Austurland - 22.08.1985, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 22. ÁGÚST 1985.
---------Austurland------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason,
Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) ®7750 og 7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir —Pósthólf 31
— 740 Neskaupstað - ET7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7750 og 7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Hert skatteftirlit eða afnám tekjuskatts
Öllum er ljóst, að nauðsynlegt er að leggja skatta í
einhverri mynd á einstaklinga og fyrirtæki til þess að afla
sameiginlegum sjóðum svo sem ríkissjóði og sveitarsjóðum
tekna, svo að þeir geti staðið undir þeim kröfum, sem til
þeirra eru gerðar um framkvæmdir og þjónustu bæði sam-
kvæmt lögúm og að eðlilegum og sjálfsögðum kröfum al-
mennings. Miklu máli skiptir hins vegar, að þessi skatt-
heimta sé réttlát og komi sem jafnast niður.
Innflutningsskattar eða tollar eru stærsti tekjuliður ríkis-
sjóðs og þá greiða landsmenn allir í almennt hærra verðlagi
en ella væri og hið sama má segja um útflutningsskatta.
Næst koma almennir neysluskattar svo sem söluskattur
og vörugjald. Þá greiða menn í almennt hærra verðlagi og
einnig eftir eigin neysluþörf og fjölskyldustærð. Fjöl-
mennar fjölskyldur greiða á þennan hátt hærri skatta til
samfélagsins en fámennar, húsbyggjendur hærri skatta en
þeir, sem komið hafa sér vel fyrir o. s. frv. Neysluskattarnir
eru í eðli sínu óréttlátir, vegna þess að þeir fela í sér
mismunun einstaklinga eftir persónulegum högum þeirra.
Þeir eru ekki síst óréttlátir í verðbólguþjóðfélagi með ört
hækkandi verðlagi og sérstaklega þegar það bætist svo við,
að þessir skattar eru sífellt að hækka hlutfallslega líka, en
ein slík hækkun varð einmitt nú fyrir skömmu.
Lægsti skatttekjustofn ríkissjóðs er svo tekjuskatturinn,
sem líkur eru á, að verði afnuminn í áföngum. Beinn tekju-
skattur er réttlátasta skattheimtan í eðli sínu, því að hann
eiga allir að greiða hlutfallslega jafnt af tekjum sínum.
En hér er komið að stóru brotalöminni í skattkerfinu
og óþolandi óréttlæti og mismunun. Bæði vegna ákvæða í
skattalögum, sem Alþingi er sífellt að hringla í, vegna
óverulegs skatteftirlits, og vegna beinna skattsvika komast
furðu margir hjá því að greiða tekjuskatt, eins og þeim í
raun og veru ber. Hvers konar rekstur virðist gefa ótæm-
andi möguleika, flesta vafalaust löglega, til að viðkomandi
aðilar komist hjá tekjuskatti að mestu eða öllu leyti. Skatt-
svikin, sem enginn veit, hversu víðfeðm eru, bætast svo
við. Útkoman er sú, að tekjuskatturinn er nær eingöngu
launamannaskattur. Launafólkið verður að borga sinn
tekjuskatt og sína neysluskatta, en rekstraraðilarnir sleppa
ekki aðeins við tekjuskattinn, þeir geta líka látið reksturinn
greiða neysluskattana.
Þetta óréttlæti gengur ekki lengur. Eðlilegast væri, að
skatteftirlit væri hert svo, að til allra skattsvikara næðist
og lögleg skattsvik yrðu afnumin. Ef stjórnvöld hins vegar
guggna á þessu einu sinni enn, á að afnema tekjuskattinn
tafarlaust. Þá á ekki að leggja hann á næsta ár og tekjutapi
ríkissjóðs á ekki að mæta með hækkun neysluskatta, heldur
með sparnaði í ríkiskerfinu, t. d. ætti kostnaður við skatt-
stoftfrnar að geta stórlækkað. B. S.
Átta austfirsk fyrirtæki sýna á Heimilinu ’85
Fundur var haldinn í stjórn
Iðnþróunarsjóðs Austurlands
fimmtudaginn 8. ágúst sl. Fyrir
fundinum lá sameiginleg um-
sókn átta austfirskra fyrirtækja
um styrk til þátttöku í Heimilinu
’85, alþjóðlegri vörusýningu, í
Laugardalshöll dagana29. ágúst
- 8. september ’85.
Þátttaka í sýningum sem þess-
ari er afar þýðingarmikil við
markaðsöflun en um leið mjög
kostnaðarsöm og þá sérstaklega
fyrir fyrirtæki af landsbyggð-
inni. Samþykkt var að veita
fyrirtækjunum 150 þúsund kr.
styrk til þessa markaðsátaks á
höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt
var samþykkt að beina því til
fyrirtækjanna að láta alla undir-
búningsvinnu fyrir sýninguna
fara fram heima í héraði s. s.
hönnun á bás, prentun o. fl.
Sjóðnum er reyndar þegar
kunnugt um að svo muni verða.
ANDLÁT
Stefán R. Höskuldsson, fyrrv.
útgerðarmaður, Strandgötu 11,
Neskaupstað lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað 14.
ágúst sl. á 82. aldursári. Hann
var fæddur 17. janúar 1904 á
Krossi á Berufjarðarströnd og
ólst þar upp. Árið 1919 fluttist
Stefán til Neskaupstaðar og átti
heima hér æ síðan.
