Eining - 01.12.1961, Page 8
8
EINING
EINING
Mánaðarblað um áfengismál, bindindi og önnur
menningarmál.
PJtstjóri og ábyrgðamaður: Pétur Sigurðsson.
Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá ríkinu og Stórstúku
íslands, kostar 30 kr. árg., 3 kr. hvert eintak.
Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982, Reykjavík.
Simi: 15956.
vöþnm
Ríkir menn geta auðveldlega gefið höfðinglegar jólagjafir,
ef þeim þóknast svo. Stórveldi heimsins geta gefið öllu
mannkyni þá jólagjöf, sem mestan fögnuð myndi vekja í
hjörtum flestra manna eða allra.
Eiga þá stórveldin þá göfgi og það lundarfar, sem þarf
til að gefa slíka gjöf?
Gjöfin er sú, að boða öllum heimi, að nú skuli vopnin
slíðruð. Fagnaðarríkari jólaboðskap hefði þá hrjáð mann-
kyn aldrei heyrt.
Friðarhöfðinginn sjálfur — jólagjöf alföður — sagði við
skapheitan lærisvein sinn:
„Slíðra þú sverð þitt, því að allir þeir, sem grípa til sverðs,
munu farast fyrir sverði.“ Þe.tta hefur orðið reynsla allra
alda og kynslóða. Hefur mannkyn þá ekkert lært af þeirri
sáru reynslu.
Biðjum að andi Guðs tali til leiðtoga stórveldanna, já allra
þjóða, og bjóði þeim: Slíðra þú vopn þitt.
Biðjum að orð spámannsins rætist nú: „Og þær (þjóðirn-
ar) munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr
spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð,
og ekki skulu þær temja sér hernað framar.“
Fylling tímans er komin enn einu sinni. Fylling tímans
til að slíðra vopnin. Til slíkra aðgerða eru jólin vel fallin.
Skáldið Longfellow hlustaði á unaðsóma kirkjuklukkn-
anna, er þær hringdu inn jólin, en þá drundu fallbyssurnar
í suðri og var sem álfan öll fengi hjartaslag. Skáldið laut
höfði í örvæntingu og sagði: „There is no peace on earth,“
enginn friður á jörðu, friðarhöfðinginn, sem fæddist mann-
kyni, borinn út. En þá hringdu klukkurnar enn ákafara og
sögðu: Guð lifir enn og sefur ekki,
,,The Wrong shall fail,
the. Right prevail,
with peace on earth, good-will to men.“ —
Allt böl og stríð / skal batna um síð / og búa menn við frið
á jörð. — Þetta er og verður hinn ævarandi boðskapur jól-
anna. Gefi Guð öllu mannkyni friðarjól.
GLEÐILEG JÓL!
Ekki aðeins stórveldi þurfa að slíðra vopn sín og smíða
úr þeim nytsamleg verkfæri, það er: að nota milljónirnar,
sem hernaðarbrjálæðið gleypir til bjargar og blessunar þurf-
andi mannkyni, heldur þurfa allar þjóðir að slíðra vopnin.
Ef engill jólanna áræddi að ávarpa íslenzku þjóðina,
myndu orð hans verða þessi: Slíðrið vopnin.
Einræðið er skuggalegur húsbóndi, en lýðræðisins mikla
synd er sú, að það margklýfur þjóðfélagið í stríðandi flokka,
sem ævinlega skapa eins konar Sturlungaaldar ástand. Þetta
er hryllileg fásinna og þjóðarvoði. Þar er kappsamlega tefld
svikamylla verðbólgunnar, sem tekið getur þjóðir því kverka-
taki að þær hætti að draga andann sem frjálsar og sjálf-
stæðar þjóðir.
Þið, sem leikið ykkur með fjöregg íslenzku þjóðarinnar,
slíðrið vopnin. Nokkur stjórnmálaátök kunna að vera rétt-
lætanleg, en þau mega ekki vera ódrengileg, ekki lífsháski
fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar.
Fyrir síðari heimsstyrjöldina, var þjóðin ekki fjarri því
að glata f járhagslegu sjálfstæði sínu. Þann skuggalega draug
yngja nú stríðandi flokkar upp á ýmsum blóðtökum í þjóð-
félaginu.
Bindmdisdagurinn
er nú að baki. Hversu hann hefur heppnast er óráðið enn.
Það mun þó hafa verið ærið misjafnt. Ævinlega eru einhver
ljón á vegi, þegar um slíka starfsemi er að ræða og von-
brigði verða ekki umflúin, en stjórn Landssambandsins gegn
áfengisbölinu sendir nú kveðju sína og beztu þakkir öllum
þeim mörgu, sem á einn og annan hátt áttu þátt í því að
dagurinn gæti vakið þjóðarathygli. Að því var stefnt, þess
var þörf og að einhverju leyti hefur þetta heppnast.
Góðar greinar eftir þjóðkunna áhrifamenn birtust þenna
dag í öllum dagblöðum Reykjavíkur. Og þar voru sterk
vitni öll rækilega sammála um að áfengisneyzlan væri þjóð-
arböl, sem bæta þyrfti. Gísli Jónsson, alþingismaður, kemst
svo að orði:
„Þegar á þetta er litið, er ljóst, að misnotkun áfengis er
ekki aðeins þjóðarböl ,heldur líka langmesta bölið, sem þjóð-
in á nú við að glíma, og sem óhjákvæmilega hlýtur að lama
þrek hennar andlega og líkamlega meira en hollt er, ef ekki
er hafin sterk sókn gegn þessum voða.“
Séra Sveinn Víkingur segir í grein sinni:
„Af þessum sökum hlýtur hver maður, sem á annað borð
nennir að hugsa, og ber mannlegar tilfinningar í brjósti, að