Eining - 01.04.1961, Blaðsíða 4

Eining - 01.04.1961, Blaðsíða 4
4 EINING f JÓN HELGASON Eftir stutta vanheilsu andaðist Jón Helgason að heimili sínu, Bergstaða- stræti 27, Reykjavík, hinn 18. janúar s. 1. Hann var fæddur að Grundar- bakka á Berufjarðarströnd 24. maí 1877, og var hann því 83 ára og næst- um 8 mánuðum betur er hann lézt. Naumast tvítugur að aldri kom Jón til Reykjavíkur og hóf prentnám í Fé- lagsprentsmiðjunni hjá Halldóri Þórð- arsyni bókbindara og ólafi ólafssyni prentara. Að námi loknu fór Jón til Noregs til frekara náms í lýðháskólann á Jaðri. Þar kynntist hann meðal annars ung- mennafélagshugsjóninni og hafði hún mjög áhrif á líf hans er heim kom og ætíð síðan. Eftir heimkomuna gerðist hann meðstofnandi að prentsmiðjunni Gutenberg, og vann þar til 1907 er hann keypti Aldarprentsmiðjuna á- samt Karli Bjarnasyni prentara. Þeir félagar fluttu prentsmiðjuna til Hafn- arfjarðar og voru þar til ársins 1910. En til Eyrarbakka fluttu þeir síðan og voru þar til 1913. Þar hóf Heimilis- blaðið göngu sína, og er það nú að byrja fimmtugasta árið. Svo seldu þeir prentsmiðjuna á Eyrarbakka og kom þá Jón aftur til Reykjavíkur og vann í Gutenberg til 1925, en þá kom hann upp lítilli prentsmiðju heima hjá sér og prentaði í henni Ljósberann, sem þá var lítill og í litlu bókarbroti. En prentsmiðjan stækkaði og blaðið var stækkað í sama brot og Heimilisblaðið. Jón Helgason var félagslyndur mað- ur. Hann gekk ungur í Góðtemplara- regluna og KFUM, og léði hverju góðu málefni lið. Hann var einn þeirra manna, sem barðist fyrir endurreisn Skálholtsstaðar og lagði fram fé til þess, og hann var einn af stofnendum Ungmennafélags Reykjavíkur 1906. Kynni mín af Jóni Helgasyni hófust í st. Framtíðinni nr. 173 fyrir aldar- fjórðungi og voru það góð kynni og öll á eina lund síðan. Hann var einn af stofnendum stúkunnar 11. febr. 1918 og hélt tryggð við hana til æviloka. Hann var meðstofnandi Barnaheimilis- sjóðsins, sem stofnfélagar stúkunnar stofnuðu á 25 ára afmælisdegi henn- ar 11. febr. 1943. Hann var heiðurs- félagi stúku sinnar, Umdæmisstúkunn- ar nr 1 og stórstúkunnar, og var það almannamál að fáir hefðu þeir verið, sem eins vel hefðu verið að þeim heiðri komnir. Þegar ég mætti Jóni fyrst í Góð- templarareglunni var hann mér sem ljósgeisli á nýjum vegi, og það var hann mér ætíð síðan. Góðleikur hans og félagslund var svo mikil og mæt, að ekkert skyggði á, og vinátta hans var mér sannarlega mikils virði og er mér enn, þótt við séum skildir í bili. Þessi fáu minningarorð legg ég sem lítið blóm á leiði þitt, kæri, góði vinur, og þakka þér allt og allt. Jón Gunnlaugsson. o=sic :e=o Jón Hafliðason sjötugur Miklu betri blaðamatur er það, þá góðra manna er getið við viss tækifæri, heldur en ýmislegt annað, sem blöðin færa okkur daglega. Þegar mannkostamenn eru búnir að lifa sjö áratugi, og starfa af trúmennsku og dyggð í þjóðfélaginu allt frá æskudög- um, eiga þeir vissulega skilið viðurkenn- ingarorð og þakkir. Ef til vill eru menn þó stundum of örlátir á hrósið við slík tækifæri. Það vitum