á þetta forna félagslíf ljóma minninganna. Verið viss, kæru bræður og systur, að ég hef oft látið hugann reika til ykkar á þessar slóðir, varðveiti mjög ljúfar endurminningar um félagslíf okkar og samstarf og alla dvöl mína yfirleitt í landinu sólar, blóma og bjartviðris. Ég vildi hjartansfeginn vera horfinn til ykkar sem snöggvast og geta rétt fram bróður- , ^ hönd með hamingjuóskum og þakklæti fyrir liðinn tíma. Ég óska ykkur innilega til hamingju í tilefni 60 ára afmælisins og flyt ykkur beztu kveðjur konu minnar og heilla- óskir. Beztu þakkir fyrir allt gamalt og gott. Leggi drottinn blessun sína yfir unnin störf og baráttuna framvegis og geri hana sigursæla. Tveir eru óvinir mannkynsins, sem mest- um þjáningum valda. Það eru styrjaldirnar og áfengið. Gegn þessum óvinum mann- legrar velferðar, verða allir mannvinir og friðelskandi menn að sækja, klæddir her- týgjum ljóssins og brennandi í anda og trú á þann Guð, sem sigurinn veitir. Óvinur- inn er máttugur, hann verður ekki sigrað- ur með sljóvum vopnum, né af hálfvolgum mönnum. Þar þarf til heilhuga menn, heita, sterka og vel vopnum búna, vopnum and- ans og mannkærleikans. Og aðeins hinn æðsti máttur getur veitt mönnunum nægi- legt fulltingi í slíkri sókn og baráttu. Um allan heim er ágirndin enn rót alls hins illa. Hún stendur á bak við áfengis- bölið og styrjaldarbrjálæðið. Betra hlut- skipti getum við ekki kosið okkur en að vinna gegn þessu og að eflingu bræðralags, friðar og guðsríkis á meðal mannanna. Ég fagna því, fyrir mitt leyti, að hafa átt þess kost síðast liðin 18 ár, að vinna hér á landi að bindindi og öðrum menningarmálum, ferðást um landið, kynnast góðu fólki og sjá ýmislegt gerast til heilla fyrir land og lýð. Enn ógnar áfengisbölið heill og velferð þjóðarinnar, og ekki sízt æskulýðsins, en stöðugt fjölgar þeim mönnum, körlum og konum, sem leggja vilja lið hinu góða mál- efni og styðja að úrslitasigri þess. Hjartanlegustu kveðjur til ykkar allra og annarra vina þarna í vestrinu. Blessun drottins fylgi störfum ykkar á komandi tímum til heilla fyrir land og lýð og allt mannkyn. í trú, von og kærleika. Pétur Sigurðsson. Ræða próí. Richards Beck i Enginn félagsskapur lifir og dafnar um áratuga skeið, nema hann eigi sér veru- legan tilverurétt, flytji lífrænan boðskap og vinni að tímabæru og þörfu hlutverki. Annars fellur hann skjótt að velli, því að tíminn, hinn óvægi dómari, skilur hveitið frá hisminu í félagslegum efnum eigi síður en öðrum, og það eitt þróast til langframa á því sviði, sem ekki er fúið í rót, en nær- ist við lífstrauma vakandi hugsjóna í verki. Þegar þetta er í minni borið, og allar að- stæður teknar til greina, verður það aug- ljósara en ella, hversu merkur atburður 60 ára afmæli íslenzku Góðtemplara stúkn- anna er- í félagsmálasögu íslendinga í Vesturheimi. Teljandi eru þau félagsleg samtök þeirra, sem eiga sér að baki jafn langan, óslitinn starfsferil. Dr. Sigurður J. Jóhannesson, hinn ótrauði íorystumaður bindindismálsins austan hafs og vestan, komst því réttilega að orði, er hann sagði í afmælisgrein um íslenzku stúkurnar: „Annars er vert að geta þess, að sá félags- skapur, sem hér er um að ræða, á hreinni braut að baki sér en flest önnur félög, sem fæðst hafa og starfað í vestur-íslenzku fé- lagslífi". Maklega bætti hann við þessum orðum: „í Góðtemplara reglunni hafa staðið og starfað mætir menn og kærleiks- ríkar konur úr öllum flokkum vor á meðal“. Vel er því og meir en verðugt, að hátið- legt sé haldið 60 ára afmæli íslenzku stúkn- anna, og innilega þakka ég forstöðunefnd- inni fyrir þá sæmd, sem hún hefur sýnt mér, með því að óska þess, að ég mælti hér fyrir Prófessor Richard Beck. minni stúkunnar Heklu, minnar eigin stúku, þó að mér finnist, hins vegar, að ég hafi lítið til þess unnið. Það liggur í augum uppi, að 60 ára starfs- saga verður eigi, í tiltölulega stuttri ræðu, rakin nema í nokkrum höfuðdráttum. Þeim, sem frekar vilja fræðast um stofnun og starfsferil stúkunnar Heklu, vísa ég til sögu hennar í Minningarritinu, sem út kom í til- cfni 25 ára afmælis hennar árið 1913, og samin var af séra Guðmundi Árnasyni, ein- um hinum ágætasta og áhugasamasta fé- laga hennar, og til hins ítarlega erindis „Hekla 50 ára“, sem Stefán Einarsson rit-

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.