Eining - 01.12.1961, Side 3

Eining - 01.12.1961, Side 3
EINING 3 I guðspjöllúih, bænum og sálmum syngjum vér nú um fæðingu hans á þessa jörð, jörðina sem þér þykir dap- urleg og dimm. En sársauka þinn yfir því, hve fjarlægur heimurinn enn er hugsjónum hans, átt þú líka honum að þakka. Vegna þess að hann kom, getum vér aldrei tekið fullum sáttum við misk- unnarleysið, ranglætið, hið óhrjálega, lága, grófa, Ijóta. Hann kenndi oss að sjá æðri sýnir, og þess vegna getur jörðin aldrei aftur orðið eins og hún var fyrir fæðingu, hans. Fátækur gjörð- ist hann, en svo mjög höfum vér af gnægð hans þegið, og það náð á náð ofan. Undan áhrifavaldi hans getur enginn aftur komizt. Svo merkir hið háa mannlega sál, að aldrei máist aftur burt. Vera má, að þér finnist langt síðan þú varst barn á jólum, og þó ertu enn- þá barn, enn að ganga þín bernskuspor, og þess vegna kann leið þín enn að vera ■ löng. En aftur og aftur mætir manns- sálin honum, sem í húmi hinnar heilögu nætur fæddist. Þau örlög batt hann mannkyninu sjálfur með því að fæðast til jarðarinnar. Þess vegna lofum vér Guð fyrir þessa örlaganótt alls mannkyns. Gleðileg jól, í Jesú nafni. Þetta er Sauðárkrókskirkja. Fyrir skömmu var henni sýndur allmikill sómi og hún yngd upp að ýmsu leyti. Myndirnar gaf Jón Þ. Bjömsson, fyrrv. skólastjóri, rit- stjóra blaðsins, en hann hefur löngum verið einn bezti vinur og stuðningsmaður þess- arar kirkju, eins og kristinnar kirkju yfirleitt. Ein af dómkirkjum Moskvu, helguð heilög- um Basilíusi kirkjuföður. Kirkjan er ein af þessum sérkennilegu miðaldakirkjum og sameinar ítalska og byzantiska bygginga- list og reyndar fleiri landa. Hún er reist á árunum 1555—1560 og fær enn að standa og vitna um tímann sem var, list og hag- leik manna, og þann viðhafnarbúning, sem menn oft hafa valið tilbeiðshi sinni. nótt Fyrsta stef þessa litla Ijóðs er lausleg þýðing úr ensku, en hin frumsamin. Auk lags■ ins, sem hér fylgir, á lagið „Kom skapari heilagi andi“, einnig við. P. S. Aldrei er nótt, ef ásýnd þín yfir mér, góði Jesús, skín. Lát aldrei jarðnesk skuggaský skyggja’ á það ljós, sem þú býr í. Þótt liggi för um dimman dal, með djörfung áfram halda skal, því við mér blasir sólbjört sýn. Eg sé hvar ljómar ásýnd þín. Ef ei eg gálaus af þér lít, frá öllum hættum bjargast hlýt og vegsama mín vegleg kjör. Þá verður gangan sigurför. Skín alvallt, drottinn, yfir mér. Eg ann því mest að fylgja þér, og vilji daprast vaka mín, mig veikan styður höndin þín. IZj h-j—H—'| ‘M"1 1 -l ■ 1-— (Wl E 3 *■ rall. = p E=gr 4-i Í t t ■ i i k r Jt ... j r -i^y—- r-~ t ' r |:r- ■

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.