Eining - 01.04.1961, Qupperneq 3
EINING
3
r—
.4> ís 1 e n z 1? íít nn[ ^temp f Ritsijórn blaósiðunnar: J. 3. I* 3. I* Guðmundur Þórarinsson og Einar Hannesson.
<?>-
Æskulýðurinn og sagan
Aldrei hafa æskumenn landsins not-
ið meiri og betri skólamenntunar en
nú, þó er það ætlun margra, að þekk-
ingu hennar á fomum bókmenntum og
sögu þjóðarinnar hafi farið aftur, og
hið sama mun vera um ljóðin frá skáld-
anna tungu. — Þetta er skiljanlegt, hin
líðandi stund hefur upp á svo margt að
bjóða, sem auðmeltara er og æsilegra.
Hér, sem á fleiri sviðum, þurfum við
að standa trúan vörð. Dýrasti arfur
okkar um aldaraðir eru bókmenntirnar
og okkur er það ekki skammlaust, að
láta þær rykfalla í hillunum, en lélega
reyfara og æsisögur skipa öndvegið.
Lestur fornrita í útvarpið er ágætur,
sérstaklega er mörgum hugstæður hinn
snjialli flutningur próf. Einars ólafs
Sveinssonar, sem vissulega hefur haft
sín áhrif.
Fyrir stuttu kom út lítil bók með
nafninu „Sagan okkar“, sem ætluð er
bamaskólunum til lesturs. Hún stiklar
létt á öllum helztu atburðum sögunnar
og myndirnar í bókinni opna okkur
heim atburða, þjóðlífshátta og örlaga-
stunda. Myndirnar eru listavel gerðar
til að vekja forvitni og áhuga barnanna.
Höfundar eiga miklar þakkir skilið
fyrir þessa bók.
Eitt af því sem okkur er stór nauðsyn
á að gera, er að taka skuggamyndir og
„Veggirnir á bæjum fornmanna voru oftast
hlaðnir úr torfi og grjóti. Þakið var úr torfi.
Stoðir, bitar og sperrur voru úr timbri, annað-
hvort rekavið eða trjávið, sem hafði verið
fluttur hingað frá Noregi. Sum herbergin voru
þiljuð að innan að meira eða minna leyti, eink-
um stofan. Stundum var hún tjölduð dúkum.
Oft hengdu menn vopn sín og skildi á vegg-
ina fyrir aftan sætin.
Til þess að hita stofuna var hafður eldur
á miðju gólfi. Eldstæðið var afmarkað með
hellusteinum. Stundum náði eldurinn eftir
endilöngum salnum og hét þá langeldur. Báð-
um megin við eldinn voru sætin. Fyrir miðj-
um vegg var sæti húsbónda og konu hans,
öndvegið, vanalega hærra en önnur sæti. Beint
á móti öndveginu við hinn vegginn var óæðra
öndvegið. Við öndvegið stóðu öndvegissúlurn-
ar, vanalega fagurlega útskornar með guða-
myndum“. (Mynd og texti úr bókinni „Sagan
okkar“. Efnisval bókarinnar hefur Vilbergur
Júlíusson annast. Bjarni Jónsson gerði mynd-
irnar, en textann samdi Ólafur Þ. Kristjáns-
son).
kvikmyndir af helztu atburðum í sögu
okkar og bókmenntum. Ef til væru
góðar litskuggamyndir, sem hægt væri
að sýna við sögukennsluna, þá yrði hún
áhrifameiri og vekti áreiðanlega löng-
un bama og unglinga á því að kynnast
nánar því efni sem sýnt væri. — Eins
væri gott að stuttir leikþættir væru
samdir úr ýmsum áhrifamestu köflun-
um í bókmenntum okkar og sögu. Tjald-
ið væri dregið frá og opnaður hinn hug-
myndaríki söguheimur og fram á sviðið
stigju persónur eins og Gunnar á Hlíð-
arenda, Skarphéðinn, Guðrún og Kjart-
an og ýmsir atburðir sögunnar svo
sem: Jóni Gerrekssyni drekkt í Brúar-
ár, Siðaskiptin, Kópavogsfundur, Þjóð-
fundurinn 1851 o. fl. slíkt myndi áreið-
anlega hafa sín áhrif.
Fátt dýpkar svo hugann og lyftir
svo manninum sem lestur góðra bóka.
Mitt í öllum ys og þys umhverfisins er
gott að taka sér bók í hönd og lesa hana
með íhugun. Skáldverk eins og: Heims-
kringla, Njálssaga, Laxdæla og fleiri
íslendingasögur, sem þykja gimstein-
ar meðal heimsbókmenntanna mega
þá ekki gleymast. Islendingar þurfa að
kunna nokkur skil á beztu bókmennt-
um lands síns.
Nýjung í starfinu
Annað þing Æskulýðssambands íslands var
haldið í Reykjavík dagana 26. og 26. marz sl.
í sambandinu eru 11 landssambönd íslenzkrar
æsku með um 60 þúsund félagsmönnum.
Á þinginu kom fram, að starfsemi sam-
bandsins hefur gengið vel og samstarfið innan
samtakanna hefur verið með ágætum. Sam-
skipti við erlend æskulýðssambönd hafa verið
töluverð á undanförnum árum og innanlands
hefur gerzt ýmislegt, m. a. hefur verið opin
skrifstofa, sem veitir aðildarsamtökunum fyr-
irgreiðslu, tvö félagsmálanámskeið hafa verið
haldin og tvö tölublöð af fréttabréfi sambands-
ins hafa komið út.
Á þinginu ríkti góður samhugur og mikill
áhugi fyrir framtíðarstarfi sambandsins. Ráð-
gert er fjölbreytt félagsmálanámskeið að Bif-
röst í Borgarfirði í vor og í undirbúningi er
hópferð 15—20 æskulýðsleiðtoga til Þýzka-
lands í boði æskulýðssambands Schlesvig-Hoi-
stein, og fleira er í býgerð. Þingið gerði nokkr-
ar samþykktir, m. a. um að hafizt verði handa
um ýmis konar skýrslu- og heimildarsöfnun
um íslenzka og erlenda æskulýðsstarfsemi,
og um fjárframlög hins opinbera til hins
almenna pólitíska æskulýðsstarfs. — For-
seti þingsins var Axel Jónsson frá í. S. í.
Formaður ÆSÍ fyrir starfsárið 1960—61 hef-
ur verið Björgvin Guðmundsson frá Sambandi
ungra jafnaðarmanna.
o=sir----
Næsta þing norskra ungtemplara verður
haldið í Röros dagana 9.—15. júlí n.k.
Þing og mót sænskra ungtemplara verður í
Karlskoga 23. til 28. júní n.k.