Eining - 01.04.1959, Síða 1
17. árg.
Reykjavík, apríl 1959.
^lncecjfulecj ocj, óérótœfa mót í ^La^ajlr^l
Það er að koma æ betur í ljós, hve
gagnlegar áfengisvamanefndimar geta
verið með ýmsu móti víðs vegar á land-
inu. Áfengisvarnaráð fór vel af stað.
Heppilegri, áhugasamari og duglegri
mann var tæpast unnt að fá til þess að
skipuleggja starfsemi þessa, en Brynleif
Tobiasson, sem var fyrsti formaður þess
og áfengisvarnaráðunautur. Hann lagði
mikið kapp á að efla áfengisvarnanefnd-
irnar um allt land, fékk góða menn til
ferðalaga og vann einnig að þessu
sjálfur alla vega.
Við fráfall Brynleifs átti ráðið völ á
öðmm þrautreyndum sæmdarmanni,
séra Kristni Stefánssyni. Hann hefur
ekki látið merkið síga. Þá hefur ráðið
verið sérlega heppið með val erindreka.
Pétur Björnsson, kaupmaður á Siglu-
firði er maður þéttur á velli og þéttur í
lund, sem eyðir ekki kröftum sínum í
fum né mas, en vinnst þeim mun betur.
Hann hefur nú unnið mikið og þarft
verk til eflingar áfengisvarnanefndun-
um og við stofnun félaga þeirra í ýms-
um sýslum landsins. Þegar hann var
síðast á ferð í Skagafirði. undirbjó
hann þar, ásamt áfengisvarnanefndum
6 hreppa, tvö mót, eins konar skóla-
mót.
Ritstjóra Einingar var kunnugt um,
að í Reykjavík var staddur fyrir nokkm
formaður áfengisvarnanefndar í Lýt-
ingsstaðahreppi, Guðjón Jónsson, gekk
því á fund hans og spurði frétta. Guðjón
var fremur spar á lofsorð um þá starf-
semi þeirra þar norður frá, sem ég
vildi fræðast um.
Mótið sem haldið var í Steinsstaða-
skóla í Lýtingsstaðahreppi 9. marz sl.
höfðu áfengisvarnanefndirnar í þremur
hreppum undirbúið: Lýtingsstaðahr.,
form. Guðjón Jónsson, Tunguhálsi,
Seyluhrepps, form. Hjalti Jónsson,
Víðiholti, og Akrahrepps, form. Bjarni
Halldórsson, Uppsölum.
Til mótsins komu skólastjórar og
kennarar þessara hreppa með alla nem-
4. tbl.
endahópa sína, um 100 samtals, en
auk þess allmargt fullorðinna manna.
Þar komu og tveir söngstjórar, Árni
Jónsson, Víðimel og Rögnvaldur Jóns-
son, kennari í Flugumýrarhvammi.
Mótið hófst því á glöðum söng margra
bjartra. barnaradda, og svo ávarpi
Guðjóns Jónssonar, sem stjórnaði mót-
inu. — Jón Þ. Björnsson, fyrrv. skóla-
stjóri á Sauðárkróki og nú formaður
Félags áfengisvarnanefnda í Skaga-
firði, talaði um tóbaksneyzluna. Benti
m. a. á hversu börn vendust á sælgætis-
át, gosdrykkjasull og svo tæki oft við
sígarettan. Hér er áreiðanlega einn
versti vágestur í sveit ungra skóla-
manna, eins og annarra.
Hersilía Sveinsdóttir, skólastjóri,
flutti þar næst erindi og las einnig upp
til fróðleiks og skemmtunar. Böm úr
heimavistarskólanum í Húsey fóru með
leikþátt, undir stjórn skólastjórans,
Felix Jósafatssonar. Pétur Björnsson
fræddi um starf áfengisvarnanefndanna.
Einnig tóku til máls Gísli Gottskálksson,
skólastjóri Akrahrepps og Bjarni Hall-
dórsson, form. áf.varnanefndar sama
hrepps. Að síðustu sýndi Guðjón
Ingimundarson, leikfimiskennari og
Nú er þaö Noregur, sem viö heimscekjum í sumarleyf-
inu. Norrcena bindindisþingiö verður í Stafangri dag-
ana 27. júlí til 2. ágúst, og samfara því 100 ára afmœli
norsku bindindishreyfingarinnar. — Myndirnar eru úr
fjörðum Noregs.