Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 1

Eining - 01.07.1969, Blaðsíða 1
Norræna bmdmdisþmgið að baki Það voru þakklátir menn, sem heyrðu fundarhamarinn falla í ræðustólinn, þegar formaður undirbúningsnefndar, Ólafur Þ. Kristjánsson, sagði slitið 24. norræna bindindisþinginu, og hafði þá flutt kveðjuorð og góðar þakkir til hinna mörgu, sem áttu þær vissulega skilið fyrir allmikið starf og ágæta þátt- töku. Rétt áður hafði danski presturinn, Börge Beck, sem ásamt konu sinni og 11 ára syni sátu þingið, flutt mjög snjallt þakkarávarp fyrir móttökurnar og ánægjulega þingdaga og allt, sem var í sambandi við þá, ferðalög og sam- kvæmi. Hann bauð þá um leið 25. nor- ræna bindindisþinginu til Danmerkur eftir þrjú ár. Þá flutti og hinn ágæti formaður nor- rænu bindindisnefndarinnar, Jakob Pettersen, fyrrv. ráðherra og stórþings- maður, sérlega gott kveðjuávarp og minntist nokkurra manna, þ. á m. látnu dönsku bindindishetjanna Larsen-Ledets og Adolp Hansens. Hafi íslenzku þátttakendur þingsins verið þakklátir, þegar störfum var lok- ið, mun óhætt að fullyrða, að erlendu gestirnir hafi kvatt okkur og landið fagnandi og þakklátir fyrir góðar mót- tökur, yndislega sólskinsdaga og bros- andi og tignarlegan svip landsins. Opnunarathöfnin í Neskirkju laugar- dagskvöldið 19. júlí var í allastaði há- tíðleg. Forsetinn, herra Kristján Eld- járn, heiðraði þingið með nærveru sinni. Ávörp og stuttar ræður fluttu Ólafur Þ. Kristjánsson, Jóhann Hafstein, dóms- málaráðherra, Jakob Pettersen, form. norrænu bindindisnefndarinnar, Archer Tongue, forstjóri alþj óða-áfengisvarna- ráðsins, og Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri Reykjavíkur. Ávörp þessi mun blaðið birta í þessu tölublaði eða því næsta, eftir því sem þau verða fáanleg. Skemmt var með yndislegri hljómlist. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Þor- valdur Steingrímsson, fiðluleikari. Þá * / fremstu röð frá v.: Borgarstjórinn, Geir Hallgrímsson og frú, dómsmála- ráðherra Jóhann Hafstein og frú, for- setinn (’r. Kristján Eldjárn, Ölafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar og frú. Myndin er tekin í Neskirkju, þegar sett var Norræna hindindisþingið 19. júlí 1969. Ljósm.: Hreggviður Jónsson.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.