Eining - 01.03.1962, Síða 8

Eining - 01.03.1962, Síða 8
8 EINING Jacob Mörk 75 ára Hver er Jacob Mörk? spyrja senni- lega lesendur Einingar. Það er ekki á- stæðulaust að ritstjóri blaðsins kýs að geyma þar mynd þessa norska vinar og samherja. Það var hann, þá formaður bindindissambands ökumanna í Noregi, sem ásamt Steinar Hauge, skrifstofu- stjóra sambandsins, sem kom til mín í Stokkhólmi á bindindisþingi þar árið 1947 og bauð mér að koma á landsþing þeirra í Kristiansand og buðust til að kosta för mína að öllu leyti frá og til Oslóar. Þetta ánægjulega þing hefur orðið mér minnisstætt og átti sinn þátt í að flýta fyrir því, að stofnað var í ís- landi Bindindisfélag ökumanna. Jacob Mörk er ekki fasmikill maður, en hann er traustur og honum hefur verið treyst. Hann var einn hinna sjö, sem árið 1928 stofnuðu Motorförernes Avholdsforbund — hið norska bindind- isfélag ökumanna, og síðan hefur hann verið meira og minna þar í fararbroddi, formaður sambandsins árin 1937 til 1948. Þegar tryggingafélagið Varde var stofnað, var hann þar í fararbroddi og stjórnarformaður þess sjö eða átta ár og nú er hann stjórnarformaður tryggingafélagsins Ansvars í Noregi. Hann er heiðursfélagi hins norska bindindissambands ökumanna og fékk fyrstur allra gullverðlaun þess. Einn- ig er hann heiðursfélagi Norðurlanda- sambands þessara samtaka á Norður- löndum, og ýmislegt fleira mætti nefna til sönnunar því, að mikils trausts hef- ur hann notið. Jacob Mörk er mesta prúðmenni, sem enginn styr stendur um, en áhrif hans hvarvetna góð. 75 ára varð hann 30. desember 1961. — Eining sendir hon- um beztu kveðju og blessunaróskir. Pétur Sigurðsson. i=i Vornótt í óbyggbum Hcitir erindi það, sem Theódór Gunn- laugsson, rithöfundur frá Bjarmalandi í Öxarfirði, flutti í ríkisútvarpið sunnudags- kvöldið 11. febr. sl. Það mátti heita við- burður að hlusta á þetta dásamlega erindi. Siíks er varla að vænta iðulega. Það er líka bezt að það eigi tilveru sína eitt sér, því að það sker sig svo hreinlega úr flestum hinum útvarpserindunum, sem eru þó mörg ágæt, en þetta var um svo sérstakt efni, scm frem- ur mörgu öðru hlýtur að bæra viðkvæma strengi í brjósti hvers Islendings, sem alinn hefur verið við brjóst fjalladrottningarinn- ar. Vonandi fáum við erindi þetta einhvers- staðar á prenti. 1=1 Ekki er allt sem sýnist Menn gráta einatt innra, þótt ekki hrynji tár, og tjalda blíðu brosi, þótt blæði hjarta sár. P. S. Þorsteinn Þorsteinsson, kaupm. áttatíu og fimm ára Þetta merkisafmæli átti Þorsteinn 16. janúar sl. Eining birti greinarstúf um hann fyrir fimm árum, þá áttræðan, en í fyrirsögn þeirrar greinar hefur það orðið á, að hann er þá talinn sjötugur í stað áttatíu ára. Hér verða því ekki höfð mörg orð um Þorstein að þessu sinni, honum aðeins færðar heillaóskir og þakkir fyrir það fordæmi, sem hann hefur gefið sem einn traustasti og á- gætasti Reglufélagi okkar bindindis- manna. Prúðmennska og öruggleiki ein- kennir alla framkomu hans, löng og farsæl ævi hefur honum gefizt, farsælt og hamingjusamt hjúskaparlíf, góð og mannvænleg börn. Hann hefur unnað þeim málum, sem til þjóðarheilla horfa, lagt þeim lið með góðu félagsstarfi og í hvívetna reynst drengskaparmaður hinn bezti, en slíkir eru alltaf landsins beztu þegnar. enn við lækningu drykkjumanna á Portal House hælinu. Ég trúi því að það starf sé þegnleg, siðferðileg og mannúðarleg skylda, því að ofdrykkjumenn eru sjúkir á líkama og sál, og vegna þess, að tíðarandinn varpar ljóma á orsök of- drykkjunnar, áfengið. Eftir að hafa starfað við lækningu ofdrykkjumanna og komizt að raun um fjölda þeirra í Chicagoborg og Banda- ríkjunum yfirleitt, veit ég, að starfsemi þessi nær skammt. 1 fyrsta lagi er fjöldi ofdrykkjumanna geysimikill, og í öðru lagi er lækning ofdrykkjumanna erfitt verk. 10. Eina leiðin til að draga úr þessu milda vanda- máli er að koma á öfl'ugri fræðslustarfsemi. Slík starfsemi verður að kynna sannleikann um áhrif áfengis á einstaklinginn og þjóðfélagið. Það þarf að finna leiðir til þess að eyða blekkingarljóma áfengisneyzlunnar. Ef einstaklingurinn trúir því, að hann hafi þjóðfélagslegar skyldur og réttindi, getur hann ekki látið stjórnast eingöngu af eigin óskum og fýsnum. Þar til almenningur gerir sér ljóst, að áfengisneyzla stuðlar að ofdrykkju, mun allri fræðslustarfsemi um áfengi mjög mikil takmörk sett. Slík fræðslustarfsemi verður að kenna fjöldanum að efla skemmtanir og viðfangsefni, sem eru líffræðislega og sið- ferðilega holl. Þetta er stærsta hlutverk slíkrar starfsemi. Plato kenndi, að tilgangur menntunar væri að þroska hina eðlilegu hæfileika mannsins, og gera hann fullkomn- ari persónuleika og þarfari þjóðfélagsþegn, að megin hlut- verk menntunar væri að þroska manninn í skapgerð og hegðun. Þannig er áfengisfræðsla veraldleg, siðferðileg og trúarleg menntun í æðsta skilningi. Ritgerð þessi hefur blaðinu borizt frá áfengisvarnaráði.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.