Eining - 01.04.1961, Page 12
12
EINING
Þessi varð árangurinn
Andstæðingar bindindismanna í Noregi sóttu
það m.jög fast að fá áfe'ngisútsölu í sumum
bæjum, sem ekki höfðu haft hana undanfarið.
Árangurinn er nú kominn í ljós. í þessum
bæjum hefur drykkjuskapurinn aukizt um
71%, þótt annars staðar í landinu sé hann
ekki meiri en árið áður. í Hammerfest, sem
nýlega fékk áfengisútsölu, hafa kærur fyrir
ölvun þrefaldast. Það kemur alltaf í ljós, að
hvar sem rýmkað er um áfengissölu, eykst
drykkjuskapur. Allar gagnstæðar fullyrðing-
ar manna eru blekkingar.
•••• »•••
Kynni ungmenna af
áfengisneyzlunni
Sænska fræði- og vísindaritið Alkoholfr&gan
flytur allítarlega ritgerð um rannsókn, sem
kennaraskólakennarinn Stig Bernes fram-
kvæmdi í Kalmar, Svíþjóð, til þess að komast
að raun um, hver væru kynni æskumanna, og
þá sérstaklega námsfólks, af áfengisneyzlu.
Bæði bamavemdarnefnd staðarins og skóla-
stjómin höfðu hvatt hann til að framkvæma
þessa rannsókn. Sá fróðleikur sem fengizt
þannig skyldi svo hagnýttur við eflingu heil-
brigðari lifnaðarvenja námsmanna, einkum
varðandi áfengisneyzlu'.
Kannsóknin veitti vitneskju um að 50 af
hundraði 13 ára unglinga höfðu komizt í kynni
við áfengisneyzlu, sum höfðu auðvitað aðeins
bragðað það, en þegar komið var Upp í 19 ára
aldurinn, hafði 50 af hundraði piltanna neytt
áfengis hvað eftir annað, og á þessum aldri
höfðu 90 af hundraði námsmanna, piltar og
stúlkur, neytt áfengis. Heimboð, samkvæmi
og fríin um helgamar leiddu til fyrstu kynna
ungmennanna af áfenginu. Drykkjusiðir for-
eldranna áttu og drjúgan þátt í slíku.
Drykkjutízkan ræktar ómenninguna.
Var það einkamál að hella í
sig áfengi og valda dauða
sex manna
Maður nokkur í Danmörku, Poul Hage-
mann, endurskoðandi, var að lyfta sér upp
á afmælisdaginn sinn og sá ekki ástæðu til
að neita sér um hressingu, þótt hann þyrfti
svo að leggja út á þjóðbrautirnar. Fjóra far-
þega hafði hann í bílnum, allir voru þeir ölv-
aðir, en hann þó mest.
Ferðalagið endaði þannig, að hann ók á
annan bíl. Það kostaði hann sjálfan lífið og
þessa fjóra, sem hjá honum voru í bílnum,
og litla stúlku í bílnum, sem hann ók á, en
faðir hennar slasaðist svo, að honum var ekki
hugað líf.
Mundi nú móðir litlu stúlkunnar, sem missti
hana og svo manninn sinn einnig, eða venzla-
menn hinna fimm, sem fórust í ógæfubílnum,
telja það „einkamál" manna, hvort þeir drekka
áfenga drykki eða ekki?
Sannarlega þarf að draga þá menn mis-
kunnarlaust fram í dagsljósið, sem gera sig
að þeim fíflum frammi fyrir alþjóð, að telja
það einkamál manna hvort þeir drekka eða
ekki. Slíkt er hámark stráksskapar og vit-
leysu. Slíkir menn reyna stundum að óvirða
þá, sem berjast gegn áfengisbrjálæðinu, en
þeir ættu að sjá sig sjálfa í skæru kastljósi
reynslu þjóðanna.
Börn Jarðar
Ekki er það nægilegt að vera
„frænka eldfjalls og íshafs,
sifji árfoss og hvers,
dóttir langholts og lyngmós,
sonur landvers skers“.
Þar með erum við aðeins jarðarbörn, og
jarðarbörnum kemur oft illa saman. Við öðru
er ekki að búast meðan við erum ekki annað
en börn eldfjalls og úthafs — hinna hams-
lausu náttúruafla. Við þurfum því að fæðast
á ný, fæðast andlega, fæðast inn í æðra heim.
Við þurfum að verða eitthvað meira en að-
eins jarðarböm. Við þurfum að verða guðs-
börn. Þá fyrst er einhver von um sæmilegt
líf á jörðu, því að þá erum við orðnir ættstórir
menn. P.
Bros og tár.
Þegar konan brosir, dregur hún okkur til
sín. Þegar hún grætur, leiðir hún okkur nær
Guði.
Fundið og týnt.
Á öld mestu uppfinninganna hefur mönn-
um orðið það á, að týna sjálfum sér og Guði.
Hæð og dýpt.
Dalurinn er eins djúpur og fjallið er hátt.
Hæfileikinn til að þjázt samsvarar hæfileik-
anum til að njóta. Sá getur notið fullkom-
innar sælu, sem þekkir hina sárustu kvöl.
P.
TIMBURVERZLUNIN
VÖLIJIMDLR h.f.
Reykjavík
★
Kaupið timbur
og ýmsar aðrar byggingavörur.
hjá stærstu timburverzlun landsins
Ferðisl
og flyijið
vörur yðar
með skipum
H.f. Eimskipafélags
íslands
„Alli með
Eimskip”