Eining - 01.01.1953, Blaðsíða 1

Eining - 01.01.1953, Blaðsíða 1
11. árg. Reykjavík, janúar 1953. 1. tbl. Lögin um héraðabönn hafa öðlast gildi Eins og lesendum blaðsins mun vel- flestum kunnugt, voru gefin út lög um héraðabönn 1943, en þau hafa ekki öðlast gildi fyr en með auglýsingu dóms- málaráðuneytisins 17. desember 1952. Grein sú í lögum nr. 26, 18. febrúar 1943, um breyting á áfengislögum nr. 33, 9. jan. 1935, sem máli skiptir, hljóðar svo: „Ríkisstjórninni er heimilt að setja á stofn útsölustaði áfengis, en þó að- eins í kaupstöðum eða kauptúnum. — Áður en útsala er sett á stofn, skal fara fram atkvæðagreiðsla kosningabærra manna í því sýslu- eða bæjarfélagi, sem í hlut á, og þarf meiri hluta greiddra atkvæða til þess að útsala sé leyfð. — Hafi útsala verið stofnsett, verður hún ekki lögð niður aftur, nema því aðeins að atkvæðagreiðsla fari fram og sam- þykkt sé með meiri hluta að loka áfengisútsölunni. — Atkvæðagreiðslur, sem um getur í 2. og 3. mgr., skulu fram fara, er 1/3 hluti kjósenda eða meiri hluti sýslunefndar eða bæjar- stjórnar í viðkomandi sýslu- eða bæjar- félagi krefst þess. — Nú hefur verið fellt með atkvæðagreiðslu að stofna út- sölu eða loka útsölu, og getur atkvæða- greiðsla þá ekki farið fram á ný, fyrr en að tveimur árum liðnum“. Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út í Lögbirtingablaðinu Auglýsingu um gildistöku laga nr. 26, 18. febr. 1943, um breyting á áfengislögum, nr. 33, 9. jan. 1935, og er hún dagsett, eins og fyrr segir, 17. des. 1952. „Auglýsist hér með“, segir í nefndri tilkynningu, ,,að lög nr. 26, 18. febr. 1943, um breyting á áfengislögum, nr. 33, 9. jan. 1933, öðlast nú gildi“. Samkvæmt þessari auglýsingu er langþráð ósk bindindismanna uppfyllt. — I frumv. áfengislaganefndarinnar, sem efri deild vísaði frá, var heimildin Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra. til að setja á stofn útsölustaði áfengis aðeins bundin við kaupstaði, en sam- kvæmt hinum gildandi lögum er leyfi- legt að stofna útsölu í kauptúnum, svo að ákvæði um heimild til sölu eru þann- ig miklu rýmri í lögunum en voru í frv. nefndarinnar. — Nú er tækifæri fengið til þess að hagnýta þessa heimild, en hingað til hefur veiðin verið sýnd en ekki gefin. Gildir nú að fara skynsam- lega að ráði sínu, og munu bæði áfengis- varnarnefndir og aðrir áhugamenn á hverjum stað bera saman ráð sín og kaupa hentuga tímann til framkvæmda. Eins og sjá má á lögunum, er bæði um það að ræða að leggja niður útsöl- ur, þar sem þær eru nú, og í öðru lagi er heimild til að stofna þær, þar sem þær eru ekki nú. Áhugamenn um áfeng- isvarnir þurfa því sums staðar að snú- ast til sóknar og annars staðar til varnar. Brynleifur Tobiasson. HéraSabönn koma tíl framkvœmda Sú lofsverða ákvörðun dómsmálaráð- herra, að láta héraðabönn koma til framkvæmda, og að taka fyrir öll vín- veitingaleyfi á samkomustöðum og veit- ingahúsum ,einnig Hótel Borg, verður áreiðanlega mörgum gleðiefni og mun létta áhyggjum af mörgum, ef vel verð- ur á málum haldið og um það séð, að þessi ákvæði verði í heiðri höfð. Búast má við alls konar uppsteit og tilraun- um, nú eins og áður, til þess að ófrægja og gera allar slíkar hömlur óvinsælar, því að enn hefur ágirnd og nautnasýki mikil völd í heimi vanþroska mannkyns, og er þá ekki alltaf verið að hugsa um hamingju og velferð náungans, en hvað sem þessu líður, er hér hressilega tekið á málum, kyrrstaðan úr sögunni og má nú vænta þess, að sveit bindindismanna í landinu, sem ekki er fámenn, ef öllu er til skila haldið, láti nú meira til sín taka en undanfarið. Áreiðanlega fær hún eitthvað að glíma við og nóg að gera bæði í vöm og sókn. Að þessu sinni skal aðeins bætt hér einu þakklæti við hin mörgu, sem dómsmálaráðherra hefur þegar hlotið fyrir þessa afgerandi ráðstöfun.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.