Eining - 01.11.1968, Side 10

Eining - 01.11.1968, Side 10
10 EINING PJ VTTVr^ Mánaðarblað um áfenglsmál blnclindi HillNliNU og ö,mnP menningnrmál. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétar Slgnrðsson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá ríkinu og Stórstúku íslands og kostar 100 kr. árg., 10 kr. hvert eintak. Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982. Reykjavík. Sími: 41956. Bindindisráð kristinna safnaða Auk hans eru nú í stjórninni: Sigurður Gunnarsson kenn- araskólakennari, séra Ragnar Fjalar Lárusson, Hjörtur E. Guðmundsson og Gestur Gamalíelsson í Hafnarfirði, hinir í Reykjavík. Varamenn séra Kristinn Stefánsson, frú Sesselja Konráðsdóttir og Björn G. Eiríksson kennari. Þeim sem úr stjórn bindindisráðsins gengu voru færðar beztu þakkir fyrir fórnfýsi og þolgæði í góðu starfi, og ný- kjörnu stjórninni óskað allra heilla. Sem eins konar fram- hald á frásögn þessari af aðalfundi Bindindisráðs kristinni safnaða, fer hér á eftir grein, sem Björn Magnússon pró- fessor endursagði og þýddi úr erlendu riti. Hún er þarft innlegg í þessu máli. Aldur þessa ráðs er enn aðeins nokkur ár og það því frem- ur veikburða, en ætti að geta átt góða framtíð. Kirkja Krists þarf að eflast í mannheimi og hennar hlutverk er að líkna, bjarga og leysa fjötra og flytja mannkyni gleðiboðskap. Menn í íslenzkri prestastétt hafa fyrr og síðar lagt bindindis- málinu öflugt lið og verið þar miklir áhrifamenn, og mikills væntum við enn af þeim. f sumum Norðurlöndunum eru bindindisráð kristinna safnaða öflug og vinna mikið og gott verk. Þau hafa verið okkur hér hvatning til athafna. ASalfundur hins íslenzka Bindindisráðs kristinna safnaða var mánudagskvöldið 23. september, í vistlegum húsakynn- um Hallgrímskirkju í Reykjavík. 26 klerkar og safnaðar- fulltrúar sátu fundinn, prestarnir voru 10. Formaður ráðsins, Björn Magnússon prófessor, setti fund- inn og bauð fundarmenn velkomna og gaf svo séra Árelíusi Níelssyni orðið, en hann flutti fróðlegt og ágætt erindi um hina stórmerku Kofoed-líknarstofnun í Kaupmannahöfn. Þar næst flutti formaður skýrslu stjórnar bindindisráðsins. Tvö síðustu árin hafði hún m. a. gefið út tvö gagnleg og góð rit, sem dreift var aðallega til aðildarsafnaðanna. Fyn-a ritið er eftir kunnan sænskan bindindisfrömuð og kennimann. Þetta rökfasta og ágæta rit þýddi Björn Magnússon prófessor og flutti í tveimur útvarpserindum áður en það var gefið út. Hitt ritið er af allt annarri gerð. Það eru örstuttir kaflar eftir marga menn, þar á meðal presta, lækna, skólamenn, allt þekkta menn, einnig skipstjóra, útgerðarmenn og annað ágætt fólk, konur og karla, sem þar bera sannleikanum vitni. Alltaf er gott að bera sannleikanum vitni. Meistari meistaranna sagði við lærisveina sína, að þeir skyldu vera vitni hans. Góður vitnisburður nær oft betur til hjartnanna en rökhyggja, og það eru hjartaöflin, sem er hinn frelsandi kraftur mannlífsins. Þegar venjulegum fundarstörfum var lokið, tóku allmargir fundarmanna til máls og var þátttaka þeirra mjög góð og í alla staði uppörvandi. Þá fór fram stjórnarkosning. Tveir höfðu beðið um lausn, formaðurinn og séra Óskar J. Þor- láksson dómkirkjuprestur, sem verið hefur í stjórninni frá upphafi. Þótti sjálfsagt að taka ósk þeirra til greina og var þá kosinn nýr formaður, séra Árelíus Níelsson. Hann hefur verið ágætur stuðningsmaður ráðsins frá upphafi vega þess. Er nokkur þörf á því? »R nokkur þörf á kristilegu bindindisstarfi? Þetta er spurning, sem nokkuð hefur verið rædd í síðustu heftum af Folkets val, málgagni kristilegu bindindissamtak- anna í Svíþjóð, D K S N. Þau samtök eru mjög öflug, svo að þau standa fyllilega jafnfætis öllum öðrum bindindis- samtökum þar í landi. Það hefur meðal annars leitt til þess, að sumum hefur fundizt ástæðulaust fyrir söfnuðina sjálfa að sinna nokkru bindindisstarfi, þar sem kristilegu bindindis- samtökin séu svo öflug. Vinna þá ekki kristilegu bindindis- samtökin á móti sjálfum sér? spyr greinarhöfundur. Er þörf á sjálfstæðum, kristilegum bindindisfélagsskap ? Höfundurinn svarar þessari spurningu jákvætt, og telur bæði þörf á skipulegum, kristilegum bindindisfélagsskap og virku starfi safnaðanna að bindindismálum. Verða hér end- ursögð nokkur atriði röksemda hans. 1. Áfengisvandamálið er nú orðið eitt alvarlegasta böl samfélags manna. Tala drykkjusjúklinga (alkóhólista) í Svíþjóð er talin 300.000. Enginn veit tölu þeirra á Islandi, en gizkað mun hafa verið á líka tölu hlutfallslega. Þar við bætast allir þeir, sem beðið hafa meii’a eða minna tjón af áfengisnautn sinni, og enn fjölskyldur allra þessara manna. Áfengisneyzlan verður æ almennari, einnig meðal kvenna, unglinga og jafnvel barna. Við þetta bætist síðan hættan af eiturlyfjanautn, sem einmitt er hér á landi einkum talin tengd áfengisnautn, og þá víst ekki sízt ungra manna. Af þessum sökum er þörf að virkja alla krafta til baráttu gegn þjóðarvoða. 2. Það er nauðsynlegt, að til sé innan hvers þjóðfélags aðili, sem hefur það sérstaka verkefni að fjalla stöðugt um bindindismál og halda vakandi samvizku þjóðar og ein- staklinga gagnvart þeim vanda, er leiðir af áfengisnautn. Einnig þarf að áminna ríkis- og löggjafarvaldið í þessu efni. Það er þörf á sérfróðum mönnum um áfengismál. Hér kemur hlutverk kristilegrar félagssiðfræði til greina. Kirkj- unnar menn og guðfræðingar geta þar lagt meira til mála en aðrir, vegna reynslu sinnar og menntunar. Því er þörf kristilegra áhrifa og átaka í bindindisbaráttunni. Ölvun veldur bölvun

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.