Eining - 01.10.1963, Side 7
EINING
7
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráð Landssambandsins gegn áfengisbölinu hafði
ársfund sinn laugard. 14. sept. sl. Fundurinn var í Góðtempl-
arahúsinu í Reykjavík. 28 fulltrúar komu til fundar eða
tveim fleiri en aðildarfélög landssambandsins eru. Þó komu
ekki fulltrúar frá öllum félagasamböndunum, en aftur á
móti tveir frá sumum.
Formaður landssambandsins lagði fram ársskýrslu stjórn-
ar þess, en þar næst fluttu þeir séra Kristinn Stefánsson,
áfengisvarnaráðunautur og Sigurður Gunnarsson, kennara-
skólakennari, erindi, en þeir fóru báðir til norræna bindindis-
þingsins í Karlstað í Svíþjóð um mánaðamótin júlí—ágúst,
séra Kristinn sem fulltrúi fslands og Sigurður að vissu leyti
einnig, báðir ágætir fulltrúar, en Sigurður var auk þess, og
aðallega, fulltrúi Landssambandsins gegn áfengisbölinu og
Bindindisfélags kennara. Þeir skiptu með sér verkum þannig,
að séra Kristinn sagði aðallega frá sjálfu norræna þinginu,
og birtir blaðið hér frásögn hans, en Sigurður flutti skýrslu
um þing bindindissamtaka kristinna safnaða á Norðurlönd-
um, og mun Eining bráðlega birta hana.
Erindi þessi voru ekki löng, en fundurinn stóð fjórar
klukkustundir. Margir fulltrúanna tóku ánægjulega til máls
og umræður urðu allmiklar um áfengisvandamálið. Ágætar
konur, sem vel þekkja til uppeldismála, hvöttu stjórn lands-
sambandsins til að ná sem mest og bezt til ungu kennara-
efnanna, og reyndar kennarastéttarinnar yfirleitt. Þær töldu,
að hjá góðum kennurum fengju börn og unglingar einna
bezta leiðsögn, sem þeir byggju lengi að, en auðvitað gleymd-
ust heimilin ekki og þeirra mikla ábyrgð. Umræður þessar
voru bæði notalegar og gagnlegar. Flestir sjá og eru sammála
um það, að eitthvað þurfi að gera til úrbóta í þessum vanda-
málum, sem hrella nú margan góðan manninn, og vissulega
er æði margt hægt að gera, þótt erfitt kunni að vera að
segja síðasta lausnarorðið.
■k -K *
Sigurður Gunnarsson:
Norskir ungtemplarar
Norskir ungtemplarar leysa af hendi mikið og gott og sí-
vaxandi starf í norsku þjóðlífi. Þeir starfa nú í 85 deildum
með tæpum 6000 félögum. Þeir hafa sína eigin skrifstofu í
Osló. Þar vinna tveir fastir starfsmenn, skrifstofustúlka og
framkvæmdastjóri N. G. U., Haakon Pettersen, sem einnig
ferðast líka nokkuð um milli deilda, a. m. k. í Ósló og ná-
grenni. Þeir hafa haft fastan erindreka síðustu árin og
greiðir ríkið % launa hans, en þeir ráða einnig menn til er-
indreksturs innan sinna vébanda til skemmri tíma. Með þess-
um hætti, samkvæmt kröfu hins nýja tíma, tekst þessum
áhugasömu ungu mönnum að hafa lífræn tengsl við deild-
irnar um land allt, styrkja störf þeirra á margan hátt og
halda uppi alveg furðu fjölþættri námskeiðastarfsemi víða
um land.
Nú munu vafalaust ýmsir spyrja, hvernig það geti átt sér
stað, að þetta unga bindindisfólk skuli geta framkvæmt svo
margt, — haldið uppi svo kostnaðarmiklum framkvæmdum.