Stefán R. Höskuldsson.
Fyrirtækin sem taka þátt í sýn-
ingunni héðan af Austurlandi
eru: Brúnás hf., Trésmiðja
Fljótsdalshéraðs, Ofnasmiðja
Björns Oddssonarfrá Egilsstöð-
um, Álfasteinn og Borgargæs á
Borgarfirði, Sjávarréttir
Kömmu og Síldarvinnslan í
Neskaupstað og Fiskimjöls-
verksmiðja Hornafjarðar.
Styrkveiting þessi er fyrsta
úthlutun sjóðsins og er það von
sjóðsins að þátttaka fyrirtækj-
anna í Heimilinu ’85 verði til að
auka sölu á framleiðsluvörum
þeirra og skapi þannig frekari
atvinnutækifæri í fjórðungnum.
Iðnþróunarsjóður Austur-
lands var stofnaður í maí 1983.
Aðeins sextán sveitarfélög af
þrjátíu og fjórum á Austurlandi
eru aðilar að sjóðnum, og vill
sjóðurinn nota tækifærið til að
skora á þau sveitarfélög sem
ennþá hafa ekki orðið aðilar að
gera það, svo að sjóðurinn verði
öflugri og nýtist við atvinnuupp-
byggingu í fjórðungnum betur
en ella.
Sjóðurinn mun væntanlega
auglýsa eftir umsóknum upp úr
áramótum, þegar iðgjöld fyrir
1985 hafa skilað sér.
Fréttatilkynning.
Flug og bfll til Reykjavíkur
Flugleiðir hafa komið fram
með nýtt ferðatilboð innanlands
sem er flug og bíll til Reykjavík-
ur frá öllum áfangastöðum fé-
lagsins úti um land. Með því að
kaupa saman flugfar fram og til
baka og afnot af bílaleigubíl í
Reykjavík fæst umtalsverður
afsláttur frá venjulégu verði.
Flugleiðir hyggjast geta boðið
fram sambærilega þjónustu út
frá Reykjavík áður en langt um
líður.
Svo dæmi sé tekið um verð,
má nefna, að flug og bíll fyrir
þrjá frá Akureyri kostar frá
4.567 kr. á mann. Innifalið er
flug fram og til baka, bílaleigu-
bíll í fjóra daga með 400 kíló-
metra akstri og söluskatti. Bens-
ín og flugvallarskattur er ekki
innifalið.
Frá Egilsstöðum er verðið
fyrir þrjá 5.582 kr. á mann, frá
Norðfirði 5.713 kr. og frá ísa-
firði 4.366 kr. Sérstakur afslátt-
ur er veittur börnum. Verðið er
mismunandi eftir því hve margir
eru um hvern bíl, dýrast fyrir
einn og ódýrast fyrir fimm í bíl.
Lágmarksdvöl í Reykjavík er
fjórir dagar en gildistími flugfar-
seðils er einn mánuður.
Sem fyrr segir gildir þetta
ferðatilboð frá öllum 10 áfanga-
stöðum Flugleiða úti um land.
Fréttatilkynning.
Búlgaríufélag
Búlgaríufélagið, sem er
ferða- og kynningarfélag, var
stofnað í vor. Um 60 íslending-
ar, sem ferðast hafa til Búlgaríu,
stofnuðu félagið.
Markmið félagsins er, að fé-
lagsmenn hittist nokkrum sinn-
um á ári til þess að rifja upp
ferðaminningar og sjá myndir
hvers annars. Félagið mun efna
til kynningar á Búlgaríu og fá
til þess Búlgara eða þá, sem
þekkja vel til lands og þjóðar.
Félagsmenn hafa mikinn áhuga
á að greiða fyrir fólki, sem
vegna sjúkdóma þarfnast með-
ferðar í heilsuræktarstöðvum,
en þær eru fjölmargar í Búlgar-
íu. Að síðustu er aðalmarkmið
félagsins að beita sér fyrir ódýr-
um ferðum til Búlgaríu.
Þeir, sem áhuga hafa á að
ganga í félagið, snúi sér til for-
manns félagsins, Margrétar Sig-
þórsdóttur, Víðihvammi 8,
Kópavogi, 0 41873.
Fréttatilkynning.
Stefán var sjómaður og út-
gerðarmaður lengstan hluta ævi
sinnar, en um 1965 hætti hann
sjómennsku og vann eftir það
ýmis verkamannastörf, lengst
hjá fiskvinnslustöð SÚN. Hann
átti sæti í aðalstjórn Samvinnu-
félags útgerðarmanna 1963 -
1975 og í varastjórn 1948-1963.
Hann átti lengi sæti á framboðs-
listum sósíalista til bæjarstjórn-
arkosninga í Neskaupstað.
Eiginkona Stefáns var Sigríð-
ur Sigurðardóttir. Hún lést
1970. Þau áttu tvö börn, Jó-
hönnu, sem býr á Akureyri og
Höskuld, kaupmann á Reyðar-
firði.
Útför Stefáns Höskuldssonar
var gerð frá Norðfjarðarkirkju
í gær.
íbúð til sölu
Til sölu er 4 herbergja íbúð
að Garðarsvegi 16, Seyðisfirði
Upplýsingar S 7786
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför
Ársœls J. Sigbjörnssonar
Synir, systkini, Guðlaug Þorbergsdóttir og fósturforeldrar