Eining - 01.04.1959, Blaðsíða 12

Eining - 01.04.1959, Blaðsíða 12
12 E I NING i Rúmlega 44 milljónir sænskra króna leggur ríkið í Svíþjóð til bindindisfræðslu og bindindisstarfsemi, og framfærslu drykkjumanna og áfengissjúkl- inga, en lagt er nú til að þetta verði liækkað í 47,524,100. Þetta skiptist milli 20—30 aðila, samtaka, stofnana, félaga og félagakerfa og allrar áfengisvarnastarfsemi. Frá þessu er skýrt í Alkoholfrágan, 1. liefti 1959, sem er vísindalegt fræðirit um þessi mál. Þessi er leiðin Trjágarðurinn verður blómlegur og fagur, ef tréin eru sniðluð. Annars verður þar allt kræklótt og ólögulegt. Ekki má hlífast við að sníða vissar grein- ar af trjánum til þess að tryggja fegurð þeirra og góða lögun. Það kann að kosta sársauka bæði foreldra og barna, að haga svo uppeldinu, að lifnað- arvenjur unglingsins verði fagrar og bollar, en án þess aga má búast við miður góðum árangri, og jafnvel mjög slæmum. Yngingarmeðalið og ellilaunin Bíðið þér ofurlitið, frú mín góð, ég skal gefa yður ávísun á meðal. sem mun yngja yður um 10 ár. En kæri læknir, bvernig fer þá um elli- launin. Umferðaslys og áfengi Á sl. ári háði brezka læknafélagið þing sitt í Birmingham. Læknarnir tóku undir, þegar lög- reglustjóri borgarinnar, E. J. Dodd, sagðist álíta, að „mest orsökuðust umferðarslysin af svívirðilegum akstri, en langt um meira af slysunum væri þó að kenna áfengisneyzlu en nokkru sinni kæmi í ljós í skýrslum um slíkt“. Þetta birtir The International Record, eftir London Daily Telegraph, 19,17., 1958. Bindindisstarf í Japan Þótt Búddatrúarmenn í Japan hafi unnið mikið og gott verk á sviði bindindismála, þá er það þó mótmælendakirkjan þar sem forustuna hefur í því starfi, og það er dr. Toyohiko Kagawa, hinn frábæri leiðtogi, trúarhetja og siðbótarmaður, sem er formaður sambands bindindismanna í Japan, en sá maður hefur aldrei tekið „tappa úr flösku“, og mættu þeir menn, sem gera sig að flónum, hvort heldur er í útvarps-samtalsþáttum eða annars staðar, ygla sig yfir þeirri staðreynd, að Kagawa hefur verið máttugasti maður Japans i bindindisstarf- seminni, þótt hann hafi ekki drukkið. Iltvegsbanki Islands h.f. REYKJAVÍK ásamt útibúum á Akureyri, Isafirði, Seyðisfirði, Siglufirði og Vestmannaeyjum, annast öll venjuleg banka- viðskipti innanlands og utan. ★ Tekur á móti fé á hlaupareikning eða með spari- sjóðskjörum, með eða án uppsagnarfrests. ★ Vextir eru lagðir við höfuðstól tvisvar á ári. ★ Ábyrgð ríkissjóðs er á öllu sparisjóðsfé í bankanum og útibúum hans. Ferðisi og flyijið vörur yðar með skipum H.f. Eimskipafélags Xslands „Allí með Eimskip" Búnaðarbanki Islands Stotnaður með lögum 14. júní 1929. Bankinn er sjálfstæð stofnun undir sérstakri stjórn og er eign ríkisins. — Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð rikissjóðs auk eigna bankans sjálfs. Bankinn annast öll innlend bankaviðskipti, tekur fé á vöxtu 1 sparisjóði, lilaupareikningi og viðtökuskírteinum. Greiðir hæstu innlánsvexti. Aðaíaðsefur í Reykjavík: Austurstrceti 9. Útibú á Akureyri. TIIUBURVERZLUMIIV VÖLUNDUR h.f. Reykj avík ★ Kaupið timbur og ýmsar aðrar byggingavörur. hjá stærstu timburverzlun landsins 4 < 4

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.