Eining - 01.11.1968, Side 13

Eining - 01.11.1968, Side 13
E I N I N G 13 Aldarafmælisráðstefna í Englandi Karl Wennberg. mest, og svo mun hafa vei’ið um fleiri, var hinn mjög kunni orðkappi og ræðu- skörungur Monrad Norderval biskup í Norður-Noregi, áður prestur í Ála- sundi og þá oft nefndur íshafsprestur- inn. Eining hefur oft áður minnst á þenna þrekmikla stríðsmann Krists, alltaf „brennandi í andanum" vegna allra góðra málefna. Hann hefur oft greitt áfengispúkanum þung högg. Hann er vopnfimur og slær helzt ekki vind- högg. Kristinn Vilhjálmsson sagðist hafa hlustað á biskupinn flytja mikla ræðu í kirkju staðarins, og undir ræðu hans hefði fólk bæði hlegið og grátið. „Þótt ég hefði ekkert annað sótt á nám- skeiðið en það að kynnast þessum sér stæða manni og hlusta á hann,“ sagði Kristinn, „hefði ég ekki viljað fyrir nokkurn mun fara á mis við það.“ Slíkir menn eru varðmenn, vökumenn. Menn komast ekki hjá því að hlusta og hrökkva við og vakna. 1 sambandi við þetta námsskeið var auðvitað ýmislegt til skemmtunar og upplyftingar: kvöldsamkomur, ferða- lög og veizluhöld. Allt það er margsögð saga. Hér í blaðinu birtist ennfremur grein, sem Njáll Þórarinsson heildsali hefur skrifað um 100 ára afmælishátíð Góð- templarareglunnar í Englandi. Hann og frú hans voru fulltrúar Stórstúku ís- lands á því afmælisþingi og menningar- ráðstefnu. I§Í|fTIR að ákveðið var að halda VlM. hástúkuþing fjórða hvert ár, var tekin upp sú regla að hafa hástúku- fund eða ráðstefnu milli þinga. Síðast var slík ráðstefna haldin í Aþenu árið 1964. Með því að hundrað ár eru liðin á þessu ári frá því að fyrsta stúkan var stofnuð í Englandi og jafnframt í Evrópu, þótti sjálfsagt að ráðstefnan og hátíðarhöldin færu saman. Voru þau haldin í Lundúnum dagana 28. júlí til 3. ágúst, en á eftir var farin 6 daga hóp- ferð um England. Fyrsta atriðið á dagskránni var úti- fundur á Trafalgar torginu í London sunnudaginn 28. júlí og stóð hann frá kl. 3 til 5 e. h. Komið var fyrir hljóð- nema á fótstalli Nelsonstyttunnar, og gjallarhornum á ljónunum beggja vegna. Stói’templar Englands, sem setti fundinn, sagði, að templarar héldu ár- lega útifund á torginu í október mán- uði, en að fundurinn hefði að þessu sinni verið færður fram vegna ráðstefnu hástúkunnar og aldarafmælisins. Fyrstur ræðumanna var prestur úr London og lýsti hann ástæðum hinna aumustu meðal drykkjumanna, sem hefðust við í húsarústum frá stríðsár- unum, og því hvað gert væri til að reyna að bjarga þeim við. Síðan töluðu framkvæmdanefndar- menn hástúkunnar hver af öðrum, en Christopher G. Peet, ritari hástúkunnar kynnti ræðumenn. Ræðurnar voru vel fluttar og fróðlegar, en fáir entust til að standa á torginu og hlusta á þær til enda. Þetta var í blíðskaparveðri og fólk var að gefa dúfunum á torginu og éta ís. Kröfuganga Biaframanna gekk þarna fram hjá með hornablæstri og kröfuspjöldum og dró til sín talsverðan hluta þeirra, sem enn hlýddu á erindin. Eg var eitt sinn fyrir 20 árum á sam- komu Hjálpræðishersins á þessum sama stað. Okkar menn hefðu getað lært mikið af Hernum; hann hafði mikinn hljóð- færaleik og söng, og stutt, hressileg ávörp, og safnaði að sér miklum áheyr- endaskara. Ráðstefnan og um leið hátíðahöldin vegna aldarafmælisins voru sett á mánu- dagskvöld að Café Royal, rétt hjá Picca- dilly Circus, með ræðum stórtemplars Englands og hátemplars. Veitingar voru bornar fram, og ágætt skemmtiatriði var söngur og tónlist. Flutt var „Roses Presentation“, en söngvarinn gekk um syngjandi með bakka af rauðum rósum og gaf þær konum í salnum á göngu sinni. Hending virtist ráða því, hver yrði hnossins aðnjótandi. Eina íslenzka konan í salnum fékk þó sína rós og festi hana í barm sinn. Þriðjudaginn 30. júlí voru flutt tvö erindi fyrir hádegi og tvö eftir hádegi. Verður efni þeirra ekki rakið hér, en þó verður ekki komizt hjá því að geta nokkuð um erindi, er Mark Hayler flutti um Joseph Malins. Hayler er 81 árs T.v. Hátemplar Sven Elmgren og frú, ritari hástúkunnar, Christopher G. Peet.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.