við, sem reynt höfum. Jón Hafliðason, fulltrúi stjórnar tré- smiðjunnar Völundar, var 70 ára 8. marz sl. Ekki hefur hann samt bognað neitt enn undir byrði áranna, enda verða nútíma- menn að telja 70 ár bezta aldur. Sá, sem nú væri sjötugur, sagði níræður kvenna- vinur, er hann sá föngulega snót. Ég er nú aðeins rúmum þrem mánuðum eldri en Jón, og mér hefur aldrei liðið betur og hlakka enn til hvers komandi dags. Og ég er viss um, að Jón Hafliðason og hans ágæta frú, Arnbjörg Stefánsdóttir, fagna enn hverjum nýjum degi, því að hvenær sem þau birtast á fundum okkar templara, eða annars staðar, er eitthvað skemmti- legt og uppörfandi við alla framkomu þeirra og viðmót. Slíku fólki er gott að kynnast. Við Jón Hafliðason er alltaf eitt- hvað karlmannlegt og hressandi, og hið glaðlega viðmót vitnar um einhverja auð- legð hið innra. Skóli lífsins hefur farið vel með Jón, en hann fært sér leiðsögn hans vel í nyt. Á unga aldri stundaði hann bæði verzlun- Jón HafliSason. arstörf í Patreksfirði og sjósókn þaðan, en gott hefur það löngum reynst íslend- ingum að kynnast sem bezt atvinnuvegum þjóðarinnar. Til Patreksfjarðar fluttist Jón aðeins 9 ára með foreldrum sínum, en fram að þeim aldri var hann í fæðingarbæ sín- um Hafnarfirði, og suður fluttist hann aftur og stundaði svo nám í Flensborgar- skóla og verzlunarskólanum, en árið 1916 gerðist hann starfsmaður Völundar, og hefði ég þekkt Jón þá, hefði ég keypt hjá honum efniviðinn í hjónarúm okkar hjón- anna, því að einmitt það árið smíðaði ég þau. Hef alltaf þótt gaman að handleika timbur og sjá eitthvað snoturt verða úr því, ekki síður en Jóni Hafliðasyni, en ekki veit ég hvort hann hefur smíðað nokkuð að ráði, en töluvert á fimmta tuginn er hann búinn að starfa dyggilega hjá sama fyrir- tækinu, einnig það lýsir manninum nokkuð. Við Jón höfum kynnst aðallega í góð- templarareglunni. Þar hefur hann lagt fram krafta sína af heilum hug áratugum saman, einn af þeim mörgu, sem vinnur margvísleg ólaunuð störf í þágu félagslífs og menningar. Hann er heiðursfélagi stúku sinnar, Fróns, einnig umdæmisstúku Suð- urlands og Stórstúku íslands. í fram- kvæmdanefnd stórstúkunnar og gjaldkeri hennar hefur hann verið lengi undanfarið. Fleiri félagsmálum hefur hann sinnt, svo sem í kirkju sinni, Fríkirkjunni, Oddfellow- reglunni, Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur og sennilega fleirum. Ég er einn þeirra mörgu, sem á þessum tímamótum ævi Jóns Hafliðasonar óska honum og hans nánustu allra heilla og blessunar, og þakka honum góð kynni, trausta vináttu og mikið og gott starf í þágu góðra málefna og þjóðfélagsins. Pétur Sigurðsson. Spurul Lítil stúlka var alveg að gera út af við föður sinn með þrálátum spurningum og hef- ur sennilega þótt hún ekki fá nægilega góð og greið svör. Eftir ofurlitla umhugsun og þögn spurði hún: „Pabbi, ef þú hefðir vitað fyrirfram, að þú myndir fá fleiri litlar stúlkur eins og mig, mundir þú þá ekki hafa þurft að ganga í fleiri skóla og læra dálítið meira?“

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.