Eining - 01.04.1959, Síða 2

Eining - 01.04.1959, Síða 2
2 E I NING f formaður sambands ungmennafélaga í Skagafirði, kvikmynd, en Pétur Biörns- son útskýrði myndina. Lokaávarp flutti svo Guðjón Jónsson. Milli þátta var stöðugt lífgað upp með söng, og var mikið sungið á mótinu, sem stóð frá klukkan 3 til 8 síðdegis. Þar ríkti bæði ánægja, áhugi og hinn góði andi sam- félags ungra og aldraðra, og hef ég frá öðrum en Guðjóni Jónssyni fengið þær upplýsingar, að þarna var gott að vera. Röggsamlega var stjórnað og af heilhug og góðum skilningi á málum haldið, þannig, að mótið varð bæði til g'agns og skemmtunar og með góðum menn- ingarblæ. Með slíkum mótum er unnið mjög gott og nauðsynlegt kynningar- starf, sem alls staðar er þörf á, og ekki sízt í dreifbýlinu. Eftir er þá að geta þess, sem sízt má gl'eyma, en það er verk þeirra kvenna, sem á vegum áfengisvamanefndanna sáu um rausnarlegar veitingar, sem fram voru bornar í fundarhléi, og varð að þrísetja, sökum þess hve fundarmenn voru margir. Barnamunnana varð auð- vitað að seðja, hvað svo sem hinum fullorðnu hefði liðið, en þeir voru auð- vitað ekki settir hjá. Þetta þjónustustarf er ævinlega mikilvægt í öllu samlífi manna og allri félagsstarfsemi, og verður konum aldrei ofþökkuð öll þeirra fórnfýsi og fyrirhöfn í sambandi við slíkt. Hitt mótið var í Hofsósi á æskulýðs- daginn, 8. marz sl. og fór fram með svipuðum hætti og mótið í Steinsstaða- skóla, en hafði þó umfram það, að sóknarpresturinn, Séra Árni Sigurðs- son, söng messu í sambandi við mótið. Eins og á hinum staðnum voru það áfengisvarnanefndir þriggja hreppa, sem stóðu að Hofsósmótinu, og er blað- inu kunnugt um það eitt, að mótið heppnaðist prýðilega. 011 slík samtök manna er góð menn- ingarrækt og á þenna hátt m. a. geta áfengisvarnanefndirnar áreiðanlega gert mikið gagn í dreifbýlinu, og reynd- ar í þéttbýlinu einnig'. Starf er líf og líf er hið skapandi afl. Kyrrstaðan og að- gerðarleysið er í þjónustu dauðans og hnignunarinnar. Sá sem starfar, þjónar og fórnar, auðgast og auðgar aðra. Frá ísafirdi Þess var getið í síðasta blaði Ein- ingar, að fjörkippur hafi orðið í stúku- starfinu í Isafirði. Bæjarstjórinn þar, Jón Guðjónsson, getur þess í bréfi til Stórstúku íslands, að um síðustu ára- mót hafi félagar stúkunnar Isfirðings verið aðeins 15, en séu nú ( í byrjun marz sl.) orðnir um 80. „Fundirnir eru ánægjulegir,“ segir bæjarstjórinn, ,,Það er dásamlegt að hafa allt þetta unga fólk í kringum sig og horfa á sanna gleði þess við saklausa skemmtun eftir fundi. — Mikill þróttur og starfsgleði og margt á döfinni,“ segir í bréfinu. Áreiðanlega eiga þau góðu hjón, bæjarstjórinn og kona hans, sinn drjúga þátt í þessari ágætu starfsemi, en fleiri góðir kraftar eru þar að verki. Samkvæmt síðustu fréttum hefur stúkan Isfirðingur tekið inn 80 nýja félaga undanfarnar vikur, margt ungt fólk. Þetta hefur vakið almenna ánægju manna í ísafirði. Þá minnist bæjarstjórinn á barna- stúkustarfið, að þar vinni nokkrar konur af miklum áhuga, og ekki skorti á starfsgleði og áhuga barnanna sjálfra. Það er því fólk á öllum aldri. sem lyftir nú merki reglunnar enn einu sinni í ísafirði. Frá Akureyri Ritstjóri Einingar spurði Gunnar Dal, rithöfund, erindreka Stórstúku íslands, frétta af stúkustarfinu á Akur- eyri. ,,Allar stúkurnar þar starfa nú af miklum og vaxandi krafti,“ sagði Gunnar. ,,Á fundi , st. Brynju er ég sat um mánaðamótin janúar-febrúar, voru 58 félagar og 9 nýir félagar bættust þá Hann er í samræmi við sköpunarmátt lífsins. Með starfsemi sinni hefur áfengis- varnaráð komið ýmsu góðu til leiðar og skipulagt bráðnauðsynlega starfsemi í landinu. Áreiðanlega hefur ráðið hug á því, að komið verði á hér og þar í landinu mótum með svipuðum hætti og þau, sem hér er sagt frá. P. s. í hópinn. Stúkan nýtur eins og kunnugt er traustrar og ágætrar forystu, og er þar mikið og vel starfað. Stúkan Isafold starfar einnig með ágætum. Á þeim fundi, er ég sat þar, voru 72 félagar og 14 nýir bættust við, og síðustu fréttir herma, að fundarsókn hafi farið þar enn vaxandi. Isafold er fyrsta stúkan, sem hefur notfært sér starfshópa- eða þríhyrningskerfið og gert það að veruleika. Hafa félagar þar unnið dyggilega að björgun drykkju- manna og er ætlunin að fá hverjum nýjum félaga þriggja manna starfshópa sér til aðstoðar. Eiga þeir Adólf Ingi- marsson og Magnús Kristinsson sérstak- ar þakkir skilið í þessu sambandi fyrir ágætt starf. Mikið líf er einnig í barnastúku þeirri, sem Eiríkur Sigurðsson, skóla- stjóri, veitir forstöðu, og eru fundir þar * fjörlegir, skemmtilegir og mannbæt- andi. Akureyrar stúkurnar héldu fjölmenn- an útbreiðslufund í Borgarbíói 4. febr. sl. Var fundarsókn svo mikil að margir urðu frá að hverfa.“ Þá gat Gunnar Dal þess, að í Borg- arnesi hefði verið stofnað ungtemplara- félag 8. marz sl. og voru stofnendur þess 43. Aðalhvatamður þess er frú * Geirlaug Jónsdóttir, en henni er treyst- andi til góðra átaka og öruggrar forustu. Seinast var í Einingu sagt frá fram- gangi stúkustarfs á Stokkseyri og Skagaströnd. Hvaða staðir koma næst? ------ooOoo------ Góðœri hjó Carlsberg Danska Avholdsbladet birtir fáeinar setn- ingar af lofgerðaróði Gamla Carlsberg um * góðæri: Meiri ölneysla innanlands, meiri útflutningur, allt veltur á milljónum. Sl. ár greiddi fyrirtækið í ölskatt og sódavatns- skatt 103,3 milljónir, og svo er það gleði- efni á því heimili, að Carlsberg er að fara fram úr Tuborg í ölframleiðslunni, en bæði fyrirtækin framleiða dag hvern tvær milljón- ir ölflaskna. Hvað munar svo fyrirtæki, sem greiðir yfir 100 milljónir danskra króna á ári í ölskalt, um það að sletta einbverjum peninga- slatta í góðgerðarstarfssemi eða til menning- armála, til þess, eins og þar stendur, að * „öðlast þjóðarþögn/ fá á sig orð líknsem- innar. FRÁ NOREGI. Þangað er förinni heitið í sumar. *

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.