Eining - 01.11.1949, Blaðsíða 7
»
EINING
7
»
♦
Barnablaðið Æskan
50 ára.
Miðvikudagskvöldið 5. október s.l.
hafði barnablaðið Æskan boð inni í
Góðtemplarahúsinu í Reykjavík til þess
að minnast 50 ára afmælis blaðsins.
Samsætið var fjölmennt og veitingar
myndarlegar. Skemmt var með kór-
söng, gamanvísum og svo auðvitað
ræðuhöldum, sem voru allmikil, en að-
alræðuna flutti stórtemplar, séra Krist-
inn Stefánsson, og rakti hann sögu
blaðsins í stórum dráttum.
Stórstúkan hefur átt blaðið frá upp-
hafi vega þess, en fram til ársins 1928
fól hún einstöku mönnum að gefa það
út, en síðan hefur hún gefið blaðið út
sjálf, og er upplag þess nú á 10. þús-
undinu. Blaðið hefur átt marga ágætis
ritstjóra og afgreiðslumenn, en kunn-
astur afgreiðslumannanna, og þeirra
mikilvirkastur, er Jóhann Ögm. Odds>-
son. Hann á einna drýgstan þátt í sigur
för blaðsins.
Þorvarður Þorvarðsson prentsmiðju-
stjóri í Gutenberg átti manna fyrstur til-
löguna um útgáfu barnablaðs og sam-
kvæmt henni ákvað Stórstúka íslands
að hefjast handa um framkvæmd máls-
ins. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Sigurð-
ur Júl. Jóhannesson, og hæfari mann
til þess var víst naumast unnt að fá.
Hann var aðeins tvö ár við blaðið, en
það nægði til þess að gera það vinsælt
hjá þjóðinni. Núverandi ritstjóri Æsk-
unnar er Guðjón Guðjónsson, skóla-
stjóri í Hafnarfirði. Á milli þessara
tveggja ritstjóra eru svo ýmsir, konur
og karlar, en lengst þeirra önnuðst rit-
stjórn þau Sigurjón Jónsson bóksali og
Margrét Jónsdóttir kennari. Útbreiðsla
blaðsins hefur orðið langmest hin síðari
árin.
Barnablaðið Æskan hefur gefið út
marga tugi barnabóka, sem orðið hafa
mjög vinsælar um land allt, og bóka-
búð Æskunnar er einnig sprottin upp
af slíkri starfsemi.
I samsætinu talaði síðastur Jóhann
Ögm. Oddsson og þakkaði ritstjórum,
fyrrv. afgreiðslumönnum, prenturum og
bókbindurum og öðrum þeim, sem átt
hafa þátt í góðu gengi blaðsins, og þá
ekki sízt mörgum ungum útbreiðslu-
mönnum víðsvegar um land, og þeim
fullorðnu, sem haldið hafa mikilli
tryggð við blaðið. 50 ára, getur barna-
blaðið Æskan fagnað sigurför.
Óviiar.
Mennirnir eru miklir óvitar. Þeir
berjast og um allt rífast þeir. Þeir ríf-
ast um matbjörgina, um jarðnæðið og
auðlindir jarðar, og þeir rífast jafnvel
um Guð.
Þó er nægilegt rúm fyrir alla á þess-
ari jörð, og nægilegt má framleiða, ef
menn nenna og vilja, til þess að seðja
alla svanga munna, og ef gæðunum er
skipt bróðurlega. Og margfalt betra er
það að tilbiðja Guð en að rífast um
hann. En einnig í þeim efnum er hver
hópur með sinn smáskítlega klíkuguð
og skoðana-guð, og halda sig þóknast
Guði friðarins og kærleikans, sem en
andi og menn eiga að tilbiðja í anda
og sannleika.
En óvitarnir skaða sig á öllu.
Ljósið gegn
áfenginu.
Ein áfengisauglýsing í Bandaríkjun-
um var á þessa lund: „Sjáið til að kaupa
ölið í brúnum flöskum, því að birtan
— ljósið skemmir ölið“.
Á þingi ameríska bindindisfélagsins,
snemma á þessu ári, var minnt á þessa
auglýsingu. Hún er markviss, því að
það er heilagur sannleikur, að Ijósið, —
ljós þekkingar og sannleika er skaðlegt
áfenginu í hverri mynd sem er.
Á þessu sama alþjóðarþingi ræddi
Walter J. Hoshal frá Kentucky gagnsemi
héraðsbannanna. Þessi atorkumaður
bindindisbaráttunnar gat líka trútt um
talað, því að undir forustu hans höfðu
93 héruð af 120 í Kentuckyríkinu komið
á hjá sér héraðsbanni með almennri at-
kvæðagreiðslu um málið. Þetta ríki hef-
ur þó framleitt 52% af öllu whisky, sem
framleitt er í Bandaríkjunum.
En hvað segja íslenzkir bindindis-
menn um eitt heilræði þessa atorku-
manns. Hann segir: „Bænin er þýð-
ingarmikið atriði. Efnið til bænasam-
komna um allt landið áður en atkvæða-
greiðslan fer fram“.
Dómari einn frá Boston, sagði: ,,Að
engin fullkomin lausn vandamálsins
mundi fást á meðan áfengissölunni væri
viðhaldið”. Hann brá upp ljótri mynd
af áfengisbölinu í sínu ríki, Massachu-
setts. Hann sagði, að 50% allra glæpa
og ódæðisverka í ríkinu væru að kenna
áfengisneyzlu, og 85% af illri hegðun
ætti upptök sín þar. Glæpir og lagabrot
í sambandi við áfengisneyzluna kostaði
þetta eina ríki 6 milljónir dollara ár-
lega, og 20 þúsund áfengissjúklinga
kostaði ríkið 61 milljón dollara hvert
einasta ár.
Skyldi mönnum finnast þetta vera
framför síðan bannið var afnumið í
Bandaríkj unum?
Hinn merki læknir, dr. Haven Emer-
son, prófessor við Columbia háskólann,
sagði: „Læknavísindin staðfesta, að
áfengisneyzla er engum manni gagnleg.
Áfengið er eitur. Það truflar hinn eðli-
lega vöxt og viðgang og starfsemi líf-
færa líkamans. Læknavísindin hafa
stutt hina kristilegu hugsjón og hina
siðferðilegu kröfu um algert bindindi“.
(Heimild: Signs of the Times).
Hjón ýiasl á.
Fyrir nokkru leit inn á skrifstofu Ein-
ingar aldurhniginn þulur, margfróður
og greindur. Hann sagði, að eftirfarandi
vísur hefðu farið milli hjóna:
Hann kva<5:
Surtur hlóðum situr á,
sínum móð ei tapar,
vænum gróða vendir frá,
vesöld þjóðum skapar.
Hún kva<5:
Vínið hrindir mennskri mynd,
magnar lyndið skitið.
Gerir yndið allt að synd.
og steinblindar vitið.
'*
Mynd þessi, er sýnir nýju vcrkamannabnstaðina í Keflavík o</ byggingaframkvæmdir kaupsla'ðarins, átii að fylgja
sreininni i síðasta blaði, um Keflavík, en varð útundan.