Áhuginn er að sjálfsögðu, eins og annars staðar, drif-
fjöðrin í öllu hinu mikla starfi okkar ungu bræðra og systra
r---------------------------------------
Hin heilaga glóð
Svo segir drottinn hersveitanna: Takið eftir,
hvernig fyrir yður fer! Þér sáið miklu, en safnið
litlu, etið, en verðið þó ekki saddir, drekkið, en
fáið þó eigi nægju yðar, klæðið yður, en verðið
þó ekki varmir, og sá sem vinnur fyrir kaupi,
vinnur fyrir því í götótta pyngju. . Takið eftir,
hvernig fyrir yður fer! Þér búist við miklu, en
fáið lítið í aðra hönd; og þótt þér flytjið það
heim, þá blæs ég það burt. Hvers vegna? segir
drottinn hersveitanna — vegna húss míns, af því
að það liggur í rústum, meðan sérhver yðar flýtir
sér með sitt hús. — Haggaí 1, 5-9.
Á síðasta mannsaldri hefur þjóðunum gefizt
gott tækifæri til að taka eftir því, hvernig fer
þegar skammsýnt mannkyn afrækir hið allra
mikilvægasta. Þótt þjóðirnar safni og safni í eig-
ingirni og blindni sinni, er öllu „blásið burt.“
Tvær hörmulegar heimstyrjaldir blésu burt auð-
legð þjóðanna, f járafla og mannslífum, sökum þess
að þær höfðu afrækt „hús drottins" — guðsríkið
á jörðu. Afrækt það réttlæti og þá guðshyggju,
sem er undirstaða alls friðar, jafnt á alþjóða
vettvangi sem í einkalífi og félagslífi manna.
Takið eftir, hvernig fyrir yður fer! Sanngjörn
hvatning. Og þeir sem vinna fyrir kaupi,. fá það
í „götótta pyngju.“ Um það sér verðbólgan, að
lítið stanzi í pyngjunni.
í Noregi. En einmitt vegna hans, og vegna þess, að yfir-
völdin kunna að meta ágæt störf þeirra, njóta norskir ung-
templarar mikils styrks frá ríkinu. Á þessu ári er hann 30
þúsund norskar krónur, eða rúmar 180 þúsund íslenzkar, og
auk þess fá þeir frá ríkinu 9 þúsund krónur, (rúml. 54 þús-
und íslenzkar), sem eingöngu eru ætlaðar til námskeiðahalds.
En þeim er þetta ekki nóg til hinnar fjölþættu starfsemi
sinnar. Þeir þurfa á enn meira fé að halda. Undanfarin tvö
ár a. m. k. hafa þeir efnt til mikils happdrættis í samvinnu
við Stórstúku Noregs. Vinningar voru í fyrra hvorki meira
né minna en sex bílar og 200 aðrir vinningar. Sala var leyfð
á 400.000 miðum. Hreinn ágóði varð 50 þúsund krónur og
fékk N. G. U. helming þess.
Eitt af því síðasta, sem vakið hefur athygli á N. G. U. um
land allt, er barátta þeirra gegn öl- og áfengisauglýsingum
í kvikmyndahúsum, en þar hafa þær verið áberandi lengi.
Unga fólkið tók þarna svo myndarlega í ár og á svo raunsæjan
og sannfærandi hátt, að nú þegar hafa stjórnir ýmissa bæja
og borga, með Þrándheim í fararbroddi, bannað slíkar aug-
lýsingar með öllu.
1 ræðu sinni við setningu stórstúkuþings í sumar, vakti
stórtemplar, Johan Mjösund, sérstaka athygli á hinu vax-
andi og þróttmikla starfi N. G. U. og flutti þeim þakkir.
Það væri efni í langa frásögn að skýra frá hinu fjölþætta
starfi, á ýmsum sviðum, sem fram fer á vegum N. G. U. En
hér var aðeins ætlun mín að geta þeirra með örfáum orðum
og flytja frá þeim beztu kveðjur til bræðra og systra á
íslandi.