Austurland


Austurland - 09.05.1985, Qupperneq 5

Austurland - 09.05.1985, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR, 9. MAÍ 1985. 5 Úr húsgagnaverslun Nesvideós á Bakka. Ljósm. Sigurður Arnfinnsson. Bakki. Ljósm. Sigurður Arnfinnsson. Ný húsgagnaverslun í Neskaupstað: Nesvideó flytur að Bakka Um sl. helgi hófst nýr þáttur í sögu hins aldna og virðulega húss, Bakka í Neskaupstað, sem nú er Egilsbraut 19. Þá flutti Nesvideó, sem verið hefir í leiguhúsnæði að Hóls- götu 6, að Bakka með starfsemi sína, sem eykst og færist á víðara svið um leið. Eigendur Nesvideós eru hjónin Guðný Sigurð- ardóttir og Gils Svein- þórsson. Þau hafa nú keypt Bakka af Birni Björnssyni, fyrrverandi kaupmanni og munu starfrækja í húsinu videóleigu og verslun með myndbandstæki, sjónvörp og myndbönd og einnig húsgagna- verslun. Er þá komin sér- Cíils Sveinþórsson í verslun sinniú Bakku. I.jósm. Sigurður Arnjinnsson. Nú hefur Bakkahúð fengið nýli hlutverk í hœjarlífinu. Ljósm. Sigurður Arnfinnsson. verslun með húsgögn á ný í bænum. Húsgögnin eru aðal- legafrá Húsgagnahöllinni og Ingvari og Gylfa í Reykjavík og Setrinu í Kópavogi. Húsgögn vcrða í búðinni eins og hægt er að hafa plássins vegna, en verslunin mun svo panta eftir óskuni við- skiptavina, en mynda- og verðlistar liggja frammi í versluninni og eru sendir heim eftir ósku:n. Verslunar- og íbúðar- húsið Bakki var upphaf- lega byggt rétt upp úr síð- ustu aldamótum sem íbúðarhús eingöngu. Björn Björnsson kaup- maður, eldri, keypti hús- ið 1922 og hóf þá verslun- arrekstur þar, en hafði áður rekið verslun sína í Bár frá 1919. Hann byggði vestan viö Bakka- húsið og Björn kaupmað- ur sonur hans svo síðar austan viö það. Björn yngri keypti verslunina af föður sínum 1944 og rak þar verslun til hausts 1982. Hafði Björnsbúð þá verið starf- rækt á Bakka í rétt 60 ár. Og nú er hafin ný versl- un á Bakka. Bakkabúð, sem svo lengi hefir gegnt þýðingarmiklu hlutverki í bæjarlífinu, er orðin starfsvettvangur á ný. Þeirri starfsemi fylgja góðar óskir og margir munu eiga eftir að líta inn hjá Guðnýju og Gils á Bakka. B. S.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.