Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 9

Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 9
EINING 9 V Dr. John Sharffenberg. Þetta segir Sharffenberg Norski yfirlæknirinn John Sharffen- berg sagði fyrir nokkru í fyrirlestri, að „í eðli sínu væri bindindishreyfingin ein hin róttækasta, sem átt hefði sér stað í heiminum. Hún ræðst gegn eldgömlum sið- um og venjum, er fest hafa djúpar rætur í félagslífi og trúarlífi manna. Áfengir drykkir voru álitnir eitt af nauðsynjunum á matborðinu. Vísindin eru nú komin að sömu niður- stöðum og bindindishreyfingin komst löngu áður en bindindismenn gátu fært fram vís- indaleg rök fyrir skoðunum sínum. í stað þess, að „lengja Iífið“ eru áhrif áfengisins alltaf skaðleg á heilann og örva ekki, en sljógva. Það er ákaflega nauðsynlegt, að kynna unga fólkinu skaðsemi áfengisins, áður en það gefur sig á vald drykkjusiðunum. — Ungir námsmenn þurfa að njóta vel skipu- lagðrar bindindisfræðslu“. Óáfengt vín í Noregi Eitt víngerðarhús í Noregi, Grimsöy kloster, framleiðir nú óáfengar víntegundir, segir Folket 20. marz 1953. Nú þegar hafa verið framleidd rauðvín, hvítvín, portvín og kampavín og fleiri tegundir eru í vænd- um. Þrjú ár fara til þess að framleiða þessar víntegundir og þær eru gerðar úr sömu efnum og venjulega víntegundir og innihalda öll sams konar efni, nema sjálft áfengið. Allmikið er þegar komið á markaðinn í Noregi af þessum víntegundum, sem eru seldar í matvörubúðum, veitingahúsum, til einstakra manna og hvar sem helzt. Fróð- legt verður að vita, hvernig þessari nýjung verður tekið, og hvaða framtíð hún á. — Kemur þá í Ijós, hvort menn sækjast eftir víni sökum gæða þess, eða aðeins til þess að verða ölvaðir. D. Vefald, formaður landsnefndar bindindismanna í Noregi, og stórtemplar Noregs. ArcherTongue framkvæmdastj óri alþj óðasambandsins gegn áfengisbölinu, verður einn meðal vorra góðu gesta á bindindismálaþing- inu í Reykjavík um mánaðamótin júlí— ágúst næstkomandi. Tongue er maður á bezta aldri, tók við framkvæmdastjóra- starfinu hjá alþjóða-sambandinu síðast- liðið ár, þá er hinn ágæti brautryðjandi, dr. Robert Hercod, fékk eigi lengur unn- ið vegna ellilasleika, en hann andaðist sem kunnugt er í lok janúarmánaðar þ. á. — Tongue er enskur að ætt og uppruna. Hann er boðinn vestur um haf í júlímánuði og kemur þaðan hing- að til lands 30. júlí. Dvelst hér síðan til 4. ágúst, svo að hann getur tekið þátt í mestöllu norræna þinginu. Hefur hann verið beðinn að flytja ávarp á móttöku- hátíðinni í Þjóðleikhúsinu að kveldi hins 31. júlí. Godtemplarbladet. Stórþingmaður Lars Raumdál, formaður í laganefnd norska Stórþingsins, og varaformaður í Landsnefnd bindindis- manna í Noregi. 1KI [ Khphp I

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.