Eining - 01.11.1968, Blaðsíða 1

Eining - 01.11.1968, Blaðsíða 1
Ljós í myrkri ETTA blað mun berast í hendur J kaupendum þess nokkru fyrir jól og verður því ekki raunverulega neitt jólablað. Jólin eru árleg endurtekn- ing, og við nútímamenn eigum ekki til nein glæsilegri orð um fögnuð þeirra en þau, sem hafa verið margendurtekin og þarf að síendurtaka. Fá eru þau dá- samlegri en eftirfarandi orð spámanns- ins: Statt upp, skín þú, því aö Ijós þitt kemur og clýrö drottins rennur upp yfir þér! Því sjá, myrkur grúfir yfir jörö- inni og sorti yfir þjóöunum, en yfir þér upp rennur drottinn, og dýrð hans birtist yfir þér. Heiðingjarnir stefna á Ijós þitt og konungar á Ijómann, sem rennur upp yfir þér. — Jesaja 60,1-3. Þannig sá spámaðurinn öldum fyrir Krists burð, að í „Fylling tímans“ myndi Guð senda mannkyni „mikið ljós“ — „ljós heimsins,“ einmitt á tím- um andlegs myrkurs. Á þeirri öld, er Kristur fæddist, ríkti mikið andlegt myrkur, og enn er víða dimmt í heimi manna og „sorti grúfir yfir þjóðunum,“ ógnþrungnari óveðursský en nokkru sinni áður, og einmitt nú er hvatningin þessi: Statt upp! Skín þú! Við eigum að íklæðast ljómanum, sem rennur upp yfir okkur, opna sálir okkar fyrir innstreymi ljóssins — ljóss kær- leika, sannleika, réttlætis og friðar, svo að út frá ljósi okkar hið innra leggi „glampa af glóð gegnum skyrtu, treyju og vesti,“ svo að endurtekin séu orð Tule — Skjaldarmerkið. Einar Jónsson. Landnemarnir trúðu á ósýnileg verndaröfl, en með kristnitökunni gafst þjóðinni máttugasta vemdartáknið — Krossinn. Uppruni hans voru jólin.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.