Eining - 01.01.1953, Blaðsíða 9

Eining - 01.01.1953, Blaðsíða 9
EINING 9 1 V í Frú Kaldalóns sjötug. Þegar karlmenn verða frægir fyrir ein- hver afreksverk, er sjaldnast nokkur kom- inn til þess að segja, hvaða þátt konur þeirra hafa átt í gæfu þeirra, en vitað er það, að hann er oft mikill. Kaldalóns varð ástsæll af allri þjóðinni fyrir ljúfu lögin sín, en ef minnst er orða skáldsins, Stefáns frá Hvítadal: „Hver dáð, sem maðurinn drýgir, er draumur um konuást“, þá hefur frú Kaldalóns sjálfsagt oft verið nálæg anda tónskáldsins, þegar söngvadísin lagði blessun sína yfir hann. Frú Kaldalóns var sjötug 26. nóvember s. I. og heimsóttu hana þá á heimili sonar hennar, Snæbjörns Kaldalóns, lyfjafræð- ings í Reykjavík, margir vinir og kunn- ingjar. Hún er fædd í Danmörku, 26. nóv. 1882 í Folehave í Gripsskov við Hörsholm á Norður-Sjálandi. Skírnarnafn hennar er Karen Margrethe Mengel Thomsen. Hún er lærð hjúkrunarkona og hafði fengið góða undirbúningsmenntun áður en hún hóf hjúkrunarnámið. Árin 1908 og 1909 kynntist hún Sigvalda Kaldalóns, en þá aði og myndarskap til þess að gera þetta heimili hlýtt og elskulegt fyrir eiginmann sinn og börn, og svo hina mörgu gesti er að garði bar. Þjónustustarf hennar hefur verið mikið frá fyrstu tíð. Þjóðin öll er í þakkarskuld við hina ágætu konu ást.sæia tónskáldsins. í Grindavík stóð stúkustarfið með miki- um blóma á meðan Kaldalónshjónin voru þar, eftir að læknirinn. lagði hönd að því verki. Ljúf er endurminningin um sam- starfið við hann. Á sjötíuára afmælinu bárust frú Kalda- lóns gjafir, blóm og mörg heillaskeyti. — Ritstjóri Einingar sendi þetta: Drjúpi þér gull úr drottins hendi, dag hvern til ævinóns; heill sé konunni, sem hann sendi Sigvalda Kaldalóns. Hannes Jónasson, Siglufirði, 75 óra. afmæli. Hann er heiðursfélagi stúkunnar Framsóknar í Siglufiröi, sem heiðraði hann á ýmsan hátt í sambandi við afmæli hans. Sína ágætu eiginkonu, Kristínu Þor- steinsdóttur, missti Hannes árið 1932. — Um margra ára skeið veitti hún forstöðu fjölmennri barnastúku í Siglufirði. Þeim hjónum varð sex barna auðið, og eru fjög- ur þeirra á lífi. Hannes Jónasson er góðum gáfum gædd- ur, hann hefur unnað góðum málefnum og reynzt þeim trúr og traustur liðsmaður. Hann hefur verið farsæll maður og skilað miklu starfi, sem er metið og þakkað af öllum, er til þekkja. Halldór Sigurgeirsson 50 óra. Einn okkar allra beztu manna í templara- sveit Hafnarfjarðar, Halldór M. Sigur- geirsson, átti 50 ára afmæli 27. október s. 1. Hann er sonur Sigurgeirs Gíslasonar, fyrrv. verkstjóra og sparisjóðsgjaldkera. starfaði hún við fæðingardeild ríkisspít- alans í Kaupmannahöfn, og árið 1909 kvæntist hún Kaldalóns og komu þau heim til íslands það sama ár. Kaldalóns gengdi fyrst læknisstörfum í Hólmavík, en í marz Á 1910 fluttust þau hjónin til Ármúla við Isafjarðardjúp og voru þar næstu 11 árin. 1921 fara þau svo til Danmerkur vegna veikinda hans, og hann tekur ekki við læknisembætti aftur fyrr en 1926, þá í Flatey á Breiðafirði, en 1930 fær hann veitingu fyrir Keflavíkurhéraði og er bú- settur í Grindavík þar til þau hjónin flytja 'rí til Reykjavíkur skömmu áður en Kalda- lóns andaðist, en það var 1. ágúst 1946. Heimili Kaldalóns hjónanna var svo frá- bært í gestrisni og allri alúð, að tilhlökk- un var að koma þar. Þar var líka oft gest- kvæmt, tíðir næturgestir, og stundum voru gestir vikum og mánuðum saman. Er þá auðskilið hver hlutur húsfreyjunnar hef- ^ ur verið í stjórn og allri umönnun heimil- I isins. Hér verður ekki fjölyrt um það. en aðeins minnt á, að frú Kaldalóns lagði alla stund fram ki'afta sína af miklum dugn- Eining telur fulla ástæðu til að minn- ast 75 ára afmælis Hannesar Jónassonar, bóksala í Siglufirði, þótt blaðinu hafi ekki verið kunnugt um fyrr en seint á liðnu ári, að 10. apríl 1952 átti Hannes þetta merkisafmæli. Hann hefur verið búsettur í Siglufirði um hálfan fimmta tug ára, og það verður, því miður, ekki talið hér, allt, sem hann er búinn að starfa á þessu tíma- bili, bæði fyrir málefni Góðtemplara og sinn heimabæ. Hannes er fæddur að Ytri-Bakka við Eyjafjörð, árið 1877. Hann hefur stund- að margvísleg störf, verið verlzlunarmað- ur, kennari, skrifstofumaður, verkstjóri, blaðaútgefandi, bóksali og fleira. Sjálfur hefur hann haft bókaverzlun í Siglufirði um aldarfjórðungsskeið. Hann hefur látið félagsmál allmikið til sín taka og lagt lið íþróttastarfi, leikstarfi, og þá ekki sízt bindindisstarfinu. Þar hefur hann verið ókvikull og traustur liðsmaður um áratugi. Hann átti þannig á árinu sem leið, ekki aðeins 75 ára afmæli, heldur líka 30 ára afmæli sem templari og 25 ára bóksala- og konu hans Marínar Jónsdóttur. Sigur- geir hefur alla sína tíð verið einn af hin- um traustustu og mætustu liðsmönnum bindindismálsins í landinu. Halldór sonur hans fetar þar dyggilega í fótspor föður síns. Halldór er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og hefur búið þar alla sína tíð. Hann er af góðum kominn, fékk gott uppeldi, og hann prýðir líka prúðmennska, grandvarleiki og sannur manndómur. — Hann er fremur hlédrægur, en þeim mun traustari við öll sín skyldustörf, og þau hafa verið mörg, bæði í atvinnu- og fé- lagsmálum. Hann hefur verið kaupfélags- stjóri, sparisjóðsgjaldkeri, fulltrúi hjá út- gerðarfélagi, og er nú fulltrúi hjá Sölu- sambandi islenzkra fiskframleiðenda. Hall- dór lauk námi við Flensborgarskóla og stundaði síðar verzlunarnám um tima í Englandi. Hann hefur verið farsæll maður, átti gott æskuheimili, og síðar sitt eigið, unnað kirkju og kristindómi, og verið sí- starfandi í sveit Góðtemplara. Hann er maður, sem gott er að kynnast. Pétur Sigurðsson.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.