Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 12

Eining - 01.07.1953, Blaðsíða 12
12 EINING Forsetinn, hr. Ásgeir Ásgeirsson. Landiö var fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. Svo kveður góðskáldið, Jónas Hall- grímsson, í einu hinu fegursta ættjarðar- ljóði, sem ort hefur verið. En það, sem ,,var“er enn. Landið okkar er enn fagurt og frítt, jöklarnir eru fannhvítir eins og áður, himinn landsins heiður og blár og hafið skínandi bjart. Ekki er langt síðan skáldjöfurinn Einar Benediktsson sá dýrðlega landsýn, er hann lýsir af mik- illi hrifningu: Þar rís hún, vor drottning, djúpsins mcsr, meS drifbjart men yfir göfugum hvarmi og framtímadaginn ungan á armi, eins og Guðs þanki hrein og skœr. Frá henni andar ilmviðsins blcer, en eldhjarta slcer í fannhvítum barmi. Jökulsvip ber hún harðan og heiðan, Forsætisráðherra Steingrímur Steinþórsson. Landið er fagurt °g en hœðafaðm á hún víðan og breiðcm og blávatna-augun blíð og tcer. Þetta er nútímamyndin, sem skáldið dregur upp á landinu. Getur nokkra fegurri. Hún jafnast til fulls á við fom- aldarmyndina, sem Jónas Hallgrímsson sá. I sýn Einars er landið drottning djúpsins á norðurhveli jarðar. Hún ber hinn bjarta framtíðardag á armi sér, er hrein og skær eins og hugsun Guðs. Svipurinn er harður og heiður, hæða- faðmurinn víður og breiður, og í fann- hvítum barmi slær eldhjartað heita. Til ríkis þessarar fjalladrottningar „komu feðurnir írcegu og frjálsrceðishetjurnar góðu austan um hyldýpis haf hingað í scelunnar reit“. Þeir komu, „feðurnir frægu“, til þess að nema hér land, varðveita dýrmætan arf og rækta óbrotgjarna menningu. Og nú leita listamenn og vísindamenn stór- velda og fjarlægra landa til Islands að kynnast sögu þess, stjórnháttum, listum og menningu, og fyrir ekkert af því þurf- um við að blygðast okkar, ef borið er saman við aðrar stærri þjóðir. Ekkert stærilæti á þó hér við, því að böm emm við enn á þroskabraut, eins og mann- kynið allt. Að þessu sinni kemur í sumar mikill gestahópur austan um hyldýpis haf, til þess að sjá þá mynd landsins, sem skáldin okkar hafa lýst svo fagurlega, og til að rétta fram vinar- og bróður- hönd í þýðingarmiklu samstarfi menn- ingarmála. — Einnig þessir gestir em , ,frj álsræðishetjurnar góðu“. Þeir vilja efla sem bezt þau samtök manna, er stefna að því að brjóta af þjóðunum verstu þrældómshlekkina, smánarleg- ustu viðjamar, er þær binda sér sjálfar, og lyfta af herðum þeirra okinu, sem mestri niðurlægingu veldur. Forsetafrúin Dóra Þórhallsdóttir. Við fögnum þeirri uppörvun, er þess- ir góðu gestir veita okkur, og blessum menningarstarf þeirra, bræðralagshug- sjón, samvinnufúsleik og friðarhyggju. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna, óskum að þeim vegni hér vel nokkra daga, að þeir fái að sjá þá fögru mynd landsins, sem ættjarðarsöngvar okkar lýsa. Við emm allir norrænir menn og bú- um í löndum, sem ala böm sín við blítt og strítt, en ekki aðeins dásamlega feg- urð og unað. Um Island segir skáldið: „Það agar oss strangt með sín ísköldu él„ en á samt til blíðu, það meinar allt vel“. Allir þekkjum við tilfinninguna, sem norska skáldið, Ivar Aasen, lýsir: Fram paa vetteren stundom han tenkte: Gjev eg var i eit varmare land! Utanríkisráðherra Bjarni Benediktsson.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.