Eining - 01.04.1956, Page 4

Eining - 01.04.1956, Page 4
4 EINING Arndis Þorsteinsdóitir. Merkisafmæli þriggja reglusysftra Frú Arndís Þorsíeinsdóttir varð 85 ára 21. marz sl., en því hefði sá, er línur þessar ritar, naumast trúað. Ég veit of lítið um þessa ágætu konu, sem vakið hefur athygli mína þar sem ég hef verið á mannfundum sam- tíða henni. Þar fer jafnan kona, er þekk- ir hvorki ,,hik né efa“, er heil, traust og ósvikinn unnandi undirstöðu menn- ingarmáls allrar menningar — Guðs kristni á meðal manna, og þar næst siðabótaverksins mikla, bindindisstarfs- ins. Þessi tvö málefni hafa verið hennar miklu áhugamál. Þeim hefur hún unnið og unnað. Um langt skeið hefur hún verið í safnaðamefnd dómkirkjunnar í Reykjavík, og í 60—70 ár hefur hún verið í sveit Góðtemplara. Hún er ein af stofnendum stúkunnar Framtíðarinn- ar í Reykjavík, og er enn félagi hennar. Ritstjóra Einingar tókst ekki að veiða mikið upp úr frú Arndísi um æviferil hennar, en það sagði hún mér, að tvennt hefði sér orðið minnisstætt frá hátíðarguðsþjónustu í Staðarkirkju á Mýrum árið 1874, en þá var Arndís á fjórða árinu. Fyrst voru það áhrif guðs- þjónustunnar, og hafa þau aldrei bilað síðan, en hitt var atvik inni í bænum við kaffidrykkju heimafólks og gesta. Þar var einn heimamaður, er hún hafði miklar mætur á og var henni veniulega sérlega góður. Að þessu sinni, eins og oft endranær, stökk hún upp í fang hans og átti von á góðum atlotum, en nú bar svo við að þetta brást. Maðurinn tók að amast eitthvað við henni og hún fór grátandi frá honum, en komst að því, að hann var drukkinn. Þetta voru henn- Þóranna R. Simonardóttir. ar fyrstu kynni af áhrifum ölvunar, og þau hafa ekki yfirgefið hana síðan. Barnið er næmt fyrir áhrifum og býr lengi að þeim. Ellefu ára fluttist Arndís litla úr sveit- inni, en segist hafa búið alla ævi að áhrifum sveitalífsins. Síðan hefur hún alið aldur sinn í Reykjavík. Nám stund- aði hún 3 vetur í Kvennaskólanum. Tví- gift er hún, en báða mennina missti hún í sjóinn með stuttu millibili. Dætur fjórar hefur hún alið. Frú Arndís er systir séra Bjama Þorsteinssonar, hins þjóðkunna tónskálds, tignarlega og gáfaða klerks, er lengst gegndi embætti í Siglufirði. Hún telur, að bróður sinn, og margan annan fátækan svein hafi kirkjan tekið sér í faðm í þjónustu sína, og gefið þar með tækifæri, er þeir hefðu annars ekki hlotið. Ekkert málefni er illa á vegi statt, sem á marga liðsmenn líka frú Arndísi Þorsteinsdóttur. Frú Hallbera Ottadóllir var 75 ára 26. marz sl. Fædd er hún og alin upp á Akranesi, en fluttist til Reykjavíkur árið 1904. 3. nóvember 1905 giftist hún Jóni Guðnasyni, fisk- sala, er flestir fulltíða Reykvíkingar munu kannast við. Þau áttu því gull- brúðkaup 3. nóvember sl. Heimili þeirra hefur því fengið að vita allmikið af gestum á yfirstandandi vetri í sambandi við merkisviðburði í lífi fjölskyldunnar, en gestakomu eru þau góðu hjón ekki óvön, en þar um mega þau sjálfum sér kenna, því að þau taka sérstaklega vel á móti gestum sínum. Jón Guðnason er einn af hinum fáu eftirlifandi stofnendum stúkunnar Vík- ings í Reykjavík, en á öðru ári stúk- unnar gerðist frú Hallbera félagi í stúk- unni og hefur verið það síðan, yfir 50 Haltbera Ottadóttir. ár. Hálfrar aldar þátttaka og þjcnusta í slíkum félagsskap, sem stúkur eru, út- heimtir ekki litla fórnfýsi, bæði hvað tíma áhrærir og framlag starfskrafta og fjármuna. Og frú Hallbera hefur ekki verið félagi í stúkunni aðeins að nafn- inu til. Hún hefur alla tíð verið ein hinna traustu og óbilandi félaga. Þrátt fyrir það, að konur eru oft hinir allra beztu liðsmenn nytsemdar félagsskapar, hafa þær jafnan sínu mikilvæga og aðalhlutverki að gegna í þjóðfélaginu, og undir því, hversu það er rækt, er velferð þjóðarinnar komin fyrst og fremst. Þetta hlutverk hefur frú Hallbera rækt af mestu prýði, alið upp fjögur börn þeirra hjónanna og búið þeim og manni sínum þar öruggt frið- skjól, en það er hverjum manni, er tak- ast þarf á við dagleg skyldustörf og um- svif út á við, meira virði en allt annað og sá orkugjafi, er alltaf veitir þrek til góðra starfa. Konurnar hafa sjaldan hátt um mikilvægustu störf sín, en slík- um á þjóðin miklar þakkir að gjalda. Þeirra á meðal er Hallbera Ottadóttir. Frú Þóranna R. Sigurðardóttir varð sextug 12. marz sl. Um áratugi hefur hún af alhug og mikilli ósérplægni sinnt mjög starfi og félagsmálum Góð- templara og bindindismanna yfirleitt. Hér verður ekki viðhöfð nein upptaln- ing á starfi hennar í þágu félagsmála, þess aðeins getið, að í sinni eigin stúk.u Verðandi, hefur hún verið jafnan í fremstu röðum. Sæti á hún í áfengis- varnanefnd kvenna og um fjögurra ára bil gegndi hún einu virðulegasta em- bætti í Stórstúku íslands, var þar vara- templar. Um starf hennar þar kemst séra Kristinn Stefánsson, fyrrv. stór templar, svo að orði:

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.